19 desember 2007

Rigningarspáin brást.

Veður: 10,1° /14,9° úrkoma: nokkrir regndropar, það hefði líklega verið mögulegt að telja þá.

DSC04942 Þetta eru appelsínur sem voru dottnar af öðru appelsínutrénu og hvíla nú á safnhaugnum og verða síðar að gróðurmold. Ég taldi að gamni hvað þær væru margar og í þessari einu lotu voru 700 stykki.

DSC04945 Þó mikið sé dottið af appelsínum af þessu tré, eru samt nokkur þúsund appelsínur eftir á því, svo það verður ekki skortur á appelsínum í Austurkoti þetta árið.

18 desember 2007

Veður

Veður: - 4,9° / 12° úrkoma 3 mm.

Loksins kom að því að við fengjum rigningu hér, það byrjaði að rigna um hádegið en það hefur verið farið frekar sparlega með dropana enn sem komið er, en það er spáð rigningu næstu tvo daga og vonandi verður þá settur meiri kraftur í þetta en í dag. Það hljómar sjálfsagt undarlega í eyrum íslendinga sem eru að drukkna í vatni að heyra óskir um mikla rigningu. Það hefur allt of lítið rignt hér í haust og ef það rignir ekki að gagni það sem eftir er vetrar verður frekar lítið um vatn hér næsta sumar.

17 desember 2007

Verðmunur

Veður: - 6,1° / 14,2° léttskýjað.

Þegar ég var á Íslandi var ég svo óheppin að það brotnaði hjá mér ein tönn, sem kom ekki sérstaklega á óvart því ég vissi að hún var orðin léleg. Ég fór til tannlæknisins míns á Íslandi til að fá að vita hvað kostaði að setja nýja tönn í skoltinn á mér, jú eftir að hafa reiknað á sína reiknivél sagði tannlæknirinn mér að minn hlutur í kostnaðinum yrði um 80 þúsund krónur í viðbót við greiðslu frá TR: Ég sagði nei takk við góðu boði, því ég vissi alveg hvað þetta kostaði hér í Portúgal. Ég var hjá tannlækninum mínum hér í dag og hann er byrjaður á verkinu og endanlegur kostnaður verður 32 þúsund. Verkið er unnið nákvæmlega eins hér og á Íslandi notuð sömu efni og sömu verkfæri, svo þetta er óskiljanlega mikill verðmunur. Með greiðslu TR. Er verðmunurinn á einni einustu tönn rúmlega 100 þúsund krónur og þarna er verið að bera saman nákvæmlega sömu aðgerð í báðum tilvikum.

16 desember 2007

Veður

Veður - 6,8° /15° léttskýjað

15 desember 2007

Ánægðir grannar

Veður: - 6,3° 14,2° Léttskýjað

Í gærkvöd þegar var orðið dimmt fór Þórunn og tók mynd af húsinu og nýju sólstofunni hjá nágrönnum okkar, síðan prentaði hún myndina og færði þeim, þau voru svo ánægð með myndina að það var eins og verið væri að færa þeim heilt hús að gjöf. Í dag þegar við litum til þeirra voru þau búin að innramma myndina og hengja hana upp í nýju sólstofunni. Hér fyrir neðan er mynd af myndinni og svo af þeim hjónum og myndinni.

Mynd af mynd 

Mathild og Nanúel

14 desember 2007

´´Oveður, blíðviðri

Veður: - 3,3° / 17,9° léttskýjað.
Þegar ég les um veðurofsann á Íslandi núna hvað eftir annað er ég þakklátur fyrir að fá að njóta þess að vera hér í blíðviðri alla daga. Það eru sjálfsagt ekki margir á Íslandi núna sem hugsa um að slá grasflötina sína núna rétt fyrir jólin, en ég sló okkar grasflöt í gær og það verður sennilega síðasti sláttur á þessu ári.

13 desember 2007

Veður

Veður: - 3,9° / 17,6° léttskýjað

12 desember 2007

Veður

Veður: - 3° / 17,5° léttkýjað

11 desember 2007

Húskuldi

Veður: - 1,9° / 18,6° léttskýjað.

Í gær orðuðum við það við nágranna okkar þau Mathild og Manúel að fara til Porto í dag til að skoða nýju IKEA verslunina þar. Mathild var strax til í að fara en bóndinn hafði engan áhuga á því að fara með, þó hann sé hættur að vinna og hafi lítið við að vera er hann ekki gefinn fyrir að vera að ferðast eitthvað svona að óþörfu. Við fórum af stað klukkan ellefu í morgunn, því það er klukkutíma akstur til Porto og það var meiningin að borða kjötbollur framreiddar að hætti Svía. Mathild kunni vel að meta bollurnar, fannst þær mjög góðar og góð tilbreyting að þurfa ekki að elda sjálf, að vísu var hún búin að finna til eitthvað handa bónda sínum til að borða á meðan hún var fjarverandi. Þó Mathild sé mjög fótfúin og eigi erfitt með gang, fannst henni mjög gaman að skoða sig um í IKEA, enda margt að sjá þar. Það var lítið verslað í þessari ferð, en Mathild keypti sér grind til að þurrka á þvott og eina ljósaseríu sem búið er að setja í glugga á nýju byggingunni yfir veröndina þeirra.
Á heimleiðinni í bílnum hafði Mathild orð á því að sér væri búið að líða svo vel í dag, því sér hefði verið mátulega heitt í allan dag, en heima væri sér alltaf kalt. Þetta segir alt sem segja þarf um hvernig fólki líður hér yfir vetrarmánuðina, því almennt eru húsin sama og ekkert hituð upp og þegar hitinn fer niður í frostmark um nætur verður mjög kalt inni. Það er líka nokkuð algengt að sjá fullorðið fólk setjast undir húsvegg þar sem sóli skín til að reyna að ná einhverri hlýju í krppinn.

10 desember 2007

Nýtt Visa

Veður: 3,1248 / 16,6° léttskýjað.

Smá útréttingar í morgunn, koma pakka í póst og fara í bankann til að fá nýtt Visa kort. Venjulega höfum við fengið nýja kortið sent heim í pósti, en nú þurftum við að fara í bankann og fá nýtt pin númer, vegna þess að nýja kortið er með örgjafa, sem á víst að gera notkunina öruggara. Annars notum við Vusa credit mjög lítið helst ef við pöntum eitthvað á netinu. Hins vegar notum við Visa debet talsvert.
Hjóluðum eftir hádegið, ég þurfti a‘ reyna hvort hjólið væri ekki í lagi eftir viðgerðina og jú það virkaði eðlilega. Við hjóluðum 20 Km.

09 desember 2007

Færri jólaljós.

Veður: 12,4° / 1,1° úrkoma 11 mm, þessi úrkoma féll í gærkveldi og nótt, í dag var að mestu léttskýjað.

Fórum í dag til Aveiro til að sjá mannlífið fyrir jólin. Það var mjög margt fólk á ferli í verslunarmiðstöðvunum og gaman að vera á rölti þar og virða fyrir sér fólkið.
Það vekur athygli að það er minna um jólaskreytingar á vegum bæjarfélaganna í Albergaria og Aveiro en undanfarin ár. Þetta gæti verið vísbending um að það sé að kreppa að í atvinnumálum og þar með tekjum bæjarfélaganna.

08 desember 2007

Bola du RAI ´KAKA KONUNGSINS

Veður. 3,8° / 17,2° Sól fram yfir hádegi, en byrjaði að rigna um sexleitið, sú úrkoma kemur með veðurathugun morgundagsins.

Fórum til Albergaria síðdegis til að sækja hjólið mitt eftir viðgerðina, það var tilbúið á þeim tíma sem lofað var en það bíður betri tíma að nota það. Við fórum í góða gönguferð í Albergaria um leið og við sóttum hjólið, en það var lítið um að vera, því það er einhver heilagur dagur i tengslum við Maríu mey og þar af leiðandi flestar verslanir lokaðar. Markaðurinn sem venjulega er opinn á laugardögum var hafður í gær, svo fólk gæti ótruflað helgað sig Maríu í dag.
Vinir okkar Patricia og Rui komu í kaffi og okkur þótti við hæfi að hafa á borðum köku konungsins, en það er mjög vinsæl kaka hér í landi og er bara á borðum í desembermánuði, breyttum samt út af hefðinni með því að bera fram ís með kökunni og gestir okkar kunnu vel að meta það. Þessi kaka er skreytt með sykruðum ávöxtum og súkkat og eitthvað af þurrkuðum ávöxtum er í kökunni.

07 desember 2007

Jól












Sennilega verið að spá í skartgrip til jólagjafa.















Skreyting í verslun
Posted by Picasa

Jólakort

Veður: 8,4° / 14,3° úrkoma 2mm. Sólinni tókst aðeins að líta til okkar fyrst í morgunn, en svo var rigningarúði frá hádegi til klukkan fimm.

Byrjuðum daginn vel með því að mæta í leikfimina okkar. Um hádegið var farið með jólakortin í póst, en Þórunn er búin að sitja sveitt við að búa til jólakort síðan við komum heim, ætlunin var að kaupa tilbúin kort hér til að senda að þessu sinni, því Þórunn hélt að tíminn væri of skammur til að hún næði að búa þau til í tæka tíð, því við komum svo seint frá Íslandi, en svo bretti hún upp ermar og lauk þessu í tæka tíð.
Þegar kortin voru kominn í póst fórum við út að borða á stað sem er með hlaðborð í hádeginu og okkur líkar maturinn þar mjög vel og enn betur fellur okkur við verðið fyrir matinn 11 evrur fyrir okkur bæði, eða innan við eitt þúsund krónur. Við fórum aðeins í búðir í leiðinni og meðal annars í búðina þar sem ég var grunaður um búðarhnupl á dögunum, en nú steinþagði þjófavörnin sem betur fer.

06 desember 2007

Stór pakki rýrt innihald

Veður: 4°/ 16,5° Dálítil þokumóða í lofti þannig að sólin náði ekki fullum styrk.

Þá er búið að opna jólapakkann frá Ríkisstjórninni til okkar gamlingja og öryrkja, það dugði ekki minna en fimm ráðherra til að opna pakkann svo miklar voru umbúðirnar, en ekki var innihaldið svo þungt að það þyrfti fimm manns til að bera það. Það hefði einn venjulegur jólasveinn farið létt með að koma þessum pakka til skila. Pakkinn var samt ekki alveg tómur en innihaldið var rýrt miðað við öll kosningaloforðin, en það þurfti fimm manns til að segja að það væri bara ekki möguleiki að gera betur við okkur að þessu sinni, en a‘ sjálfsögðu yrði unnið áfram að því að bæta kjör okkar.
Það er ömurlegt til þess að vita að lífeyrissjóðirnir skuli nú í desember láta verða af því að skerða greiðslur til 1600 öryrkja. Þessi ákvörðun hefur verið ljós í eitt ár, en samt er ríkisvaldið ekki tilbúið með neinar ráðstafanir til að leysa þennan vanda og segja það sé ekki mögulegt fyrr en á næsta ári.
Það er einkennilegt að það skuli vera hægt að bregðast við með viku fyrirvara ef það verða náttúruhamfarir úti í heimi, en svo er ekki mögulegt að leysa úr vandamáli hér innanlands sem vitað var að var von á með ársfyrirvara.

05 desember 2007

Bilað hjól

Veður: 5,3° / 17,2° úrkoma 2 mm. Sól af og til fram undirhádegi, en byrjaði að rigna um kaffileitið. Stóri munurinn á rigningunni hér og á íslandi að hér rignir lóðrétt niður en á Íslandi er rigningin lárétt plús vænn skammtur af roki.

Í dag var farið í að pumpa lofti í dekkin á reiðhjólunum, því nú skyldi farið að hjóla sér til heilsubótar, en ferðin varð heldur styttri en til stóð, því gírarnir á hjólinu mínu brotnuðu eftir rúmlega einn kílómetra, svo ég varð að gjöra svo vel og teyma hjólið heim. Nú ekki svo slæmt þetta varð þá bæði göngu og hjólaferð.
Við fórum með hjólið í viðgerð og fáum það aftur á laugardaginn.
Notuðum tækifærið fyrst við vorum komin upp í Albergaria að fá okkur kaffisopa á kaffihúsi sem var opnað á meðan við vorum í Íslandsferðinni. Þetta er reglulega smekklegt kaffihús með mikið úrval af brauðum og kökum. Kaffi á kaffihúsum hér bragðast yfirleitt mjög vel og ekki er hægt að kvarta undan verðinu. Brauð og tveir kaffibollar í dag kostuðu okkur 190,00 Kr.

04 desember 2007

Veiðimenn

Veður: 2,7° / 20,2° Léttskýjað.

Fórum á stúfana í morgunn til að kaupa nýtt ljós á veröndina í stað gömlu seríunnar sem var biluð. Ekkert vantaði upp á að það væri nægt úrval af ljósgjöfum, slöngur og seríur með mismunandi perum. Mín meining var að ljósaslöngurnar væru fallegri en peruseríurnar, en þar var betri helmingurinn ekki alveg sammála mér, en ég ætla að eftirláta lesendum mínum að ráða í hvernig sería var keypt, en það er búið að setja seríuna upp og hún sómir sér að sjálfsögðu vel. Svona svo umhverfið fyrir jólaljósin væri við hæfi fékk veröndin sína hreingerningu í dag með háþrýstiþvottavélinni.
Þegar við vorum búin að kaupa ljósið fórum við niður að strönd til að fá hressandi gönguferð við hafið. Það var alveg rjómalogn og sólskin, en það er ekki oft sem er alveg logn við hafið, en það kemur fyrir. Við gengum meðal annars eftir hafnargarði sem er i000 metra langur og er mikið sóttur af stangveiðimönnum. Það voru mjög margir við veiðar í dag, eða öllu heldur að reyna að veiða, því aldrei hef ég orðið vitni að því að þeir veiði nokkra bröndu, þá þeir séu með langar og vígalegar stangir og sumir með tvær frekar en eina.









03 desember 2007

Skólamál

Veður: 7,9° / 18,3°. Úrkoma 2 mm. Örlítil rigning til hádegis, en eftir það fór að sjá til sólar og um kaffi var orðið léttskýjað.
Settum upp eina ljósaslöngu á veröndina, en þurfum að kaupa aðra slöngu, því pera í gamalli ljósaseríu er brotin og ólíklegt að það sé hægt að finna slíkan forngrip í dag. Fjarlægði í dag appelsínurnar sem voru á jörðinni fyrir neðan appelsínutréð, það var í þrjár tuttugulítra fötur sem fór á safnhauginn.

Graca vinkona okkar kom í heimsókn í dag þegar hún hafði lokið kennsludegi í skólanum sínum, að vanda ræddi hún mikið um skólamál og kennslu, enda er mjög margt hér sem þarfnast úrbóta. Notuðum tækifærið og bökuðum vöfflur, því slíkt hnossgæti brögðuðum við ekki á meðan við vorum á Íslandi og vöfflur er kaffibrauð sem Portúgalar kunna vel að meta.

02 desember 2007

Í stöðu grunaðs búðarhnupplara.

Veður: 0,7° / 16,4° dálítil þokumóða í lofti, svo sólin naut sín ekki alveg til fulls.

Notuðum daginn í dag til að skoða í verslanir og sjá hvað væri í boði hér fyrir jólin. Byrjuðum samt á að fá okkur að borða í einum af mörgum veitingastöðum sem eru í fyrstu versluninni sem við fórum í, það er eins gott að hafa næga orku áður en farið er af stað í svona rölt. Það var margt um manninn í verslunum í dag, enda fá landsmenn hér greidd tvöföld laun um þessi mánaðarmót. Það er eitt sem er örugglega öðruvísi í verslunum hér, en á Íslandi en það er að sjá stórar stæður af saltfiski í hverjum stórmarkaði og fólk að skoða og velja sér fisk í jólamatinn. Við versluðum mjög lítið þarna, þetta var meira svona til að sjá hvað væri á boðstólum og aldrei að vita nema við rækjum augun í eitthvað sem okkur bráðvantaði. Það kárnaði heldur betur gamanið þegar ég gekk í gegnum þjófaleitarhliðið við kassann, því þá fór það að væla, stúlkan sagði mér að koma inn fyrir aftur og fara úr jakkanum og reyna aftur að fara í gegn og aftur heyrðist vælið þá tók hún símann og bað um aðstoð við að fást við svona harðsvíraðan búðarþjóf sem lét sér hvergi bregða við þjófabjöllur. Það kom önnur stúlka, en henni leist greinilega ekki á að fást við svona glæpon svo hún kallaði til krúnurakaðan öryggisvörð í fullum herklæðum, sá gat ekki leyst þetta dularfulla mál þarna á staðnum svo hann bað mig að koma með sér í lítið herbergi þar sem hann reyndi að finna út úr þessu og var greinilega mun stressaðri yfir þessu en ég. Eftir nokkra leit fann hann svo merki í peysu sem ég hafði keypt fyrir nokkru og ég er búin að fara í inn í aðrar verslanir án vankvæða, en þessi kerfi eru greinilega mis næm. Þeim krúnurakaða létti mjög við þennan fund og bað mig afsökunar á ónæðinu og leyfði mér að fara frjáls ferða minna.

01 desember 2007

Veður

Veður: 1,4° / 11,7° alskýjað og örlítil rigning um hádegið.

Buðum nágrönnum okkar þeim Matthild og Manúel út að borða í þakklætisskyn fyrir að gæta hússins á meðan við vorum í burtu og gefa flækingsketti sem er kostgangari hjá okkur að borða.

Það er ákveðið að við verðum hjá þeim í mat næstkomandi aðfangadagskvöld eins og um síðustu jól. Þar verður á borðum hefðbundinn aðfangadagsmatur á portúgalska vísu, semsgt soðinn saltfiskur með káli og næpum.