18 júní 2007

Veður

Veður: 15,9°/25,9° Skýjap ap mestu og örfáir regndropar, en sæokinni tæokst líka að láta ljós sitt skína stund og stund.

17 júní 2007

Þjóðhátíð

Veður: 16,4°/25,8° eina skúr gerði rétt fyrir hádegi, en það hefur að mestu verið skýjað í dag, en sólini samt tekist að kíkja til okkar smástund af og til síðdegis.
Ég vona að allir hafi átt ánægjulegan hátíðardag í tilefni þjóðhátíðarinnar. Við vorum svo heppin að Jónína þáði boð okkar um að koma og halda upp á daginn með okkur. Hún og Þórunn brugðu sér í gróðrarstöð í morgunn og áttu þar góða stund við að skoða blóm og annað það sem fyrirfinnst á slíkum stað. Mér var trúað fyrir að elda á meðan þær sinntu þessum embættisverkum og ég var mjög ánægður með það hlutskipti mitt.

16 júní 2007

Veður

Veður: 13,3°/20,3° úrkoma 55 mm. Rigning í allan dag.

15 júní 2007

Arfast

Veður: 11,9°/26,5° skýjað fyrst í morgunn, en síðar að mestu léttskýjað.
Ég var að arfast í dag, því arfinn tók góðan vaxtakipp eftir rigninguna og það hesur losnað um moldina við vætuna, svo auðveldara er að ná illgresinu upp með rótum.

14 júní 2007

Þórunn sjö ár í Austurkoti

Veður: 15,5°/25,5°, úrkoma 58 mm.skýjað. Í gær var ég búinn að gefa upp 10 mm. úrkomu og í gærkvöldi og nótt bættust við 58 mm. Svo þetta var verulega góð úrkoma og kemur sér vel fyrir gróðurinn.

Það var haldið upp á merkisafmæli hér í austurkoti í dag, því nú eru liðin sjö ár frá því Þórunn flutti hingað og oft hefur verið gerður dagamunur af minna tilefni en þessu. Það hittist bara svo illa á að Þórunn er hálflasin af kvefi, en hún harkaði af sér svo við gátum farið út að borða í tilefni dagsins og í gær var keyptur blómvöndur af þessu góða tilefni.

13 júní 2007

Dagur heilags Antoniusar

Veður: 12,4°/23,9° alskýjað og rigning síðdegis, úrkoma 10 mm.

Það er dagur heilags Antoniusar í dag og þar sem okkar hluti af þessum bæ heitir í höfuðuð á þeim góða dirlingi, eins og raunar ótal mörg önnur bæjarfélög hér í landi þá var messað í kapellunni hans hér í kvöld. Það er líka venja að þennan dag fara skólabörnin hér í dalnum í skrúðgöngu frá skólanum að kapellunni og síðan dansa þau smástund fyrir framan kapelluna. Ég á von á að þessari skrúðgöngu hafi verið aflýst vegna rigningarinnar. Börnin eru örugglega vonsvikin yfir þessu, því þau eru búin að leggja vinnu í að útbúa búninga til að skarta í þennan dag. Svona getur veðrið sett strik í reikninginn jafnvel hér, en nú er orðið langt um liðið síðan rignt hefur hér að gagni fyrr en í dag.

12 júní 2007

veður

Veður: 11,8°/30° léttskýjað í morgunn, en alskýjað síðdegis.

11 júní 2007

Dixeland

Veður: 13,7°/29,3° léttskýjað

Í gær fórum við í bæ sem heitir Cantanhede og er 50 km. til suðurs frá Austurkoti, en Austurkot er að sjálfsögðu nafli alheimsins. Í þessum bæ er búin að vera alþjóðleg dixiland músik hátíð í þrjá daga og við hefðum sennilega drifið okkur á einhveja tónleika þarna ef ég hefði ekki verið með kvef. Í dag var semsagt lokadagurinn og þá var heljarmikil skrúðganga um götur bæjarins. Gangan byrjaði ekki fyrr en klukkan fjögur, svo okkur fannst alveg tilvalið að fá okkur að borða í bænum á meðan við biðum eftir því að gangan hæfist. Það er alltaf eins þegar veriið er á ókunnugum slóðum að maður hefur ekki glóru um hvar á að leita að matsölustað, svo við lögðum bílnum og röltum af stað og vorum heppin, því fljótlega hittum við mann á förnm vegi sem við spurðum hvar hægt væri að fá matarbita í þessum bæ. Sá var ekki lengi að bjarga okkur út úr þessum vanda, hann gekk með okkur nokkur skref fyrir næsta húshorn og benti þar á gult hús sem hann sagði að hýsti góðan veitingastað og sú fullyrðing mannsins stóðst alveg, því gómsætari nautalundir hef ég varla bragðað, en ostatertan sem við fengum í ábæti var ekki eins góð, en þá er maður bara ekkert að spá í hana en hugsar um lundirnar. Það hagar svo til þegar komið er inn í þetta veitingahús að á jarðhæðinni er komið inn í bar, en svo er líka stigi upp á fyrstu hæðina og þangað völdum við að fara fyrst, þar var þá mjög stór salur og sennilega ein þrjú einkasamkvæmi þar á sama tíma, bara aðskilin með lausum skilrúmum. Við létum eiga sig að gerast boðflennur þarna, en snerum aftur niður á jarðhæðina, þar var þá mjög stór veitingasalur fyrir innan barinn og það var svo mikið að gera að við þurftum að bíða smástund eftir að það losnaði borð.
Það var mikill fjöldi fólks sem tók þatt í skrúðgöngunni, margir flokkar af stúlkum frá sex ára aldri og til gjafvaxta kroppa í klæðnaði frá fyrri hluta tuttugustu aldar og þær sýndu Charleston dans við undirleik lúðrasveita. Mér fannst nú tæpast við hæfi að hafa svona ungar stelpur í að sýna svona sexý dans, en þær dönsuðu af mikilli einbeitni og innlifun eigi að síður. Það hefur örugglega hver einasta pía í þessum bæ teki þátt í að sýna dansinn svo margar voru þær.
Eftir dansflokkunum komu svo hestar og hestvagnar, gömul reiðhjól og reiðhjólafígúrur, gömul mótorhjól og að síðustu fornbílar. Lestina ráku svo sóparar bæjarins með sína kústa tilbúnir að þrífa göturnar eftir hátínina.
Þetta var semsagt ágætis skemmtun að fara þetta.
Smellið á Myndir hér til hægri til að sjá myndir frá skrúðgöngunni.

10 júní 2007

veður

Veður: 12,5°/27,3° talsvert skýjað á koflum og næapi meira ap segja að koma með örfæa regndropa.

Dixland skrúðganga

Í bæmum Cantanhede er búin að vera dixiland hátíð í þrjá daga og hátíðinni lauk í dag með mikilli skrúðgöngu. Ég reyni að koma myndum sem ég tók þarna í dag inn á myndasíðuna mína á morgunn.






Posted by Picasa

09 júní 2007

veður

Veður: 10°/31,3° skýja fyrst í morgunn, en orðið léttskýjað um hádegi.

08 júní 2007

Veður

Veður: 13,5°/30,2° skýjað

07 júní 2007

Veður

Veður: 14,4°/31,1° léttskýjað

06 júní 2007

Veður

Veður: 13,1°/35,9° léttskýjað

Salat












Hér koma fleirri myndir af þessari ágætu plöntu sem vex í garðinum hjá okkur og bragðast svo vel ef hún er borðuð á réttu þroskastigi. Þetta er auðvitað salat, en ég hef bara ekki fyrr séð það verða svona falllegt á að líta.
Posted by Picasa

05 júní 2007

Veður

Veður: 12,1°/35,2° heiðskírt

Hvaða planta er þetta?
















Mér datt í hug að leyfa fólki að spreyta sig á að giska á hvaða planta þetta er´þetta er mjög algeng planta en ég hef aldrei séð hana líta svona út fyrr en nú. Þessi planta vex í garðinum í Austurkoti. Myndin var tekin í morgunn 6. júní
Posted by Picasa

04 júní 2007

Sumarhegðun

Veður: 10,8°/33,4° heiðskýrt. Í gær var þokuloft fyrstur klukkustundir dagsins, en léttskýjað síðdegis.
Nú er komin sumarhegðun á íbúana í Austurkoti. Farið út að vinna í garðinum á morgnana, en um miðjan daginn á meðan heitast er úti er sest við tölvurnar til að lesa blöðin og leika sér í tölvunni.
Bræður Þórunnar og þeirra konur fóru frá okkur í gær eftir allt of stuttan stans hér, en þar sem þau ætluðu að skoða sig um á heimleiðinni meðal annars að líta við í París gátu þau ekki verið hér nema í þrjá daga. Þó við hefðum gjarnan viljað að þau stönsuðu lengur hér, þá erum við þakklát þeim fyrir að leggja á sig að aka þessa löngu leið frá Gautaborg til okkar fram og aftur, það er talsverð vinna. Við vonum að þau verði heppnari með veður á heimleiðinni, en á leiðinni hingað en þá fengu þau einum of mikla rigningu, svo þau þurftu að þurrka tjaldvagninn sinn á meðan þau voru hér.

02 júní 2007

veður

Veður: 8,4°/32° léttskýjað

01 júní 2007

Dagur með gestum














Notið sólar á veröndinni














Við ströndina















Grillarinn að störfum














Hjörtur að spá í grillkjötið.
Posted by Picasa