26 október 2007

Músagangur.

Fyrir nokkru fékk ég stafræn heyrnartæki, en þó þau gerðu það verkum ég heyrði mun betur en áður átti ég samt dálítið erfitt með greina almennilega þegar ég hlustaði á tal og samræður, Þórunn kvartaði yfir ég heyrði lítið betur en með gömlu tækjunum.
Í morgunn lét ég svo verða af því fara á Heyrnar og talmeinastöðina og athuga hvort hægt væri ráða bót á þessu vandamáli. Sérfræðingurinn tók tækin og tengdi við tölvu og hækkaði þá tíðni sem tal er á og finnst mér mun auðveldara fylgjast með tali. Mér finnst merkilegt það skuli vera mögulegt stilla tækin á ákveðna tíðni, svo þau nýtist betur. Ég var hvattur til koma aftur ef það væri eitthvað sem ég teldi betur mætti fara.
Á heimleiðinni komum við, við hjá Blindrafélaginu og fengum lánaðan spilara til hlusta á hljóðbækur sem við erum með láni og þar næst fórum við á Sjónstöðina og það fengum við lánaða tölvu handa Þórunni, svo erum við komin með sitt hvora tölvuna eins og heima í Austurkoti.
Fyrir mér er tölvumús og tölvumús ekki það sama, mér finnst alveg ómögulegt nota þessar venjulegu mýs sem verður skarka með aftur á bak og út á hlið á borðinu og oftar en ekki komast ekki nógu langt svo það verður lyfta þeim upp og byrja nýju, nei ég vil sko hafa kúlumús sem alltaf er kyrr á sama stað á borðinu og er ég komin með eina slíka sem ég fékk hjá dóttur minni og þvílíkur munur vinna við tölvuna núna.
Fórum í gönguferð í dag, en tvo undanfarna daga hefur ekki verið hundi útsigandi fyrir roki og rigningu, fengum vísu smávegis slyddu í gönguferðinni í dag, svona rétt til minna á við værum á Íslandi í gönguferð.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Fínt að þið skulið vera komin með góðar tölvur til að vinna við þegar lítið er á dagskránni. Manni leiðist aldrei þegar þessar elskur eru nálægar.
Kær kveðja,