29 nóvember 2007

Heima er best.

Nú hefjast veðurlýsingar frá Portúgal á ný eftir rúmlega tveggja mánaða hlé. Heimamenn hér segja að það hafi verið mjög sólríkt þennan tíma og rignt allt of lítið. Ég sé að hitinn hefur farið niður í – 6,6° einhvertímann á þessu tímabili sem er meira frost en ég hef mælt hér áður og svo hefur hitinn farið upp í 30,5° sem er eðlilegt að hausti til. Hitinn í nótt fór niður í – 1,7° og upp í 16,3° í dag í sól og logni.

Ferðalagið hingað til Portúgals í gær var reglulega þægilegt, en tók nokkuð langan tíma. Við fórum í loftir í Keflavík 7,15 og vorum komin hingað heim 22,30.
Mikið var nú gott að sjá gamla kotið sitt án ý eftir svona langa fjarveru og að allt var i góðu lagi, það var að vísu ansi kalt inni aðeins 14° en það var fljótt að lagast eftir að við settum hitanirnar í gang. Það er líka allt í góðu lagi í garðinum, þarf bara að snyrta aðeins, en haustið er góður tími til að fara frá garðinum, því þá er gróðurinn farinn að hægja á sér og sumt er að undirbúa sig fyrir vetrarfrí.
Það er alltaf gott að vera kominn heim á ný hvar svo sem það heim er, þetta fann ég sterklega í dag þegar mér fannst gott að heyra gjammið í hundum hér í nágrenninu, sem getur stundum orði svolítið þreytandi þegar þeir gjamma út í eitt langtímum saman, en í dag var þetta gjamm partur af því að vera kominn heim og þá var bara gott að heyra það.



Svona leit út fyrir neðan appelsínutréð, en a' kemur ekki að sök, því það er mun meyra af appelsínum á trénu en við getum borðað.

26 nóvember 2007

Tveir fyrir einn.

Jæja, þá er nú að sjá fyrir endann á þessari heimsókn til Íslands en heimsóknin er orðin rúmlega helmingi lengri en til stóð í upphafi, átti að vera sléttur mánuður en varð rúmlega tveir mánuðir.
Það er búið að vera dálítið þreytandi að bíða eftir að komast að hjá læknum og svo að bíða eftir niðurstöðum úrr rannsóknum, en mest um vert að það tókst að fá niðurstöðu og ljúka þessu alveg á þessum tíma.
Nú er bara að vona að krabbinn verði ekki með neina útþenslustefnu og láti sér nægja þennan litla blett sem hann er búinn að hreiðra um sig á. Sambúðin við hann hingað til lofar góðu, því ég verð ekkert var við hann og vona bara að það verði þannig í framtíðinni.

Ég er farinn að hlakka talsvert mikið til að koma heim eftir allan þennan tíma, þó það hafi farið mjög vel um okkur í þessu góða húsi hér í Kópavogi og það verður seint fullþakkaður sá rausnarskapur eigendanna að lána okkur húsið sitt og bíl, en það er ómetanlegt að kynnast svona góðu fólki.
Það er víst best að tala sem minnst um hvernig veðrið hefur verið þessa tvo mánuði, en mér finnst að það hefði mátt vera ögn betra.

24 nóvember 2007

Takk fyrir vinarhug.

Ég þakka kærlega þeim sem hafa haft samband við mig og veitt mér stuðning í sambandi við veikindi mín, það er mikils virði að finna góðvild og vinarhug fólks þegar erfiðleikar steðja að.

Ég hef oft spáð í hvernig ég myndi bregðast við ef ég sæti fyrir framan lækni og hann segði mér að ég væri kominn með krabbamein, myndi ég brotna niður eða reyna að bera nig mannlega. Nú þarf ég ekki lengur að velta vöngum yfir þessu, því ég er búinn að ganga í gegnum þetta ferli og ég er eiginlega alveg hissa á mér hvað ég tók þessu létt og geri enn, hélt ef til vill að ég fengi bakslag síðar, en það hefur ekki komið enn. Hjálpar mér sennilega að ég hef talsverða trú á að læknavísindin ráði við að halda þessu í skefjum, þó ekki verði um bata að ræða. Nú svo lít ég líka þannig á að ég sé búin að lifa að mörgu leiti þægilegu lífi það sem af er, allavega án allra stór skakkafalla og þegar maður er búinn að lifa í 72. ár getur varla skipt höfuðmáli hvort árin sem eftir eru verða fimm tíu eða fimmtán, aðalatriðið er að njóta þeirra daga sem eftir eru, hvort sem þeir verða fáir eða margir.

23 nóvember 2007

Góðu fréttirnar.

Þegar það kom í ljós að krabbi var búinn að hreiðra um sig í blöðruhálskirtlinum var ákveðið að ég færi í beinaskan til að ganga úr skugga um að krabbinn hefði ekki komist í beininn, heldur héldi sig á afmörkuðu svæði.
Ég átti að mæta á röntgendeild í gærmorgunn fyrir sólarupprás, en það er nú ekki tiltakanlega snemma sem sólin nær að sýna sig á morgnana á þessum árstíma. Þarna var byrjað á að sprauta í mig einhverju efni sem átti að dreifast út í beinin og til að auðvelda það ferli átti ég að drekka mikið af vatni, sem ég og gerði samviskusamlega, en það fylgdi líka með í fyrirmælunum að tæma vel þvagblöðruna fyrir myndatökuna.
Þrem tímum siðar var svo hafist handa við að skanna mig, það er svolítið undarleg tilfinning að liggja þarna á bekk og vita að það sé verið að skoða í manni alla innviði og ég fékk staðfestingu að svo er í raun og veru þegar mér var sagt að það væri of mikið í þvagblöðrunni og ég yrði að tæma hana betur svo hægt væri að ljúka verkinu. Það er eins gott að tæma alveg hugann á meðan höfuðið er skannað, mé hlýtur að hafa tekist það, því ég sá ekki neinn skelfingarsvip á konunni á meðan toppstykkið var í skoðun.
Nú koma góðu fréttirnar, heimilislæknirinn hringdi í mig áðan og sagði að það væri allt í góðu lagi með beinin hjá mér, þau væru alveg hrein eins og hann orðaði það. Hinsvegar væri slit í liðamótum hér og þar sem væri bara eðlilegt eftir talsverða notkun. Það er svo að sjá að það hafi ekki verið reiknað með að nota mannsskrokkinn í svona mörg ár þegar hann var hannaður. Það virðist ekki hafa verið reiknað með að nota þetta fyrirbæri nema svo sem í fimmtíu ár, en nú er í mörgum tilfellum búið að tvöfalda notkunartímann án þess að gera nokkrar endurbætur til að skrokkurinn þoli lengri notkun. Það veitti ekki af að setja einhverja nefnd í þetta mál og það fyrr en síðar.

21 nóvember 2007

Njóta dagsins í dag.

Ég fór til læknisins í dag til að fá að vita hver niðurstaðan var úr sýnatöku úr blöðruhálskirtlinum og þar fékkst staðfestur sá grunur sem blóðrannsókn gaf til kinna að það væri komið krabbamein í kirtilinn. Góðu fréttirnar eru að þetta er ekki alvarlegra en svo að það á að vera hægt að halda þessu í skefjum með lyfjagjöf og ég er nú þegar búinn að taka fyrstu töfluna. Svona til öryggis á ég að fara á morgun í beinaskan.
Þessi niðurstaða kom mér ekki á óvart og ég var eiginlega búinn að sætta mig við hana áður en ég fékk þetta staðfest og þar af leiðandi hefur þetta bara eiginlega engin áhrif á mig, bara eitthvað sem maður verður að lifa með og gera gott úr, halda sínu striki og njóta þess sem dagurinn í dag hefur upp á að bjóða.

20 nóvember 2007

Duglegur strákur

Myndirnar hér fyrir neðan eru af Ebba vini mínum í gömlum íslenskum þjóðbúningi, það út af fyrir sig væri ekki sérstaklega frásagnarvert þó hann klæðist slíkum búningi, en það sem mérr fannst mjög merkilegt að búningurinn er handsaumaður af Ebba, hver einasta flík. Hann meira að segja smíðaði tölurnar á búninginn, en fékk einhvern til að prjóna húfuna og gera skóna fyrir sig.
Neðst er svo mynd af þeim hjónum Dagbjörtu og Ebba




Posted by Picasa

19 nóvember 2007

Maður líttu þér nær.



Bátur á siglingu í Vestmannaeyjahöfn.

Það sannast rækilega á mér að oft er leitað langt yfir skammt. Ég er búinn að vera nokkuð duglegur við að ferðast um dagana til að sjá fjölbreytt landslag og mismunandi mannlíf og alltaf notið þess sem fyrir augu hefur borið á hverjum tíma. Einn var sá staður sem ég ætlaði mér alltaf að skoða, en kom aldrei í framkvæmd að heimsækja, ef til vill vegna þess að það var svo stutt að fara þangað, að það mátti alltaf bíða aðeins lengur. Þessi merki staður er Vestmannaeyjar og þar steig ég semsé niður fæti í fyrsta sinn núna um helgina og fannst mikið til um það sem fyrir augu bar.
Við lögðum upp með Herjólfi frá Þorlákshöfn um hádegi á laugardag og komum aftur til sama lands um kvöldmat á sunnudag eftir ánægjulega dvöl í Eyjum. Þar sem ég er nú enginn sjóhundur átti ég frekar von á að verða sjóveikur, en það reyndist óþarfi því skipið hreyfðist ekki alla leiðina, þetta var næstum eins og að sitja í stól inni í stofu.
Við erum svo heppin að eiga kunningjakonu í Vestmannaeyjum og hún tók á móti okkur á bryggjunni og ók síðan með okkur um alla eyjuna bæði um gamla hluta eyjunnar og eins um þann hluta sem nýja hraunið þekur.
Ég er búinn að sjá margar myndir og hlusta á margar lýsingar á Vestmannaeyjum og staðháttum þar, en samt kom flest sem bar þarna fyrir augu mér verulega á óvart, svo ég ætla ekki að reyna að lýsa því fyrir öðrum.
Án frábærrar leiðsagnar og gestrisni kunningjakonu okkar hefði þessi ferð ekki orðið svona ánægjuleg og færi ég henni hér með mínar bestu þakkir fyrir mótökurnar.

15 nóvember 2007

Það sem vel er gert.



Undanfarið hefur mikið verið ritað og rætt um aðstöðu og aðbúnað aldraðra og ekki verið spöruð stóru orðin um skammarlega aðstöðu þeirra, ekki efast ég um að þar er margt sem betur má fara, en það verður líka að taka eftir því sem vel er gert og geta um það, ekki síður en það sem er miður gott.
Ég átti þess kost að koma á vinnustofu heimilisfólks á Hrafnistu í Reykjavík í gær og fannst sú aðstaða sem heimilisfólkinu er búin þar vera mjög góð. Þarna er opið frá klukkan níu til fjögur alla daga og fimm leiðbeinendur til að aðstoða fólkið, því færni margra sem eru að föndra þarna er talsvert farin að skerðast, svo þeir þurfa oft á aðstoð að halda, en það er gaman að sjá hvað margt er haganlega gert hjá þessu fólki.

11 nóvember 2007

Frá, frá Fúsa liggur á.


Skemmtilegt að sjá hvernig hraunið hefur fengið að vera ósnert á milli þessara húsa í Hafnarfirði.
Frá frá Fúsa liggur á. Mig minnir að ég hafi séð þennan texta í teiknimyndabók fyrir börn einhvern tímann á síðustu öld. Það skiptir svo sem ekki máli hvaðan þessi setning er komin, en henni skýtur óneitanlega oft upp í huga mér í umferðinni hér á Íslandi, því hér er hægt að láta sér detta í hug að þessi Fúsi sé undir stýri á flestum bílum, svo mikill er flýtirinn á öllum og tillitsleysið í umferðinni.
Á laugardaginn varð ég því harla kátur þegar ég sá hið gagnstæða virkilega tillitssemi við mig. Ég fór út úr bílnum til að taka mynd og þegar ég þurfti að ganga yfir akbrautina að bílnum aftur og var búinn að bíða meðan nokkrir bílar þeyttust hjá með Fúsa undir stýri kom hvítur bíll og nam staðar og beið á meðan ég fór yfir götuna. Vegna þess hve sjóndapur ég er sá ég ekki þennan tillitssama bílstjóra, en hafði orð á því við Þórunni að það væri ánægjulegt að finna einn tillitssaman Íslending, ertu að meina þennan sem var á hvíta bílnum, spurði hún. Jú einmitt hann var svo tillitssamur við mig, ég er hrædd um að það sé ekki Íslendingur að uppruna, því maðurinn var þeldökkur á hörund. Já einmitt það.

07 nóvember 2007

Brunalykt

Ilmur í lofti vekur oft upp ýmsar minningar sem við tengjum við þann ilm, ilmvatnslykt vekur upp ljúfar minningar, angan af hangikjöti o og skötu minnir marga á jólin og þannig mætti endalaust telja. Hinsvegar í morgunn þegar ég fann lykt af brunnu skinni varð það til þess að rifja upp fyrir mér þegar ég og uppeldisbróðir minn vorum að svíða lambshausa og lappir í gamla daga. Nágranni okkar bjó svo vel að eiga handsnúna smiðju sem við fengum að láni til að sinna þessu verki. Stundum kom það fyrir að einhver hár væru eftir á hausnum þegar búið var að svíða og þá var glóhitað járn og farið með það á þennan blett til að fjarlægja hárin og þá kom þessi sérkennilega lykt af brunnu skinni. Nákvæmlega þessa sömu lykt fann ég í morgunn, en það var ekki verið að svíða lambshaus, heldur mannshaus og það minn eigin, svo ég var þolandinn en ekki sá sem sá um að svíða, en að ferðin var sú sama, það var notað glóandi járn við að svíða mig, þó það væri hitað með rafmagni í stað þess að bregða því í kolaglóð.
Sem betur fer var tilgangurinn með því að svíða minn haus ekki sá að gera hann hæfan til átu heldur var verið að fjarlægja það sem læknirinn kallaði ellismell af kinninni á mér og var ekki til prýði, en að ferðin sem notuð var við þetta verk varð til að vekja þessar minningar hjá mér.

05 nóvember 2007

Hurðir.

Það er eins og hurðir leggi mig í einelti þessa dagana og samt veit ég ekki til þess að ég hafi gert þeim neitt til miska nema síður sé, því ég loka hurðum yfirleitt varlega og gæti þess að þær skellist ekki. Sællar minningar þá lokaði útihurðin hér í húsinu mig úti síðastliðinn föstudag og alveg að tilefnislausu að því er mér fannst. Óttaleg smámunasemi að vilja ekki opnast þó lykillinn væri innan við hurðina í stað þess að vera utan við hana. En nóg um þessa hurð, en svo tók önnur hurð upp á því að stríða mér í morgunn. Svo var mál með vexti að ég átti tíma hjá tannlækni klukkan hálf tíu í morgunn. Tannlæknirinn er staðsettur á Laugaveginum í gömlu húsi innan við hlemm, eitt af þessum þar sem eru tveir inngangar hlið við hlið. Það var kaldur vestan strekkingur þegar við vorum þarna á ferð og hugsuðum okkur því gott til glóðarinnar að komast í skjóli, eða öllu heldur að láta feykja okkur í skjól. En þá sagði hurðarskömmin sem við reyndum við bara nei takk ég opna sko ekki fyrir ykkur. Við héldum að tannlæknirinn hefði orðið of seinn og tróðum okkur inn í dyraskot til að fá skjól fyrir kuldanum, en þegar tíu mínútur voru liðnar og ekki sást til tansa og við að verða frosin í hel, litum við aftur á hurðina og þá kom í ljós að við höfðum farið hurðarvillt og tannlæknirinn var búinn að opna sína hurð fyrir löngu.
Það er auðvitað ekki rétt að kenna saklausum hurðum um sinn aulahátt, en nú er ég alveg með það á hreinu að hurðin hjá tannlækninum er græn en ekki rauð.

03 nóvember 2007

Húsagerð

Ég var á rölti um Kópavoginn í dag með myndavélina ekki síst til að festa á mynd mismunandi húsagerðir. Það er fróðlegt að sjá nútíma byggingalist, en svei mér þá ef litla húsið í einfaldleik sínum höfðaði ekki mest til mín.
Ef smellt er á myndir hér til hægri á síðunni eru fleirri myndir héðan úr Kópavognum.



Posted by Picasa

02 nóvember 2007

Útilokaður


Merkilegt hvað svona smáhlutur getur verið ómissandi.
Útilokaður, það er ekki gott að vera útilokaður frá einhverju sem mann langar til að gera, en sem betur fer er oft mögulegt að finna aðra leið að settu marki, en að lenda í því að loka sig úti, er dálítið annarrar merkingar og getur verið alvarlegra mál eins og ég mátti reyna í dag.
Ég var einn heima í dag, því Þórunn brá sér til Akureyrar ásamt dóttur sinni og tengdasyni til að vera viðstödd frumsýningu á leikriti þar sem dótturdóttir hennar sér um tónlistina. Ég ákvað að vera heima, því ég nennti ekki að aka svona langa leið fyrir eina leiksýningu, ekki síst vegna þess að ég sé ekkert hvað fram fer á leiksviðinu. Leiksýningar voru eitt sinn nefndir sjónleikir ef ég man rétt og því hæpið að það henti vel fyrir sjónskertan mann. Þórunn var búin að hafa talsverðar áhyggjur af því að ég færist úr leiðindum ef hún væri ekki heima, en ég reyndi að fullvissa hana um að ég mundi lifa þetta af þó mér leiddist eitthvað. Eitt af því sem ég ákvað að gera til að stytta mér stundir var að fara í góðan göngutúr og láta nú verða af því að ljúka hringferð hér um Kársnesið í Kópavogi. Við höfum bara einn lykil að húsinu og ég hef séð um að halda honum til haga og geymt hann í úlpuvasa mínum og venjulega að gætt áður en ég fer út úr húsinu hvort lykillinn sé ekki örugglega á sínum stað í vasanum, en í dag gleymdi ég þessari varúðarráðstöfun, ef til vill vegna þess að ég var með hugann við að setja á öryggiskerfið um leið og ég fór út, en Þórunn hefur séð um að setja það á því stafirnir á því eru ekki gerðir fyrir sjónskerta.
Þegar ég var búinn að ganga nokkur spöl þreifaði ég ofan í vasann og mér til mæðu fann ég engan lykilinn í vasanum, dálítið ónotaleg tilfinning. Ég ákvað að halda mínu striki með að ganga þennan hring sem ég hafði ákveðið að fara um nesið og leysa vanda málið með lykillinn að því loknu.
Ég er svo heppinn að það býr ungt og elskulegt fólk hér í kjallaranum og ég ákvað að leita á náðir þess með hjálp og það brást mjög vel við hringdi í bróður konunnar sem á húsið sem við erum í og hann kom á stundinni og fór og sótti lykil til sonar hjónanna og þvílíkur léttir þegar hurðin opnaðist.
Þegar þessu var lokið bauð bróðirinn mér með sér heim í kaffi, svo það má segja að þetta ævintýri hafi endað vel, allavega fékk ég lítinn tíma til að láta mér leiðast.

30 október 2007

Skammdegi

Þegar ég hef verið að koma í stuttar heimsóknir til Íslands frá birtu og il í Portúgal, þá hef ég oft verið að fjasa um hvers konar orkubruðlaðar íslendingar væru. Þarna á ég við að fólk lætur ljós loga í öllum herbergjum híbýla sinna hvort sem nokkur er þar inni eða ekki, nú hins vegar þegar ég fer að dvelja hér til lengdar í skammdeginu sé ég að það er full þörf á að nota lýsingu svona mikið. Þegar ég vaknaði í morgunn klukkan að ganga níu var enn rokkið og ekkert við það að athuga, en þegar komið var hádegi og enn bara almennilega ratljóst inni og enn er talsvert langt í svartasta skammdegið varð mér ljóst að það er ekki að ástæðulausu að fólk lætur ljósin loga allan daginn.

28 október 2007

Heitt og kalt.

Þessi mynd ætti að vera dæmigerð fyrir land elds og ísa, því þarna gefur að líta snævi þakin fjöll og gufur frá virkjuninni við Hellisheiði.

Posted by Picasa

Snjóföl.

Í morgunn þegar ég leit út var komið aðeins snjóföl og það er í fyrsta sinn í tvö ár sem ég lít slíkt fyrirbæri augum. Snjórinn er falllegur og góð tilbreyting að fá hann núna og fá hvíld frá roki og rigningu sem ráðið hafa ríkjum að undanförnu í veðrinu. Það er verst með fylgikvillana sem fylgja snjónum og þar á ég við að það er oft erfitt að komast leiðar sinnar og svo er alveg ófrávíkjanlegt að það verður að vera kalt í veðri svo það sé snjór og mér líkar kalt veður ekki vel.


Posted by Picasa

26 október 2007

Músagangur.

Fyrir nokkru fékk ég ný stafræn heyrnartæki, en þó þau gerðu það að verkum að ég heyrði mun betur en áður átti ég samt dálítið erfitt með að greina almennilega þegar ég hlustaði á tal og samræður, Þórunn kvartaði yfir að ég heyrði lítið betur en með gömlu tækjunum.
Í morgunn lét ég svo verða af því að fara á Heyrnar og talmeinastöðina og athuga hvort hægt væri að ráða bót á þessu vandamáli. Sérfræðingurinn tók tækin og tengdi við tölvu og hækkaði þá tíðni sem tal er á og nú finnst mér mun auðveldara að fylgjast með tali. Mér finnst merkilegt að það skuli vera mögulegt að stilla tækin á ákveðna tíðni, svo þau nýtist betur. Ég var hvattur til að koma aftur ef það væri eitthvað sem ég teldi að betur mætti fara.
Á heimleiðinni komum við, við hjá Blindrafélaginu og fengum lánaðan spilara til að hlusta á hljóðbækur sem við erum með að láni og þar næst fórum við á Sjónstöðina og það fengum við lánaða tölvu handa Þórunni, svo nú erum við komin með sitt hvora tölvuna eins og heima í Austurkoti.
Fyrir mér er tölvumús og tölvumús ekki það sama, mér finnst alveg ómögulegt að nota þessar venjulegu mýs sem verður að skarka með aftur á bak og út á hlið á borðinu og oftar en ekki komast ekki nógu langt svo það verður að lyfta þeim upp og byrja að nýju, nei ég vil sko hafa kúlumús sem alltaf er kyrr á sama stað á borðinu og nú er ég komin með eina slíka sem ég fékk hjá dóttur minni og þvílíkur munur að vinna við tölvuna núna.
Fórum í gönguferð í dag, en tvo undanfarna daga hefur ekki verið hundi útsigandi fyrir roki og rigningu, fengum að vísu smávegis slyddu í gönguferðinni í dag, svona rétt til að minna á að við værum á Íslandi í gönguferð.

23 október 2007

Gamalt og nýtt.

Þá er búið að taka síður nærurnar í brúk og veitir ekki af til að halda á sér hita í gönguferðum. Í morgunn gengum við upp með Kópavogslæknum, þar til við komum á móts við smárann, þá fórum við til vinstri upp á hálsinn og þaðan tók ég myndina sem er hér á síðunni. Þessi mynd sýnir gamla og nýja tímann, litla húsið er byggt 1932 og hefur verið stórhýsi á þeim tíma, en sýnist agnarsmátt í samanburði við glerhöllina sem verið er að byggja í Smáranum og nýju kirkjuna við hliðina á litla húsinu.

22 október 2007

Smár en ræður samt.

Ég hef lítið gert að því að blogga eftir að ég kom til Íslands og til þess liggja aðallega tvær ástæður, sú fyrri var að mér þótti óþægilegt að skrifa á lyklaborðið á fartölvunni, en nú er búið að bæta úr þeim vankanti með að kaupa annað lyklaborð við fartölvuna. Númer tvö var að það var svo mikið annríki við að heimsækja fólk að það gafst lítill tími til að skrifa.
Nú eru allar forsendur breyttar, því ef upphaflega áætlunin sem við gerðum þegar við lögðum upp í Íslandsferðina hefði gengið eftir þá værum við að pakka niður í dag og legðum á stað heim á morgunn, en nú er búið að fresta heimkomunni til 28. nóvember, svo ég geti farið í meiri rannsóknir með blöðruhálskirtilinn. Svona er lífið, við erum að reyna að gera einhverjar áætlanir fram í tímann, sem standast misvel og í þessu tilviki er það blöðruhálskirtillinn sem vegur aðeins nokkur grömm að mínum 77 kílóum sem verður til þess að ég verð að breyta fyrri áætlun, en eins gott að taka fullt tillit til hans þó lítill sé ef ekki á að fara illa.
Það væsir ekki um okkur í þessu góða húsi sem við höfum til umráða hér og nú gildir að vera duglegur að nota þær stundir til útiveru þegar veðrið er sæmilegt, ég bið nú ekki um meira en það, enda væri það varla raunhæf ósk hér á landi. Það var mjög gott veður í g´r sunnudag og þá fórum við tvisvar í gönguferð og eins fórum við út í morgunn á meðan veðrið var skaplegt, eins gott því nú er komin grenjandi rigning og rok.
Ég læt það alveg vera að reyna að skrifa lýsingu á veðrinu hér á hverjum degi eins og ég gerði í Portúgal, því veðrið hér er svo breytilegt.

Í kópavogi

Myndir frá höfninni í Kópavogi

























Horft yfir voginn til Garðabæjar.
Posted by Picasa

20 október 2007

Smitandi??

Ég fer að halda að ég hafi verið fljótur að smitast af íslandsæðinu, en þar á ég við að hér virðast allir vera að flýta sér og telja sér trú um að þeir hafi ekki tíma til neins, jafnvel þó ekkert sérstakt sé um að vera. Allavega kemur samfélagið hér mér þannig fyrir sjónir. Ég hlýt að vera orðin heltekinn af þessari vitleysu, því ég hef talið mér trú um að ég hafi ekki haft tíma til að blogga að undanförnu, en það hefur að vísu verið mikið að gera við að heimsækja fólk, því manni langar til að geta heilsað upp á sem flesta.
Samkvæmt áætlun stóð til að fara heim til Portúgals 23. þessa mánaðar, en nú er búið að fresta brottför héðan til 28. nóv vegna rannsóknar sem ég þarf að fara í vegna blöðruhálskirtilsins og mér finnst mun betra að fara í þessa rannsókn hér en í Portúgal, bæði er að ég treysti heilbrigðiskerfinu hér mun betur en því í Portúgal og svo er mikill munur að geta tjáð sig á sínu tungumáli.

Við erum svo heppin að hafa einbýlishúsið sem við erum búin að vera í síðan við komum hingað áfram á meðan við erum hér, svo það væsir ekki um okkur þó ég sakni Portúgals. Nú er bara að stilla sig inn á daglegt líf hér, það byrjaði eiginlega í dag með því að þrífa gólfin í íbúðinni og elda sér grjónagraut og borða með honum lifrarpylsu, sem bragðaðist mjög vel. Næst á dagskrá er að herða sig upp í að fara í gönguferðir, þó veðrið sé ekki alveg upp á það besta. Þegar maður ætlar að vera í einn mánuð hér, er í lagi að slá slöku við hreyfingu, en þegar útlit er fyrir að mánuðirnir verði tveir, gengur slíkt kæruleysi ekki upp.

14 október 2007

Hvíslari

Það er ábyggilega löngu kominn tími til að ég láti vita af mér á blogginu, svona að minnsta kosti láta vita að ég sé ekki alveg hættur að senda línu þangað. Það hefur bara verið talsvert að gera í að heimsækja fólk og njóta samvistum við það, sem mér hefur fundist mikið mikilvægara en að sitja við tölvuna. Ég lít þannig á að ég geti setið við tölvuna þegar ég kem heim, en þá hef ég ekki tækifæri til að hitta ættingja og vini.
Ég er búin að fá ný heyrnartæki og það er mjög mikill munur hvað ég heyri betur með þeim en gamla tækinu, mér finnst það vera álíka munur og þegar ég fékk fyrst heyrnartæki. Maður gerir sér ekki almennilega grein fyrir því hvað heyrnin er orðin léleg fyrr en maður er búin að fá nýtt heyrnartæki og fer þá allt í einu að heyra umhverfishljóð sem maður hafði ekki hugmynd um. Ég heyri líka betur í sjálfum mér en áður, svo ég fór að lækka róminn, sem verður til þess að allir sem í kring um mig eru verða að fá sér heyrnartæki ef þeir ætla að heyra hvað ég er að hvísla, því ég talað víst fremur lágt áður. Málið er bara að mér finnst svo þægilegt að tala lágt, á erfitt með að beita röddinni.