27 september 2007
Glæsilegt hús
Hér koma myndir af húsinu sem við höfum til afnota meðan við erum á Íslandi. Það verður seint fullþakkaður sá höfðingsskapur að lána okkur þetta góða hús og einkabílinn meðan við erum á Íslandi. Þetta hús er í rolegu hverfi í Kópavogi. Nú bilur regn og rok á húsinu, svo það má með sanni segja aðð það sé ekki hundi útsigandi. Við erum búin að fá sýnishorn af flestum veðurbrigðum síðan við komum. Byrjuðum að fá norðanrok, næsta sýnishorn af verði var bjartviðri og stilla en kalt, það veður var bara í einn dag, hefði gjarnan mátt vera lengur og eins og ég sagði áður er núna rigning og rok, svo það vantar eiginlega ekkert upp á öll veðrabrigði nema hressilegan suðvestan éljagang, en ekkert af þessu kemur á óvart, ég var ekki búinn að gleyma hvernig veðrið á Fróni lætur.
24 september 2007
Komin til Íslands
Það var langur dagur hjá okkur í gær, því við vöknuðum klukkan 5 til að leggja upp í ferðalagið til Íslands. Graca og Arthur mættu stundvíslega klukkan sex til að keyra okkur út á völl. Til London vorum við komin fyrir hádegi og þurftum svo að bíða þar eftir flugi til Íslands til klukkan að verða níu um kvöldið,Hér lentum við svo um klukkan ellefu. Hjörleifur sonur minn sótti okkur út á völl og fór með okkur til Sigrúnar dóttur Þórunnar. Það var gott að komast í rúmið eftir svona langan dag. Það fór ekki á milli mála að við vorum komin til Íslands þegar við komum út úr flugstöðinni í Keflavík, því þar tók á móti okkur sterkur og kaldur norðan vindur og það er búið að vera talsvert hvasst hér í Reykjavík í allan dag.
Í dag fór ég á heyrnar og talmeinastöðina til að láta mæla heyrnina hjá mér, niðurstaðan úr þeirri mælingu er að ég á að fá ný heyrnartæki. Þau fæ ég afhent 10. október.
Nú erum við komin í þetta fína einbýlishús í Kópavogi sem vinir okkar buðu okkur til afnota á meðan við erum hér á landi og ekki nóg með það heldur til að kóróna rausnarskapinn þá fylgdi líka bíll með í pakkanum.
Við erum komin með síma á meðan við erum hér og númerið er : 8574182.

22 september 2007
Síðasti dagur í Portúgal
Veður: 8,9°/28,8° léttskýjað. Næsta veðurathugun frá Portúgal verður væntanlega ekki fyrr en seint í október, því veðurathuganamaðurinn er að fara í frí og enginn til að leysa hann af.
Notuðum síðasta daginn hér til að fara út að borða í hádeginu og svo aðeins að dingla okkur í búðum, það er allt fremur rólegt og afslappað hér í stórmörkuðunum. Það er dálítið einkennilegt að hugsa um hvað mannskepnan er mismunandi í útliti, þegar verið er á rölti í svona stórmarkaði og maður mætir hundruðum manna ,en samt eru engir tveir nákvæmlega eins í útliti.
Þetta verður þá síðasta bloggið héðan frá Portúgal að sinni og svei mér þá ef ég er ekki farinn að sakna Portúgals áður en ég er farinn þaðan.

21 september 2007
Tilbúin til brottfarar
Veður: 113,5°/30,2° léttskýjað í dag, en
I nótt var þrumuveður og gerði regnskúr með því en þetta stóð stutt.
Fórum í leikfimi í morgunn, en verðum af því góða gamni næstu fjórar vikurnar meðan við erum á Íslandi. Þegar heim kom hreinsaði ég svolítið í burt arfa af baklóðinni og á morgunn er meiningin að slá grasflötina, svo verður bara að ráðast hvernig þessu reiðir af næsta mánuðinn.
Manúel nágranni okkar ætlar að líta til með húsinu á meðan við erum í burtu og að venju kom hann hér í dag til að fullvissa sig um að hann væri með á hreinu hvernig á að taka af og setja inn aftur öryggiskerfið ef til þess kæmi að hann þyrfti að fara inn í húsið. Sem sagt fastir liðir eins og venjulega áður en farið er til Íslands.

20 september 2007
Að hlaða sólarbatteríið.
Veður: 10,2°/34,3° léttskýjað.
Fórum niður að strönd í dag, alltaf hressandi að fá sér gönguferð við sjóinn, svo veitir ekki af að hlaða sólarbatteríið áður en farið er norður í dumbshaf.

19 september 2007
Kynjamisrétti?
Veður: 15,8°/33,2° heiðskírt, gola í nótt.
Í dag var undirbúningi Íslandsferðarinnar haldið áfram, farið í búðir til að kaupa lítilræði sem við töldum að okkur vanhagaði um.
Þar sem það er orðið svo lítið sem má taka með sér í farangur þegar flogið er á milli landa, hef ég að undanförnu verið að svipast um eftir léttum náttslopp handa mér til að taka með í ferðalagið, en án árangurs, svo í dag var gerð úrslitatilraun. Það er ekki að sjá í verslunum hér að annað komi til greina en karlar noti náttföt til að sofa í um nætur, en ég er aftur á móti þeirrar skoðunar að maður hátti áður en farið er í rúmið, en skipti ekki um föt. Það var sem sé farið í karladeildina í stórmarkaði í dag til að leita að slopp og á meðan leitin að sloppnum stóð yfir fundust á mig flauelsbuxur, skyrta, peysa og skór á Þórunni og þar með var búið að gefa upp alla von um að finna sloppin, sem var nú eiginlega tilefni ferðarinnar. Leiðin að kassanum var í gegnum náttfatadeild kvenna og jú auðvitað er sjálfsagt að þær sveipi híalíni um sinn kropp á meðan ætlast er til að við karlarnir séum í hnausþykku vaðmáli, sjálfsagt við hæfi að það væri ofið úr hrosshári. Semsagt mitt vandamál leystist með því að kaupa kvenslopp alveg fisléttan.

18 september 2007
Greiðslumat.
Veður: 8,6°/30,9° léttskýjað.
Áfram var haldið í dag við að tína ofan í ferðatöskuna, eitthvað rámar mig í að það sé stundum aðeins svalt á Íslandi, svo nú var fundin til húfa og vettlingar og síðu nærbuxurnar eru líka komnar ofan í töskuna, ekki samt „föðurland“ því í slíka flík hef ég ekki farið síðan ég fór að hafa eitthvað um það að segja í hvers konar fatnaði ég klæðist. Það þótti sjálfsagt í sveitinni að klæðast ullarnærfötum, en eftir að ég komst í kynni við bómullarfatnað hef ég ekki mátt til þess hugsa að láta ull snerta minn viðkvæma kropp, því mér finnst ullin stinga mig svo mikið að ég er alveg ómögulegur. Þetta gengur svo langt að mér finnst óþægilegt að fara í lopapeysu utan yfir skyrtu.
Greiðslumat, er ekki algengt í dag að fólk fari í greiðslumat? Mér skilst að slíkt ferli sé bráðnauðsynlegt í dag og hún Þórunn mín fór í dag í einhverskonar greiðslumat. Hún fór á stofu sem sérhæfir sig í slíkum verkum, þar var henni boðið sæti og hafist var handa við að meta hvernig ætti að greiða henni og svo var líka klippt, ekki veit ég hvort verið var að klippa af skuldahalanum, en heim kom hún ánægð með árangurinn af ferðinni.
Ég er líka búinn að eiga í talsverðum greiðsluerfiðleikum í nokkur ár og ef eitthvað er fer sá vandi vaxandi, því mér gengur æ verr að sjá hvernig lýjurnar á kollinum á mér liggja, en enn sem komið er hef ég ekki farið út í greiðslustöðvun.

17 september 2007
Pakkað
Veður: 13,2°/26,8° skýjað.
Nú er fyrir alvöru farið að telja niður fyrir Íslandsferðina næsta sunnudag, búið að sækja ferðatöskurnar upp á geymsluloft og byrjað aðeins að pakka niður, það er minni hætta á að eitthvað gleymist ef pakkað er niður í rólegheitum.
Í morgunn lukum við, við að mála gluggana í húsinu, það er að segja Þórunn málar en ég get unnið undir málninguna, slípað og svoleiðis.
Ég klippti líka hekkið, svo það ætti að vera í lagi með það næstu fimm vikurnar.

16 september 2007
Víngerð
Veður: 13,5°/33,2° Skýjað af og til í dag, en engin kom rigningin, sem þó var búið að spá.
Hjónin í Frossos voru í mat hjá okkur í dag, en í vikunni fara þau á sínar æskustöðvar á bak við fjöllin til að týna vínber og síðan að troða á þeim í þar til gerðu keri, til að ná safanum úr berjunum. Þegar vökvinn byrjar að gerjast er honum dælt á stálkúta og eftir um tvo mánuði er vínið tilbúið til drykkju.

15 september 2007
Selfoss 60 ára.
Veður: 11,7°/35° léttskýjað.
Ég sá í fréttum í dag að Selfoss er að halda upp á sextugsafmæli sitt sem sérstakt sveitafélag, en áður tilheyrði byggðin við Ölfusárbrú Sandvíkurhreppi. Svona eftir á að hyggja er spurning hvort nauðsynlegt var að skipta þessu sveitarfélagi í tvennt, því nú er búið að sameina þau á ný og bæta Eyrarbakka og Stokkseyri við og nefna byggðina Árborg.
Fyrsta minning mín um Selfoss er að það var farið með mig þangað til að láta bólusetja mig eins og það var kallað. Minningin frá þessum atburði er enn ótrúlega skír í huga mér, eða mynd sem ég hef gert í huga mér frá þessum atburði, því þá hef ég verið mjög ungur. Þessi athöfn var framkvæmd í gamla barnaskólanum sem stóð á bökkum Ölfusár og mér fannst mjög tilkomumikið að sjá þetta stórfljót belja þarna jökullitað, en áður hafði ég bara séð smálæki og áveituskurði í Flóanum, þar sem ég er fæddur og uppalinn. Næsta glögga minning frá Selfossi er þegar farið var gangandi yfir mýrina að heiman að Selfossi til að sjá þegar Ölfusárbrúin fór á hliðina með þeim afleiðingum að tveir bílar fóru í ána, en fyrir harðfylgi björguðust báðir bílstjórarnir, en löngu síðar urðu þeir báðir vinnufélagar mínir.
Þegar ég er svo tíu ára byrja ég skólagöngu ásamt uppeldisbróðir mínum og skóla þurftum við að sækja á Selfoss, en það fór eftir því hvort við gengum þjóðveginn, eða beint yfir mýrina hvað við vorum lengi á leiðinni, ef við fórum þjóðveginn tók gangan eina klukkustund en helmingi skemur beint yfir mýrina.
Þegar við byrjuðum skólagönguna var búið að byggja nýtt skólahús sem mér fannst mjög stór og flott bygging, en þætti ekki stór í dag, því þar voru aðeins fjórar kennslustofur. Þetta hús er notað enn þann dag í dag til kennslu, en er nú bara hluti miklu stærra húsnæðis. Það voru tveir mjög feimnir og óframfærnir sveitapiltar í fötum sem Mamma hafði saumað á okkur í tilefni skólagöngunnar sem hófu sína skólagöngu á Selfossi.
Byggðin á Selfossi var ekki stór á þessum tíma og öll höfðu húsin sem þar voru þá nafn eins og tíðkaðist í sveitum, götuheiti og húsnúmer þekktust þá ekki í svona litlu byggðarlagi.
Mörg af þeim húsum sem ég man eftir frá þessum tíma eru nú horfin og búið að byggja stærri og glæsilegri hús í þeirra stað. Gamla Landsbankahúsið og Tryggvaskáli standa samt enn þó þau hafi skipt um hlutverk, gamla pósthúsið er horfið, sama er að segja um gamla kaupfélagshúsið, verslunina Höfn og Addabúð sem var örsmá verslun alveg fast við brúarsporðinn. Síðast sá ég í fréttum að verið væri að fjarlægja húsið Ingólf til að rýma fyrir nýjum miðbæ á Selfossi. Svona væri endalaust hægt að tína til, en einhvers staðar verður að setja punktinn og ekki verra að setja hann hér en hvar annars staðar.

14 september 2007
Hlusta ???
Veður: 14,1°28,4° þokuloft og skýjað fyrst í morgunn, en orðið léttskýjað um klukkan ellefu.
Í morgun var fyrsti leikfimitími hjá okkur eftir sumarfrí. Það var vinalegt að sjá allt gamla gengið á ný og ekki veitti af að liðka skankana svolítið og teygja sig og sveigja. Á myndinni her fyrir neðan sést hluti af hópnum bera saman bækur sínar eftir fríið. Raunar byrjar fólkið á að spjalla saman í hverjum tíma áður en æfingarnar hefjast. Fólkið hér virðist hafa mjög mikla þörf fyrir að tala, en talsvert minni þörf fyrir að hlusta, allavega virðist mér sem allir séu að tala en mjög fáir að hlusta á það sem sagt er, svo þetta verður oft eins og í fuglabjargi.

13 september 2007
Vandrataður meðalvegurinn.
Veður: 12,2°/31,5° léttskýjað
Á dögunum þegar við fórum í heimsókn "á bak við fjöllin" sagði ég frá því að þar væri vani að bera á borð að minnsta kosti tvöfalt það sem áætlað væri að gestirnir gætu borðað, sem er í sjálfu sér ekki mjög skynsamlegt, en er víst kallað að vera rausnarlegur, gestrisinn og allt það. Við vorum boðin í mat í gærkvöldi og þar var allt annað uppi á teningnum, því það var skammtað eitt bjúga , eða pulsa á mann og var njög skinsamlegt, þó ég hefði ekki lagt í að gera slikt. Vinkona okkar var að kinna okkur þessar pulsur, en þær munu vera nokkuð vinsælar hér en við höfum ekki áður bragðað þær og satt að segja langar mig ekki að borða þær oftar. Hráefnið er klúklinga og svínakjöt ásamt brauði öllu hakkað saman ásamt kryddi reykt og í gær fengum við þetta grillað. Fyrir minn smekk er alt of mikið af brauði notað í þessa framleiðslu. Það var samt fróðlegt að bragða á þessu. með þessu var borið salat og soðin grjón.
Grilluðu bjúgun.

Setið til borðs. Þórunn, Arthur, Graca og Joana.

12 september 2007
Hörð barátta.
Veður: 8,2°/34,6° Léttskýjað.

Þetta er mynd af kálplöntunum sem okkur voru gefna fyrir rúmri viku þegar við vorum í heimsókn á bak við fjöllin. Plönturnar eru svo sannarlega búnar að heija harða baráttu fyrir lífi sínu þessa daga síðan þeim var plantað hér, því það hefur verið mjög heitt á daginn.Við höfum létt þeim lífið eins og hægt er með því að vökva þær vel og reyna að hlífa þeim við sólinni.

11 september 2007
Sulta
Veður. 12,1°/34,6° heiðskírt.
Í gær var Þórunn að búa til tómarsósu og í dag að sjóða ávaxtasultu úr ávexti sem heitir marmelos. Þessi ávöxtur líkist epli, en er mun harðari og ekki hægt að borða hann ferskan, en sultan er mjög góð og alveg ásæðulaust að vorkenna okkur að hafa ekki rabbarbara til að gera sultu, því mér finnst ávaxtasultan mun bragðbetri.

10 september 2007
Flóinn
Veður: 12,1°/30,8°þokuloft og smávegis skýjað í bland fyrst í morgunn, en léttskýjað síðdegis.
Í morgunn fór ég að hjóla á svæði sem ég kalla Flóann, því þetta er á óshólmasvæði Vougaárinnar og er marflatt ,með mörgum síkjum. Þetta minnir um margt á Flóann þar sem ég er fæddur og uppalinn, en er votlendara og fer mikið af því undir vatn á haustin og veturna þegar flóð koma í ána og því er engin byggð á þessu svæði, en landið er nytjað frá nærliggjandi sveitaþorpum, bæði til beitar og ræktunar. Það er ekki eins falleg fjallasýn þarna og er í mínum Flóa, þar sem sá til Eyjafjallajökuls, Þríhyrning, Heklu og á góðum dögum´sá alla leið inn til Jarlhetta á langjökli auk margra annarra fjalla.
Sér í eitt síkið í gegnum sef á bakkanum.
Mynd af hjólinu til að sýna hversu hávaxið sefið á síkisbakkanum er.

Mynd af hraðbraut sem ég þurfti að fara yfir til að komast í flóann.

09 september 2007
08 september 2007
Ekki sukkað í dag
Veður: 10,3°/31,4° að mestu léttskýjað.
Það mætti halda að við værum í stórátaki með að hreifa okkur, því gær fórum við í góða gönguferð niður við strönd og í morgunn hjóluðum við 25 Km. Í dag var bara drukkið vatn á meðan verið var að hjóla, ekkert pizzu sukk eins og í gær.

07 september 2007
Göngur
Veður: 12,4°/35,6° heiðskírt
Fórum niður að strönd í dag til að fá okkur góðan göngutúr þar og svona til að vera viss um að ganga ekki um of á orkuforðann settumst við inn á pizzastað og fengum okkur næringu. Enn er slangur af fólki á ströndinni, enda veðrið mjög gott t. Það var samt fámennt miðað við það sem var í ágústmánuði.
Ég sá í fréttum frá Íslandi að göngur væru byrjaðar, svo ég hélt áfram að ganga þegar ég kom heim og fór þá í göngum með sláttuvélina. Semsagt gangnadagur í Austurkoti í dag, en í talsvert betra veðri en gangnamenn á Íslandi verða að búa við.

06 september 2007
Ferðasaga II
Sunnudagurinn var notaður til að fara á æskustöðvar Alcinu, en þeirra saknar hún enn þann dag í dag. Þetta svæði sem við fórum um í dag er fjöllótt eins og svæði sem við fórum um í gær. Í einum bænum sem við fórum um var mjög stórt yfirgefið verksmiðju hús og korngeymsla. Á þessu svæði var áður fyrr mikil kornrækt, en er nú með öllu aflögð, af einhverjum ástæðum standast Portúgalar ekki öðrum þjóðum snúning. Landbúnaðurinn á mjög undir högg að sækja og svo virðist sem hann sé hægt og bítandi að líða undir lok. Það hlýtur að vera mikið umhugsunarefni fyrir Portúgala hvers vegna nágrannar þeirra á Spáni geta framleitt landbúnaðarvörur fyrir lægra verð en þeir. Loftslag og landkostir eru svipaðir, svo skíringarinnar hlýtur að vera að leita í mann fólkinu sem vinnur við framleiðsluna. Enn er talsverð ávaxtarækt á þessu svæði, en sama sagan þar framleiðnin ekki næg, svo það er viðbúið að hún leggist líka af innan skamms tíma.
Í einum bænum heilsuðum við upp á systir Alcínu og hennar mann, en þau voru við vinnu í verslun sem sonur þeirra á svo það var ekki höfð löng viðdvöl þar. Næst var komið við í kirkju sem trónaði uppi á fjallstindi og gnæfði yfir nágrenni sitt, enda var útsýni frá kirkjunni alveg frábært. Þessi kirkja var byggð í þakklætisskini fyrir bæn sem rættist og er nú áheitakirkja. Kaþólska kirkjan kann vel að nýta sér trúgirni fólks og nú er verið að byggja gríðarmiklar tröppur upp að kirkjunni og á sjö pöllum til beggja handa við tröppurnar eru lítil hús og í hverju þeirra eru styttur sem segja sögu píslargöngu Krists. Þetta fannst okkar Portúgölsku vinum mjög flott, en mér hefði fundist þessum peningum sem fara í þessa framkvæmd verið betur varið í líknarmál. Síðar um daginn komum við í kirkjuna í fæðingarbæ Alsínu, þar sátu þá nokkrar konur á bekkjum og voru að fara með bænir, en svo vélrænn var bænalesturinn hjá þeim að ég var lengi að átta mig á hvort þetta væri flutt af segulbandi, eða kæmi frá þessum konum, en ef þetta gerir þeim gott þá er tilganginum náð. Þessi dagur var sannkallaður kirkjudagur hjá okkur, enda við hæfi á sunnudegi. Á heimleiðinni var stansað til að sjá skrúðgöngu með líkneski úr öllum kirkjum í prófastdæminu, sennilega ekki færri en tuttugu að tölu. Það var komið með líkneskin akandi á pallbílum og að sjálfsögðu var búið að skreyta líkneskin, eða fótstalla þeirra með litfögrum blómum. Að messu lokinni hófst svo skrúðgangan, í fararbroddi fóru tveir riddarar á hvítum hestum og það var mjög merkilegt að sjá hestana ganga í takt við lúðrasveitina allan tímann.
Mér finnst þetta vera mikið prjál og minna á skurðgoðadýrkun og ég fæ ómögulega séð hvað þetta hefur með trú að gera, en fólkið hérna er mjög hrifið af þessu og það nýtir kirkjan sér til hins ýtrasta. Auðvitað gleymist ekki að safna fé til kirkjunnar í leiðinni til að standa undir kostnaði við allt prjálið.
Í hádeginu borðuðum við á veitingahúsi sem frænka José rekur ásamt eiginmanni sínum. Það fengum við mjög vel matreitt fjallalamb, svei mér ef það gaf nokkuð eftir því íslenska.
Um kvöldið áttum við svo rólega stund í húsinu góða.
Þá er kominn mánudagur og tími til að leggja á stað heimáleið. Við komum við í stórmarkaði í Mirandela og þar hittum við ystur Manuels vínbónda, merkileg tilviljun í svo stórum bæ sem Mirandela er.
Á leiðinnheim til Nariu og Manuel, en þar átti að borða hádegismat var komið við hjá konu sem framleiðir kindaost og þar keyptu þau hjón eina tíu osta, því ostar sem framleiddir eru á þessu svæði eru þeir einu sem vert er að leggja sér til munns.
Það endurtók sig sama sagan og í fyrra sinn sem við borðuðum hjá Mariu mjög mikill matur borinn á borð´
Að lokum vorum við svo leyst út með matar og víngjöfum og góðum óskum um vellíðan og góða heilsu. Það er mjög ánægjulegt að hafa fengið tækifæri til að heimsækja þetta góða fólk og kynnast örlítið lifnaðarháttum þess.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)