16 maí 2006

Kleinubakstur

Veður: 15°/28° léttskýjað.

Eins og sjá má á hitatölunum hér fyrir ofan var ekki hægt að kvarta undan kulda hér í dag, frekar að það væri hægt að kvarta yfir of miklum hita.
Eins og ég sagði í gær átti að fara að hjóla í dag og þegar það leit út fyrir að verða vel heitt um miðjan daginn var ákveðið að drífa sig af stað strax í morgunn áður en það yrði of heitt til að hjóla. Það er í minni deild að sjá um að það sé nægilegt loft í dekkjunum á hjólunum og þegar því var lokið var að drífa sig í hjólreiðabuxurnar og í hlýrabol, meira þurfti ekki af fatnaði í dag.
Við vorum komin af stað fyrir klukkan tíu. Tókum stefnuna hér upp í Albergaria, því Þórunn var með bréf sem hún ætlaði að koma á póst.
Hringurinn sem við fórum í dag er 25 Km. að lengd og upp og niður brekkur, því það er ekkert sléttlendi í grennd við okkur, en það er bara hollt að spreyta sig á brekkunum og þegar toppnum er náð er þægilegt að renna sér niður í næstu lægð.

Eftir hádegi réðist Þórunn í að búa til kleinur, sem brögðust mjög vel hjá henni eins og venjulega. Geiri og Rósa komu svo og fengu heitar kleinur með kaffinu.

15 maí 2006

Afmælisgjöf.

Veður: 10°/26° Léttskýjað.

Til hádegis vorum við hjónakornin að vinna úti við. Þórunn að snyrta eitt og annað í garðinum og brenna eitthvað rusl, en það er nú raunar alveg bannað að kveikja eld hér frá 1. maí, en hún hefur örugglega ekki munað eftir því, ef hún hefði munað eftir þessu hefði hún látið það vera að kveikja eldinn, því hún er svo löghlýðin.
Ég lauk við að kalka vegginn að utanverðu í kring um lóðina, nú ætti hann að líta vel út þar til næsta vor. Það sest mosi og annar gróður í þetta svo það er best að kalka veggina einu sinni á ári.
Ég batt líka upp tómaatplönturnar, en þær eru svo veikburða að þær leggjast bara út af, ef þær fá ekki stuðning. Það verður að binda þær upp með reglulegu millibil á meðan þær eru að vaxa. Það eru byrjuð að koma blóm á tómatplönturnar og í júnílok ætti að vera hægt að fara að gæða sér á tómötum. Mér finnstt þeir bestir sólvolgir beint af plöntunni. Það sama gildir raunar um alla ávexti, mér finnast þeir ekki góðir þegar búið er að kæla þá í ísskáp.
Eftir hádegi fórum við svo til að kaupa afmælisgjöf handa dömu sem á afmæli í þessum mánuði. Við sendum alltaf fatnað í afmælisgjafir, því það er eitthvað sem alltaf er hægt að nota og svo fer ekki mikið fyrir dömufatnaði í pósti.
Rósa og Geiri biðu okkar hér heima þegar við komum til baka. Þau voru í morgunn að reyna að hafa uppá hvar gámurinn með búslóðinni þeirra væri staddur á sínu ferðalagi. Um tíma voru þau hrædd um að hann væri alveg glataður, en sem betur fer fannst um síðir hvar hann er og það á að standa því sem þeim var lofað í upphafi að hann kæmi til Porto núna næsta föstudag. Svo það var léttara yfir þeim við að fá þær fréttir.
Þegar við vorum að byrja kaffidrykkju með G og R kom Matthild grannkona okkar og þáði líka kaffisopa með okkur, henni finnast þeir mjög bagalegir þessi tungumálaerfiðleikar. Henni finnst svo gaman að spjalla, að henni finnst eiginlega alveg ólíðandi að við skulum ekki geta tjáð okkur alveg óhindrað. Oft er hún búin að skamma mig fyrir að tala ekki almennilega portúgölsku.
Eftir kaffi og spjall var svo farið með pakkann á póst.
Það var búið að setja á dagskrá í dag að liðka hjólin og sjálfan sig, en vegna annríkis varð að sleppa því og nú er það aftur á dagskrá á morgunn. Vonandi að það gefist þá stund aflögu fyrir hjólreiðar. Það hefur vonandi ekki hvarflað að neinum að það væri ekki nóg að gera á þessum bæ.

14 maí 2006

Út að borða

Veður: 13°/24°. Í dag var þokumóða í lofti, en sólin skein í gegn annað slagið.

Geiri og Rósa komu í morgunn, við vorum búin að ákveða að fara út að borða og það varð úr að við fórum öll saman á veitingastað hér upp með Vouga ánni.
Þessi veitingastaður er mjög sérstakur að innan, grófir veggir og sumstaðar grjót á veggjunum. Þetta er í kjallara, en samt hátt til lofts. Við förum þarna með reglulegu millibili, því maturinn þarna er góður og sömuleiðis þjónustan.
Í dag fengum við okkur grillað kjöt og ávexti á spjóti. Mér fannst það bragðast mjög vel, en Geira fannst það of lítið steikt, en okkur hinum alveg mátulegt, svona er smekkur fólks misjafn. Öll fengum við okkur svo ábæti og kaffi á eftir, svona til að setja punktinn yfir.
Eftir matinn fórum við svo í sunnudagsbíltúr í bæ sem heitir Oliveira de Frades. Það er mjög falleg útsýni á leiðinni upp í þennan bæ en hann er að mig minnir í um 500 metra hæð yfir sjó. Við fórum í gönguferð um bæinn og tylltum okkur niður á bekk í fallegum en litlum garði sem þarna er.
Við vorum komin heim um kaffileitið og síðdegið var notað til að sitja úti á verönd og dunda sér í tölvunni.
Á morgunn er svo ný “vinnuvika”, svo það er eins gott að koma sér snemma í háttinn í kvöld.

13 maí 2006

Gólfþvottur.

Veður: 8°/24° léttskýjað.

Tíminn flýgur áfram á ógnarhraða og nú er enn einu sinni kominn laugardagur og þá þykir við hæfi að þrífa húsið og innifalið í því er meðal annars að skúra gólfin. Ég hef rúmlega hálfrar aldar reynslu í því embætti og er búin að ganga í gegnum margar mismunandi aðferðir við að skúra gólf á mínum langa ferli í þessu virðulega starfi.
Í byrjun var þetta allt mjög einfalt og fábrotið. Bara að eiga einhverja tuskudruslu og vatnsílát, þá var bara lagst á hnén og óhreinindin nudduð af gólfinu með tuskunni, tuskan undin og þurrkað yfir, þar með klappa’ og klárt og gólfið tilbúið til að taka við næstu óhreinindum.
Næsta framfaraspor í gólfþvotti var svo tilkoma skrúbbsins,það var mikil framför þegar ekki þurfti lengur að liggja á hnjánum við að skúra gólfin. Síðan hafa komið til sögunnar ótal gerðir af þveglum og enn fleiri gerðir af sérstökum tuskum á þveglana og ekki má gleyma að minnast á öll þau töfra þvottaefni sem í boði eru í dag til að bæta árangurinn við gólfþvottinn. Ef marka má leiðbeiningarnar á umbúðunum gerist gólfþvotturinn næstum því af sjálfu sér ef þú setur nokkra dropa af þessu töfra efni út í skúringarvatnið.
Ég er búinn að upplifa að skúra línolíum dúka og um tíma var það ekki sómasamlega gert nema að bóna á eftir með mjallarbóni og til að fá það hágljáandi var nauðsynlegt að eiga bónkúst. Fyrir þá sem ekki vita hvernig slíkt verkfæri leit út ætla ég að reyna að lýsa því. Þetta var steypujárnshlunkur níðþungur með löngu skafti og neðan á honum voru stutt og stinn hár. Þegar búið var að bera bónið á gólfið var þessu verkfæri rennt fram og aftur eftir gólfinu þar til það var farið að glansa og til að fullkomna verkið var settur mjúkur klútur neðan á bónkústinn til að ná fullkomnum gljáa á gólfið. Gólfið þurfti helst að glansa næstum eins og spegill og þá var það líka orðið stórhættulegt til umferðar fyrir þá sem voru á sokkaleistunum einum, því það var hált eins og skautasvell.
Ég hef líka reynslu af að skúra málað steingólf og á því entust gólftuskurnar ekki lengi. Nú svo eru það parket gólfin sem eru nú heldur fínni með sig en steingólfin, þurfa fína og mjúka klúta og er meinilla við alla vætu. Svona einskonar hefðardömur í gólfefnum.
Núverandi og síðasta sem ég hef komist í kynni við í gólfefnum eru flísarnar og þær er mjög auðvelt og létt að þrífa.
Svona til að gera snyrtilegt utandyra líka fór ég með sláttuvélina yfir baklóðina sem við köllum svo, því það er lóðinná bak við hús séð frá götunni. Þórunn snyrti veröndina framan við húsið, svo þetta ætti að vera orðið sómasamlegt fyrir helgina.

Það kom viðgerðarmaður í dag til að líta á sjónvarpið, því það vantaði talið á nokkrar stöðvar og ég gat ekki fundið út hvað að var. Hann var ekki lengi að sjá hvað þyrfti að gera til að koma talinu á, bara röng stilling þar sem talið er valið. Lítil vinkona okkar sem kemur í heimsókn til okkar liggur undir grun að hafa fiktað í þessu. Við könnumst hvorugt við að hafa hreyft við þessu og hver gerði það þá? (Svona tók sonur minn til orða einu sinni þegar eitthvað hafði farið úrskeiðis á heimilinu. Ekki gerði ég það og ekki heldur Jón bróðir og hver gerði það þá?)
Honum fannst ekki líklegt að systir hans eða við foreldrarnir hefðu gert þetta

Síðdegis skruppum við aðeins í búðir í Aveiro, svona til að bregða okkur aðeins af bæ. Og í kvöld horfðum við á fínan skemmtiþátt frá Þyskalandi með tali og öllu tilheyrandi.

12 maí 2006

Eins og í fuglabjargi.

Veður: 13°/23° léttskýjað.

Þegar við mættum í leikfimi í morgun fór það ekki milli mála í hvaða landi við erum stödd, því kliðurinn áður en leikfimin byrjaði var eins og ég gæti ímyndað mér að sé í fuglabjargi með nokkur hundruð þúsund fuglum sem allir eru gargandi. Þarna voru líka samankomnar 25 konur og allar voru að tala, en nokkuð örugglega engin að hlusta á hvað hinar voru að segja. Það er alveg öruggt að tungan í þeim fékk ríflegan skammt af þjálfun í dag.
Það er ein kona þarna í hópnum sem er örugglega með einhvern heilasjúkdóm, því hún á mjög erfitt með að samræma hreyfingar sínar og sjaldnast nær hún að gera æfingarnar rétt. Það hlýtur að vera mjög erfitt að fá svona sjúkdóm vitandi að það er enga lækningu að hafa við þessu. Vonandi gera þær æfingar sem hún nær að gera henni eitthvað gott. Mér finnst mjög ömurlegt að vita til þess að það hefur komið fyrir að það sé hlegið að konunni þegar hún er að gera einhverja vitleysu og þá bara brosir hún angurblítt. Ég bara vona að þeim sem verður það á að hlæja að svona löguðu eigi ekki eftir að upplifa að lenda í þessari aðstöðu síðar á lífsleiðinni.

Eftir leikfimina litum við inn hjá Geira og Rósu, þó klukkan væri þá ekki nema rétt rúmlega tíu voru þau búin að fara niður í Aveiro til að versla og komin heim með varninginn. Það er sko ekki verið að sofa úr sér augun á þeim bæ.
Við fengum svo auka morgunkaffi með þeim úti á svölum í góða veðrinu.

Síðdegis var svo aðeins litið á garðinn, það er alltaf nóg að gera þar.

11 maí 2006

Kölkun.

Veður : 11°/25°, Skýjað til klukkan tíu, eftir það léttskýjað.

Geiri var mættur hér fyrir klukkan níu í morgunn og var ólmur í að byrja að kalka múrinn í kring um garðinn. Ég lét það bara eftir honum, en fór sjálfur í að reita arfa, það er endalaust hægt að hafa nóg að gera í því.
Geiri sótti svo Rósu þegar hann var orðinn nógu kalkaður og þau borðuðu hjá okkur í hádeginu.
Eftir matinn fórum við svo Með þeim til Aveiro til kapalfyrirtækisins sem þau eru í viðskiptum við með tölvuna og sjónvarpið til að athuga með hvað þau þyrftu að gera til að geta tengt tvær tölvur í einu inn á netið. Okkur var sagt að til þess yrðu þau sjálf að kaupa viðeigandi búnað. Þau ætla að gera það þegar tölvan sem er á leiðinni hingað með búslóðinni kemur hingað.
Rósa keypti sér heyrnartól og hljóðnema til að nota við fartölvuna.
Grassa vinkona okkar og Johana dóttir hennar komu svo í heimsókn í kvöld til að heyra ferðasöguna frá Danmerkurferðinni. Þórunn sýndi henni myndir úr ferðalaginu.

10 maí 2006

Gamla góða hjólfarið.

Veður: 9°/25° léttskýjað.

Mikið var gott að fá að sofa í rúminu sínu á ný, enda svaf ég mjög vel í nótt. Það gæti líka haft töluverð áhrif á að ég svaf vel að það er dimmt í húsinu hjá okkur um nætur, en í Danmörku er nóttin orðin svo stutt á þessum árstíma og sólin komin snemma á kreik.
Það er notalegt að komast í gamla hjólfarið sitt á ný, þó maður geti stundum orðið leiður á því, en þá er bara að drífa sig í ferðalag eða gera eitthvað annað til tilbreytingar og þá kann maður betur að meta hjólfarið sitt á ný.
Ég reitti svolítið af arfa í morgunn, hann hefur greinilega kunnað vel að meta það að fá að vera í friði á meðan við vorum í burtu, hefur sennilega verið að vonast til þess að við kæmum ekki heim í bráð.
Rósirnar voru líka duglegar á meðan við vorum fjarverandi og nú er mikið af þeim útsprungið.

Eftir hádegi heimsóttum við Geira og Rósu til að sjá hvað þau hefðu haft fyrir stafni á meðan við vorum ´´i burtu. Þau eru búin að fá ísskáp og þvottavél, einnig voru rúmin sem þau pöntuðu komin á sinn stað. Dýnurnar sem fylgdu með rúmunum voru allt of litlar fyrir rúmin, svo þau verða að nota gömlu dýnurnar sem við lánuðum þeim, þar til dýnur af réttri stærð koma.
Það er líka búið að tengja hjá þeim sjónvarp, tölvu og síma, svo þau eru komin í gott samband við umheiminn á ný.
Við fórum svo öll niður í Aveiro til að kaupa smávegis í matinn og eins voru þau G og R að leita sér að sófaborði. Við fórum í þrjár stórar húsgagnaverslanir, en þau sáu ekkert sem þau voru alveg sátt við, svo þau verða að leita á fleiri stöðum. Það er mjög mikið af húsgagnaverslunum hér, svo þau hljóta að finna sér borð áður en langt um líður. Þau keyptu sér gólfteppi í stofuna í ferðinni.

Þegar heim kom unnum við í garðinum, meðal annars var grasflötin slegin, en grasið hefur ekki vaxið mikið, vegna þess hve þurrt hefur verið.

Danmerkur reisa ferðalok

Þriðjudagur 9. maí 6. og síðasti dagur.

Þá er runninn upp síðasti dagur í þessari Danmerkur reisu, því við eigum pantað flug frá Esbjerg klukkan 14:15. Við gengum frá í herberginu eftir okkur og lögðum síðan upp í gönguferðina heim til Lindu, en það er um hálftíma gangur og nú vorum við með töskurnar í eftirdragi svo ferðin sóttist ögn hægar en venjulega.
Linda var í fríi í dag, svo hún sá um morgunkaffið að þessu sinni. Við kvöddum stelpurnar áður en þær fóru í skólann, en hann byrjaði ekki fyrr en klukkan tíu í dag.
Claus var svo elskulegur að aka okkur til Esbjerg, en það er rúmlega klukkutíma akstur frá Herning. Það er mikill landbúnaður á þessu svæði sem við fórum um og víða var mjög slæm lykt af mykju sem búið var að bera á akrana. Vorið er í algleymingi hér í Danmörku núna og tré og runnar að laufgast.
Flugstöðin í Esbjerg er mjög lítil, svo við héldum að við yrðum snögg að komast þar í gegn, en raunin var nú önnur. Innskráningin hófst hálftíma of seint, en það kom ekki að sök, því þegar búið var að skrá okkur inn var tilkynnt að það væri seinkun á fluginu líklega um að minnsta kosti tvo tíma, svo það var eins gott að við höfðum rúman tíma á milli fluga í London.
Flugið til London var þægilegt og tók ekki nema rúman klukkutíma. Það var mjög margt fólk á flugstöðinni í Stansted og langar biðraðir við öll innskráningarborð. Það tók okkur hálfa klukkustund að fá okkur skráð, en það er nóg að gera við að fylgjast með samferðafólkinu á meðan beðið er. Portúgölsk kona var fyrir framan okkur í röðinni og hún talaði látlaust allan tímann við sinn samfarðamann, svo það virtist ekki skorta umræðuefni á þeim bænum og ekki þurfa að segja já og jamm til að rjúfa þögnina. Hópur Ítala var við hlið okkar og þegar þeim var ljóst hvað töskurnar máttu vigta var gengið í að færa á milli í töskunum og reyna að troða í poka sem handfarangri, það var mikill handagangur á meðan á þessu stóð og fór ekki orðalaust fram, enda Ítalir þekktir fyrir að geta spjallað saman.
Flugvélin til Portó fór á stað á tilsettum tíma, eina flugið af þrem sem við flugum með Ryanair sem var á áætlun. Ekki nógu góð útkoma hjá þeim.
Í flugstöðinni í Porto biðu svo Rósa og Geiri eftir okkur til að koma okkur síðasta spölinn heim, þau litu líka eftir garðinum fyrir okkur á meðan við vorum í burtu og ég er ekki frá því en þau hafi gert það betur en við sjálf.
Heim vorum við svo komin klukkan hálf ellefu og mikið var það góð tilfinning að vera komin heim til sín heilu og höldnu eftir ánægjulegt ferðalag.
Það er góð tilbreyting að bregða sér í ferðalag einstöku sinnum, en heima verður alltaf best hvar svo sem það heima er, en þó ekki síst hér í Portúgal, það er svo notalegt að eiga sitt heima hér í dalnum góða.

09 maí 2006

Danmerkur reisa 5. dagur

Mánudagur 8. maí, 5. dagur.

Byrjuðum daginn á að ganga heim til Lindu í góða veðrinu frá sefnstað okkar. Við vorum með lykil að íbúðinni þeirra, því þar var engin heima. Linda fór með stelpunum í skólaferðalag í tilefni fermingarinnar og Klaus var í sinni vinnu. Eftir að hafa fengið okkur morgunmat fórum við á netið, en við tókum fartölvuna með okkur. Við náðum að spjalla við vini okkar á Spáni og Geira og Rósu í gegnum tölvuna. Þórunn var líka að vinna í myndum í tölvunni. Um miðjan daginn fengum við okkur svo gönguferð niður í bæ. Þar er skemmtileg göngugata og í góða veðrinu voru fötum og ýmsum varningi stillt upp úti á götu. Þórunn togapi í tuskur svona af og til á meðan við röltum eftir götunni ekkert var samt keypt því verðlagið er svo mikið hærra hér en í portúgal. Þarna í götunni er verslun með ótrúlegt úrval af föndurvörum og þar inni eyddi þórunn góðri stund við að rannsaka hvað til væri.
Þegar Klaus kom heim gaf hann sér góðan tíma til að leiðbeina Þóruni með ljósmyndunina, en hann er góður atvinnuljósmyndari, svo hnn gat gefið mörg góð ráð. Þar næst tók hann til við að matreiða ofan í okkur og tókst vel upp við það. Linda og stelpurnar komu heim klukkan að ganga níu þreyttar en mjög ánægðar með daginn.

Danmerkur reisa 4. dagur

Sunnudagur 7. maí. 4. dagur

Byrjuðum daginn á að mæta heima hjá Lindu í morgunverð. Á meðan við vorum að borða var Linda að leggja síðustu hönd á að greiða og búa tvíburana fyrir fermingarathöfnina. Kirkjan er mjög stutt frá heimili þeirra svo við gengum þaðan til kirkjunnar, enda var veðrið eins og best var á kosið sólskin og hlýtt.
Fermingarathöfnin hófst svo klukkan tíu. Það voru fermd ellefu börn að þessu sinni.
Aðstandendur barnanna fá hver sinn bekk í kirkjunni, en fermingarbarnið situr á stól við enda bekkjanna, þar til kemur að sjálfri fermingunni þá fara þau upp að altarinu. Þetta var falleg og látlaus athöfn.
Að aflokinni athöfninni í kirkjunni var haldið til keiluhallar bæjarins. Þar var veislugestum skipt niður í lið sem kepptu í keiluspili, með eitthvað misjöfnum árangri, enda voru nokkrir sem ekki höfðu komið nálægt þeirri íþrótt áður. Næsti liður á dagskrá var svo fermingarveislan. Þau höfðu tekið á leigu huggulegan sal hjá golfklúbbi og pantað mat einhvers staðar frá og fengið svo stúlkur til að sjá um að bera matinn fram. Í forrétt var fiskihlaup, í aðalrétt var kalt kjöt af nokkrum gerðum með heitu kartöflusalati og ýmsu öðru góðgæti. Þessu var skolað niður með vatni, gosi, öli, rauð og hvítvíni allt eftir smekk og lyst hvers og eins. Hér er það föst venja að bera fram vín í fermingarveislum. Ekki sást þó vín á nokkrum manni.
Eftirrétturinn var svo jarðarberjahlaup. Svo til að að setja punktinn yfir allt þetta át var borin fram kransakaka, sælgæti og kaffi ásamt skálum með jarðaberjum, vínberjum og melónum.
Öllu þessu áti var ekki lokið fyrr en klukkan sex. Það var reglulega notalegt að vera í veislu með Dönunum, það eina sem angraði mig var hversu margir reiktu meðan á borðhaldinu stóð. Að lokum komu svo allir Íslendingarnir saman heima hjá fermingarbörnunum og áttu þar notalega samverustund.

08 maí 2006

Danmerku reisa 3. dagur

Laugardagur 6. maí. Þriðji dagur.

Þetta var síðasti morguninn með þeim Jóni og Elísu, því við áttum farseðla með lestinni frá Köben til Herning klukkan ellefu um morguninn. Eftir morgunkaffið fylgdu þau okkur í strætisvagninum heiman frá þeim út á lestarstöð. Vagninn er fjörutíu og fimm mínútur að fara þessa leið. Það var svo fátt í vagninum þegar við komum í hann að við fengum sæti, en þegar fór að nálgast miðborgina var orðið alveg stappað í vagninn.
Við vorum komin svo tímanlega inn á lestarstöð að við gátum tillt okkur niður og virt fyrir okkur mann lífið á stöðinni. Þarna sér maður allar þær manngerðir sem búa í Danmörku. Það er auðvitað ekki hægt að koma til Danmerkur án þess að fá sér eina með öllu, þá meina ég pulsu. Slíkan mat er ekki hægt að fá í Portúgal.
Nú tók við rúmlega þriggja stunda ferð til Herning. Framhjá gluggunum þutu akrar ýmist orðnir grænir eða nýplægir og skjólbelti á milli, en trén voru rétta að byrja að laufgast. Þorp og bæi bar líka fyrir augu af og til, en þeir eru allir keimlíkir, því það er ekki mikil tilbreyting í húsagerð hér í landi.
Á lestarstöðinni í Hernig tóku svo á móti okkur tvíburarnir, sonardætur Þórunnar og móðir þeirra og fóru með okkur heim til sín. Þar voru þá fyrir Sigrún dóttir Þórunnar og Einar faðir Sigrúnar, fyrrverandi eiginmaður Þórunnar. Einnig var mætt þarna á heimilið móðursystir Lindu ásamt eiginmanni, en Linda er móðir tvíburanna. Síðar um kvöldið bættist svo móðir Lindu í hópinn ásamt sínum manni.
Um kvöldið rölti svo allur hópurinn niður í miðbæ Herning og fór þar á kínverskan matsölustað að fá sér að borða. Við fengum lítinn sal út af fyrir okkur svo þetta var regulega ánægulegt og allir voru vel sáttir við þann mat sem þeir höfðu valið sér. Á efti var svo gengið heim, en það er ekki nema tuttugu mínútna gangur. Þegar svo kom að því að fara í háttin fór hver til síns heima, en þau voru búin að fá leigðar íbúðir fyrir gesti sína. Í íbúðarhverfunum hér eru víða íbúðir sem hægt er að fá leigðar fyrir lítinn pening, ef fólk hefur ekki nægilegt rými heima hjá sér fyrir gesti sína. Við Þórunn lentum í íbúð með móðursystur Lindu og hennar manni. Þarna voru tvö mjög góð herbergi með sameiginlegu baði.