10,1/26,7° léttskýjað.
þetta er mynd af henni Síu, hún er búin að vera hér í fasta fæði í nokkra mánuði, en hún var grindhoruð og ræfilsleg fyrst þegar hún kom hingað, svo við fórum að gefa henni mat reglulega. Hún er mjög gæf og virðist hafa verið vön góðu atlæti. Nú erum við búin að frétta að hún átti heimili hér skammt frá, en þegar húsbændur hennar fluttu annað skildu þeir hana viljandi eftir, svo réðst það bara hvort hún finndi sér eitthvert æti. Ég skil ekki hvernig fólk getur komið svona fram við gæludýrin sín.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli