19 desember 2006

Fjárhúsið


Veður:- 0,5°/15,3° léttskýjað.

Myndin hér fyrir neðan er af jólaskreytingu í slökkvistöðinni í þjónustubænum okkar Albergaria. Það gefur víða að líta núna fyrir jólin svona skreytingar af mismunandi stærð og gerð.
Fjárhúsið ásamt fjölskyldu þess finnst líka á flestum heimilum hér í landi. Sumir búa þetta til sjálfir, en svo er líka hægt að fá þetta keypt í verslunum af mismunandi stærðum og gerðum.

18 desember 2006

Skólastarf.

Veður: 3°/15,7° þoka í morgunn, síðan mistur en að lokum léttskýjað.

Joana var hér í pössun í morgunn, því Mamma hennar þurfti að mæta á fund.
Þær borðuðu svo hjá okkur mæðgurnar, svo hádegismatur var seinna en vant er á þessu heimili. Graca reiknaði með að vera komin af fundinum klukkan eitt, en af fenginni reynslu reiknuðum við ekki með að hún kæmi fyrr en hálftíma síðar en hún reiknaði með og það reyndist rétt.
Starf kennara hér virðist að mestu fara í að sinna skrifræðinu, það virðist þurfa að fylla út eyðublað fyrir hvert viðvik sem gert er, en svo vita kennararnir ekkert hvað verður um þennan pappír allan sem þeir senda frá sér.
Fundurinn í dag var til þess að kennararnir gætu rætta saman um hegðun nemenda sinna, en ef nemandinn á við einhver vandamál í námi , eða hegðun að stríða er lítið eða ekkert um úræði til bóta handa honum. Það er því vandséð hvert gagn slíkur fundur sem þessi gerir.

17 desember 2006

Veður : 1,5°/15,6° léttskýjað.

Fórum síðdegis til Aveiro, því Þórunn hafði áhuga fyrir að taka myndir af ljósaskreytingum þar þegar farið væri að rökkva.
Við byrjuðum á að fara í stóra verslunarmiðstöð, þar sem við fengum okkur síðdegiskaffi áður en myndatakan hæfist. Þar inni tók Þórunn fullt af myndum, en eftir það fórum við í miðbæ Aveiro þar sem Þórunn tók mikið af myndum úti, enda er þar fullt af fallegum ljósaskreytingum.
Sem sýnishorn læt ég fylgja eina mynd sem ég tók af bát á síkinu sem er í miðbænum.

16 desember 2006

Veislusalur

Veður: - 1,3°/16° léttskýjað.

Þórunn notaði morguninn til að skreyta húsið fyrir jólin ja reyndar bæði úti og inni, því veröndin státar líka af jólaskrauti.
Það eru líklega liðnar um tvær vikur síðan ég sagði frá því að ég væri búin að slá grasflötina í síðasta sinn á þessu ári, en það var ekki rétt, því í dag fannst mér vera komið það mikið gras að það væri nauðsynlegt að slá einu sinni enn. Það er ekki amalegt að finna grasilm í lofti svona rétt fyrir jólin. Það eru sennilega ekki margir á Íslandi sem tengja saman grasilm og aðventu.

Graca vinkona okkar bauð okkur til sín í dag til að sýna okkur hvað veislukjallarinn sinn væri orðin flottur, en fyrsta veislan á að vera þar í kvöld.
Það var stolt húsmóðir sem sýndi okkur hversu fín aðstaða þetta væri.
Ég læt fylgja með mynd sem ég tók þarna í dag, en ég tek það fram að það var eftir að setja dúk á borðin þegar ég tók myndina. Það var meiningin að fólkið sitji við langborðið. Maturinn sem á að vera er keyptur af veitingahúsi og það borgar hver fjölskylda fyrir sig.
Venjan hefur verið sú að þessar fjölskyldur sem koma þarna saman í kvöld hafa farið saman á veitingahús einu sinni á ári, en þar sem Graca hefur yfir svona “fínu” húsnæði að ráða þótti tilvalið að nota það.
Fólk hér í landi kippir sér ekki upp við að sitja í kulda við að borða, því það er almennt lítið eða ekki kynnt í heimahúsum, helst er að það sé arinn í einu herbergi í hverri íbúð og mörg veitingahús eru án upphitunar enn, þó það hafi fjölgað talsvert núna á seinni árum þeim veitingastöðum sem hafa einhverja upphitun.

15 desember 2006

Leti????

Veður: - 1,8°/17,8° heiðskýrt. Eins og sjá má á lágmarkshitanum fraus örlítið hér í nótt.

Við fórum í leikfimi í morgun, ekki veitti af eftir sukkið á litlu jólunum í gær.
Ég var held ég búin að minnast á að við hefðum verið að skoða þrekæfingatæki til að hafa hér heima. Nú vorum við búin að ákveða að fjárfesta í slíku tæki, svo við fórum til Aveiro til að skoða markaðinn betur. Fórum í stóra íþróttavörubúð það sem var talsvert úrval af tækjum eins og við vorum að spá í. Þau tæki voru portúgölsk og í þeirri verslun var þeim tækjum talið það helst til tekna að það væri ekki langt að senda þau, ef þau þyrftu viðgerðar við. Einhvern veginn treystum við ekki almennilega á vörugæði portúgölsku framleiðslunnar, svo við völdum frekar að eiga viðskipti við verslun sem var með frönsk tæki, en framleidd í Kína. Það er að vísu nokkuð langt að fara til að fá tækið viðgert ef það þarf að fara með það til framleiðslulandsins.
Ég kalla þetta tæki skíðagönguvél, því það er staðið á því og gengið um leið og haldið er í stangir, sem eru hreyfðar eins og skíðastafir. Þannig að það fæst talsvert mikil hreyfing á allan skrokkinn þegar þetta tæki er notað.
Nú er bara eftir að sjá hversu duglegur maður verður við að nota þetta tæki, en það var keypt í þeirri góðu trú að letin réði ekki of miklu, en hún er lunkin að ná sínu fram, þrátt fyrir góðan vilja hjá manni til að snúa á hana.

14 desember 2006

Matur matur.

Veður: 0,4°/18,9° Heiðskýrt.

Í góða veðrinu í morgunn vorum við að vinna í garðinum. Þórunn klippti rósirnar niður og gróðursetti sprota af rósum sem nágrannakona hennar gaf henni, afbrigði sem við áttum ekki. Hér er nóg að stinga afklipptum legg af rós ofan í moldina um þetta leiti árs, þá rótar hann sig og ber blóm næsta sumar.
Ég klippti hekkplöntur og setti safnhaugamold í spildu sem á að nota fyrir bóndabaunir, á eftir plægði ég svo spilduna.
Klukkan þrjú mættum við svo á litlu jólin með leikfimi systkinum okkar. Þetta voru tveir flokkar sem héldu litlu jólin sameiginlega, svo þetta voru nær fimmtíu manns þarna.
Það komu allir með mat með sér og það var ekki verið að klípa það við nögl sér. Maturinn sem settur var á borðið hefði örugglega verið yfirdrifinn handa tvö hundruð manns.
Einhverjar leikfimisystra minna höfðu greinilega farið út í hænsnahúsið sitt í gær og snúið eina af sínum hamingjusömu hænu úr hálsliðnum og nú var hænan komin þarna á borðið steikt og niðurbútuð og bragðaðist bara vel.
Það er mikill munur á kjötinu af hamingjusömu hænunum og þeim sem eru aldar upp í búrum, kjötið af þeim fyrrnefndu er mun seigara.
Einnig var verið með steikt svínakjöt og ein konan kom með kjötkássu í stórum potti. Nú svo voru auðvita saltfiskbollur, en þær þykja alveg ómissandi á hverju hlaðborði.
Þarna voru líka nokkuð mörg afbrigði af kökum.
Við fórum með eplaköku, sem líkaði vel, en það þorði enginn að bragða á smákökunum sem við vorum með. Fólk veit einfaldlega ekkert um smákökur. Ein konan spurði Þórunni hvort þessar kökur væru gerðar úr svínafitu og súkkulaði.
Leikfimikennaranum var fært úr í jólagjöf frá nemendunum, sem framtakssamar konur í hópnum höfðu séð um að kaupa.´Það var svo talsvert hallærislegt að sjá til þeirra þegar þær voru að fara um salinn og telja hve margir væru mættir til að taka þátt í að greiða fyrir gjöfina og láta kennarann sjá það til sín. Að talningu lokinni kom svo framkvæmdahópurinn saman til að deila kostnaðinum á þátttakendur og þar var sko ekkert verið að hvíslast á um þetta.
Þegar allir höfðu borðað nægju sína og rúmlega það var stiginn dans.
Það eru myndir frá samkvæminu komnar inn á myndsíðuna mína. Smellið á Myndir hér til hægri á síðunni.

13 desember 2006

Kökubakstur

Veður: 4,7°/18,7° heiðskýrt.

Aðalverkefni dagsins hjá okkur var að baka smákökur til að taka með okkur á litlujólin í leikfiminni á morgunn, í fyrramálið á svo að baka eplaköku, en eins og allir vita er eplakakan best alveg nýbökuð.
Í dag bökuðum við piparkökur, súkkulaði rúsínukökur og hafrakex. Það er lítið um bakstur á smákökum á heimilum hér og jafnvel að fólk sé aðeins hrætt við að bragða á því sem það ekki þekkir, en þeir sem eru kjarkaðir og þora að smakka á kökunum okkar kunna yfirleitt að meta þær.
Hér er mest um bakstur á ýmiss konar formkökum og það er ekki verið að spara eggin í þær, það er verið að nota frá sex upp í tíu egg í eina köku. Þessar uppskriftir hafa örugglega orðið til áður en vita var hversu mikið kólesteról er í eggjum.
Eftir baksturinn fórum við svo með síðustu jólakortin og pakkana á póst, svo nú er eiginlega bara framundan að bíða eftir jólunum, en ég hef trúlega yfir mun meiri þolinmæði að ráða nú en þegar ég var nokkrum áratugum yngri, þá gat biðin verið talsvert erfið og oftar en ekki var stolist til að þukla pakkana og reynt að giska á um innihaldið í þeim.

Graca og Artur komu í kvöld að sækja borðið sem þau ætla að nota í veislukjallaranum sínum. Við lánuðum þeim líka nokkra stóla.

12 desember 2006

Veður

Veður: 2,4°/15,5° Þunn skýjaslæða, sem sólin náði í gegnum af og til.

11 desember 2006

Hjólað á ný.

Veður: 0,2°/15,5° léttskýjað.

Byrjuðum útréttingar dagsins á að fara á pósthúsið til að kaupa frímerki á jólapóstinn, en þar sem það var löng bið eftir afgreiðslu brá ég mér á meðan Þórunn beið til tannlæknisins, en hann er í sömu götu og Pósthúsið.
Ég var svo óheppin að það datt fylling úr tönn hjá mér svo ég ætlaði að panta tíma, en var þá svo heppin að það var laus tími eftir hálftíma, svo ég gat beðið og er nú komin með nýja fyllingu í tönnina. Venjulega er vikubið hjá tannlækninum.
Þegar þessum erindum var lokið fórum við til Aveiro til að kaupa eitt og annað smálegt og einnig lét ég á það reyna hvort fyllingin í tönninni dygði til síns brúks svo við fengum okkur að borða í leiðinni og enn er fyllingin á sínum stað og ég vona að svo verði um ókomin ár.
Um tvöleitið fór ég svo að hjóla, ég hef ekkert hjólað síðan ég var keyrður niður fyrir rúmri viku, en nú gekk allt vel og bílstjórarnir sýndum mér fulla tillitssemi eins og venja þeirra er, þetta var algjör undantekning þegar ég var keyrður niður. Nú rennur vatn á ótrúlegustu stöðum á þeirri leið sem ég fór í dag eftir rigningarnar að undanförnu, en allt í þeim farvegum sem það á að vera.

10 desember 2006

Lokuð leið.

Veður: 0,3°/15,5° heiðskírt, en dálítil þoka fyrst í morgunn.

Í gær brugðum við okkur af bæ á bílnum og fórum sem leið liggur eftir þjóðvegi N 16 hér upp úr dalnum og eins og svo oft áður þegar farið var yfir brúna á Caima ánni var því gefið auga hversu hátt vatnsborðið í ánni væri, en það hefur verið talsvert breytilegt í rigningunum að undanförnu. Að þessu sinni var áin bara bakkafull.
Þegar við svo komum að brúnni rúmum klukkutíma síðar og ætluðum yfir hana á leiðinni heim var lögregla á veginum sem lokaði aðgangi að brúnni, en vísaði okkur á að fara í gegnum þorpið í Vale Maior yfir brú sem er kölluð gamla brúin, en þessi vegur í gegnum þorpið liggur um þröngar og bugðóttar götur.
Við vorum að tala um það okkar á milli að það hefði sennilega orðið slys í námunda við brúna og leiddum ekki hugann frekar að þessu.
Í gærkvöldi vorum við svo boðin í hús hér í dalnum og þá var okkur sagt að það hefði grafið undan einum stöpli brúarinnar og það væri búið að loka henni þar til viðgerð hefði farið fram.
Þessi brú mun vera nálægt eitthundrað ára gömul.
Það eru ekki nema þrjátíu ár síðan um þennan veg lá mikið af umferðinni frá vesturströnd Portúgals til Spánar, en nú er kominn nýr vegur sem leysti þennan af hólmi.
Við fórum í góða veðrinu í dag og tókum myndir af brúnni, ég reyni að setja eina af þeim myndum með þessum pistli, en svo eru fleiri myndir á myndasíðunni minni.
Hvort ástæðan fyrir því að það grefur undan stöplinum nú eftir að hafa staðið af sér stórflóð og vatnsleysi til skiptis í eitthundrað ár gæti verið sú að fyrir tveim árum var farvegurinn í nánd við brúnna hreinsaður og rýmkaður aðeins, skal ég ósagt látið. Það hefur ekki komið almennilegt flóð í ána síðan farvegurinn var hreinsaður fyrr en nú.

09 desember 2006

Veður

Veður: 3,5°13,3° úrkoma í nótt 16 mm. Að mestu þurrt í dag og sólarstundir af og til.

08 desember 2006

Frídagur

Veður: 6,1°/12,2° úrkoma 30 mm. Skúraslembur í dag, það er kalt í lofti.

Fórum í morgunn með lausa drifið sem við keyptum í gær og ekki fékkst til að vinna í búðina þar sem það var keypt. Stúlkan sem við töluðum við kannaðist strax við hvert vandamálið var, það vantaði að forrita diskinn og það gerði hún fyrir okkur á stundinni, svo nú er Þórunn komin með afrit af sínum gögnum eins og vera ber.
Það var margt um manninn í verslunum í dag, enda frídagur hér og fólk hér fær tvöföld laun í desember, svo það hefur aðeins meira handa á milli núna en venjulega.
Það væri full þörf á að tvöfalda lægstu launin hér, því þau eru svo ótrúlega lág, að ég skil ekki hvernig fólk á að geta framfleytt sér af þessum launum.
Þessi frídagur í dag er tilkomin vegna Maríu meyjar.

07 desember 2006

Bilað?

Veður: 9,8°/16,3° úrkoma 50 mm. Rigning í allan dag.

Í dag fórum við til Aveiro og keyptum laust drif til að nota við tölvuna hennar Þórunnar, því hún er komin með svo mikið af myndum og örðum gögnum í tölvuna, sem rétt er að eiga afrit af annars staðar.
Á heimleiðinni ókum við meðfram Vouga ánni þar sem hún rennur um láglendi og þar þarf vatnsborðið í ánni ekki að hækka nema um fimmtíu sentímetra til að ná upp á veginn sem við ókum eftir. Ég get vel ímyndað mér að vegurinn verði kominn undir vatn á morgunn, því það er búið að rigna í allan dag.
Eitthvað er bogið við þetta nýja drif sem við keyptum, eða þá okkur, því okkur tekst alls ekki að fá það til að vinna. Við erum búin að reyna að tengja það við báðar tölvurnar, en án árangurs, svo það er víst ekki annað að gera en fara aftur í verslunina og fá þá til að reyna þetta og leiðbeina okkur ef við höfum ekki farið rétt að við að tengja þetta. En það á ekki að þurfa að gera annað en setja þetta í samband og byrja svo að vinna.

Í kvöld horfðum við á klukkustundar langa mynd í sjonvarpinu hér um náttúru Íslands. Saga landsins frá landnámsöld var fléttuð inn í myndina. Þessi mynd er örugglega framleidd á Íslandi, en það var búið að talsetja hana á portúgölsku.

06 desember 2006

Veður

Veður: 6°/15,2° úrkoma 11 mm. Að mestu þurrt í dag.

05 desember 2006

Veisluumhverfi

Veður: 9°/15,2° úrkoma 50 mm. Rigning.

Það er helst til frásagnar í dag að það var að mestu hkjótt í leikfiminni í morgun. Fólk bara einbeitti sér að því að gera æfingarnar, en venjulega er þetta eins og í fuglabjargi og þá vill verða misbrestur á að fólk geti einbeitt sér að æfingunum meðan það er verið að spjalla.
Graca kom í heimsókn í dag meðal annars til að skoða borðið sem við létum smíða til að hafa hér á veröndinni, en hefur nú verið leyst af hólmi af öðru borði og var því notað sem vinnuborð í eldiviðargeymslunni.
Graca leist mjög vel á borðið til að nota í veislukjallaranum sínum.
Ég tala um veislukjallara, því það er meininginn hjá henni að ef hún býður fólki heim, þá verði því boðið í kjallarann. Það er nú verið að setja upp vask og smáeldhúsinnréttingu. Þetta á að vígja núna þann 16. desember, en þá bjóða þau nokkrum vinahjónum í heimsókn ásamt börnum líklega um 20 manns og Graca finnst ekki koma til greina að hleypa þeim inn í stofuna sína, það gæti eitthvað skemmst.
Hún leggur einhverja aðra merkingu í orðið kósi en við erum vön, því hún segir að þetta verði svo kósí þarna í kjallaranum, ómáluðum og að mestu ópússuðum. Næsta veisla á svo að vera í kjallaranum í maí, en þá verður veisla vegna fermingar dóttur hennar. Þetta er einhver lenska hér að vilja halda veislur í bílskúrum, eða kjöllurum, þó fólk hafi gott húsrými.

04 desember 2006

Jólaljós

Veður: 14,7°/17,5° úrkoma 33 mm. Rigning í nótt, en skúrir í dag.

Settum upp ljósaskreytingu á veröndina og bílskúrinn í dag í tilefni jólanna.

03 desember 2006

Aðventa

Veður: 5°/15,8° úrkoma 30mm. að mestu þurrt í nótt, en rigning í dag.

Þessi fyrsti sunnudagur í aðventu var rólegur og notalegur hjá okkur.
Fórum út að borða í hádeginu á stað í Aveiro sem heitir Torgalo. Þar fengum við okkur kjúkling að borða að hætti hússins, sem bragðaðist mjög vel, auðvitað var ekki látið þar við sitja, ábætir og kaffi var einnig innbirt með góðri list.
Við litum inn í eina búð á heimleiðinni, svona rétt fyrir siðasakir.
Síðdegis horfðum við á flotta jólatónleika frá Þýskalandi í sjónvarpinu, en við vorum svo heppin að Jón vinur okkar á Spáni lét okkur vita um tónleikana, annars er hætt við að þeir hefðu farið framhjá okkur.

02 desember 2006

Veður

Veður: 10,3°/18,8° úrkoma 50 mm. Rigndi í nótt, en að mestu þurrt í dag og sólarstundir.

01 desember 2006

Desemberrós

Veður: 5,9°/19,2° sólarstundir fram eftir degi, en skýjað síðdegis.

Ég slapp svo vel frá því í gær þegar keyrt var á mig að ég hef verið að velta því fyrir mér í dag hvort ég gæti ekki verið gott efni í áhættuleikara, bara að stunda það að lenda í árekstrum. Að athuguðu máli held ég að ég sleppi þessu, það er engan veginn víst að ég slippi svona vel frá slíku í annað sinn. En ég er ágætur í svona lagað að því leyti að ég held alveg ró minni á meðan á þessu stóð og gerði það sem í mínu valdi stóð til að sleppa sem best frá þessu og varð ekki einu sinni skelkaður eftir á.

Verkefni dagsins var að hreinsa í burtu mosa og gróður af þakinu á húsinu hérna, en slíkt þarf að gera einu sinni á ári. Það var ekki amalegt að sitja upp á þaki í veðurblíðunni í dag og bursta óhreinindin í burtu.
Síðdegis brugðum við okkur svo niður að strönd og fórum í röskan göngutúr á hafnargarði sem þar er. Það er svo frískandi að vera á gangi þarna og hlusta á niðinn í sjónum. Það er oftast talsvert af fólki á gangi þarna og einnig er þarna mikið af veiðimönnum með langar og miklar veiðistangir. Eins og ég sagði förum við nokkuð oft í gönguferð á þessum hafnargarði og þá eru alltaf einhverjir að reyna að veiða, en aldrei hef ég séð þá fá bein úr sjó, svo maður gæti haldið að þeir væru bara að æfa köst.

Með þessum pistli læt ég fylgja mynd af lítilli en fallegri rós, sem Þórunn færði mér úr garðinum í morgunn.


30 nóvember 2006

Ný reynsla.

Veður: 4,3°/19,7° léttskýjað.

Með hverjum degi sem líður bætir maður einhverju í sarp reynslu sinnar og þar sem ég á skammt eftir að ná því að hafa lifað í 26000 daga, ætti að vera komið mikið af reynslu í minn sarp og fremur líklegt að um endurtekningar sé að ræða en nýja reynslu úr þessu, en lífið er alltaf að koma manni á óvart. Í dag reyndi ég nokkuð sem ég vonaði að ég slyppi við að upplifa, en það var að verða keyrður niður þar sem ég var að hjóla úti á þjóðvegi.
Ég er margbúinn að segja frá því að ég dáist að því hvað bílstjórar hér hafa verið tillitsamir þegar við erum á hjólunum, láta sig oft hafa að lötra á eftir okkur langar leiðir þar til það er öruggt að þeir geti farið framúr okkur án þess að valda okkur ama. En í dag var komið að því að upplifa hið gagnstæða. Ég var á heimleið eftir að hafa hjólað hér inn Vougadalinn, svona til að sjá hvernig Vouga áin liti út eftir að rennslið í henni hefur aukist eftir úrkomuna að undanförnu. Nú svo var það í smábeygju að ég mætti tveim litlum bílum og varð var við bíl á eftir mér og reiknaði með að hann færi framúr mér þegar bílarnir væru komnir framhjá, en nei þessi gaf sér ekki tíma í slíkt hangs, heldur fór framúr mér um leið og hann mætti bílunum og þar sem ekki var rúm fyrir þrjú farartæki á veginum í einu kaus hann frekar að aka utan í mig en lenda framan á öðrum bíl.
Þetta var stór sendibíll og ég lenti á miðri hlið hans og það var nóg til að ég missti jafnvægið og féll í götuna þegar bíllinn var kominn framhjá mér. Ég hruflaðist aðeins á handlegg og læri, svo minni gátu meiðslin ekki verið. Bílstjórinn stoppaði og kom til að athuga hvort ég væri meiddur og staglaðist sífellt á því hvort ég vildi ekki fara á sjúkrahús og þegar ég leit betur á bílinn skildi ég hvers vegna hann var svona viljugur að koma mér á sjúkrahús, jú þetta var sjúkraflutningabíll sem ók á mig, en ekki með blikkandi ljós eða sírenur í gangi.
Ég afþakkaði alla aðstoð, en bað hann þess í stað að fara aðeins varlegar framvegis, sem ég vona að hann geri.
Ég er búinn að hjóla hér í landi í fimmtán ár án þess að verða fyrir ónæði frá bílum og ef ég fæ frið fyrir þeim næstu fimmtán árin, þá er þetta bara í góðu lagi. Hjólið þurfti að fá aðhlynningu eftir byltuna, því gírarnir urðu fyrir hnjaski, en ég varð ekki var við það fyrr en á heimleiðinni, en þetta eru bara smámunir og það er komið á hjólasjúkrahús og útskrifast á laugardag.