30 október 2007
Skammdegi
Þegar ég hef verið að koma í stuttar heimsóknir til Íslands frá birtu og il í Portúgal, þá hef ég oft verið að fjasa um hvers konar orkubruðlaðar íslendingar væru. Þarna á ég við að fólk lætur ljós loga í öllum herbergjum híbýla sinna hvort sem nokkur er þar inni eða ekki, nú hins vegar þegar ég fer að dvelja hér til lengdar í skammdeginu sé ég að það er full þörf á að nota lýsingu svona mikið. Þegar ég vaknaði í morgunn klukkan að ganga níu var enn rokkið og ekkert við það að athuga, en þegar komið var hádegi og enn bara almennilega ratljóst inni og enn er talsvert langt í svartasta skammdegið varð mér ljóst að það er ekki að ástæðulausu að fólk lætur ljósin loga allan daginn.
28 október 2007
Heitt og kalt.
Snjóföl.
Í morgunn þegar ég leit út var komið aðeins snjóföl og það er í fyrsta sinn í tvö ár sem ég lít slíkt fyrirbæri augum. Snjórinn er falllegur og góð tilbreyting að fá hann núna og fá hvíld frá roki og rigningu sem ráðið hafa ríkjum að undanförnu í veðrinu. Það er verst með fylgikvillana sem fylgja snjónum og þar á ég við að það er oft erfitt að komast leiðar sinnar og svo er alveg ófrávíkjanlegt að það verður að vera kalt í veðri svo það sé snjór og mér líkar kalt veður ekki vel.

26 október 2007
Músagangur.
Fyrir nokkru fékk ég ný stafræn heyrnartæki, en þó þau gerðu það að verkum að ég heyrði mun betur en áður átti ég samt dálítið erfitt með að greina almennilega þegar ég hlustaði á tal og samræður, Þórunn kvartaði yfir að ég heyrði lítið betur en með gömlu tækjunum.
Í morgunn lét ég svo verða af því að fara á Heyrnar og talmeinastöðina og athuga hvort hægt væri að ráða bót á þessu vandamáli. Sérfræðingurinn tók tækin og tengdi við tölvu og hækkaði þá tíðni sem tal er á og nú finnst mér mun auðveldara að fylgjast með tali. Mér finnst merkilegt að það skuli vera mögulegt að stilla tækin á ákveðna tíðni, svo þau nýtist betur. Ég var hvattur til að koma aftur ef það væri eitthvað sem ég teldi að betur mætti fara.
Á heimleiðinni komum við, við hjá Blindrafélaginu og fengum lánaðan spilara til að hlusta á hljóðbækur sem við erum með að láni og þar næst fórum við á Sjónstöðina og það fengum við lánaða tölvu handa Þórunni, svo nú erum við komin með sitt hvora tölvuna eins og heima í Austurkoti.
Fyrir mér er tölvumús og tölvumús ekki það sama, mér finnst alveg ómögulegt að nota þessar venjulegu mýs sem verður að skarka með aftur á bak og út á hlið á borðinu og oftar en ekki komast ekki nógu langt svo það verður að lyfta þeim upp og byrja að nýju, nei ég vil sko hafa kúlumús sem alltaf er kyrr á sama stað á borðinu og nú er ég komin með eina slíka sem ég fékk hjá dóttur minni og þvílíkur munur að vinna við tölvuna núna.
Fórum í gönguferð í dag, en tvo undanfarna daga hefur ekki verið hundi útsigandi fyrir roki og rigningu, fengum að vísu smávegis slyddu í gönguferðinni í dag, svona rétt til að minna á að við værum á Íslandi í gönguferð.

23 október 2007
Gamalt og nýtt.
Þá er búið að taka síður nærurnar í brúk og veitir ekki af til að halda á sér hita í gönguferðum. Í morgunn gengum við upp með Kópavogslæknum, þar til við komum á móts við smárann, þá fórum við til vinstri upp á hálsinn og þaðan tók ég myndina sem er hér á síðunni. Þessi mynd sýnir gamla og nýja tímann, litla húsið er byggt 1932 og hefur verið stórhýsi á þeim tíma, en sýnist agnarsmátt í samanburði við glerhöllina sem verið er að byggja í Smáranum og nýju kirkjuna við hliðina á litla húsinu.
22 október 2007
Smár en ræður samt.
Ég hef lítið gert að því að blogga eftir að ég kom til Íslands og til þess liggja aðallega tvær ástæður, sú fyrri var að mér þótti óþægilegt að skrifa á lyklaborðið á fartölvunni, en nú er búið að bæta úr þeim vankanti með að kaupa annað lyklaborð við fartölvuna. Númer tvö var að það var svo mikið annríki við að heimsækja fólk að það gafst lítill tími til að skrifa.
Nú eru allar forsendur breyttar, því ef upphaflega áætlunin sem við gerðum þegar við lögðum upp í Íslandsferðina hefði gengið eftir þá værum við að pakka niður í dag og legðum á stað heim á morgunn, en nú er búið að fresta heimkomunni til 28. nóvember, svo ég geti farið í meiri rannsóknir með blöðruhálskirtilinn. Svona er lífið, við erum að reyna að gera einhverjar áætlanir fram í tímann, sem standast misvel og í þessu tilviki er það blöðruhálskirtillinn sem vegur aðeins nokkur grömm að mínum 77 kílóum sem verður til þess að ég verð að breyta fyrri áætlun, en eins gott að taka fullt tillit til hans þó lítill sé ef ekki á að fara illa.
Það væsir ekki um okkur í þessu góða húsi sem við höfum til umráða hér og nú gildir að vera duglegur að nota þær stundir til útiveru þegar veðrið er sæmilegt, ég bið nú ekki um meira en það, enda væri það varla raunhæf ósk hér á landi. Það var mjög gott veður í g´r sunnudag og þá fórum við tvisvar í gönguferð og eins fórum við út í morgunn á meðan veðrið var skaplegt, eins gott því nú er komin grenjandi rigning og rok.
Ég læt það alveg vera að reyna að skrifa lýsingu á veðrinu hér á hverjum degi eins og ég gerði í Portúgal, því veðrið hér er svo breytilegt.

20 október 2007
Smitandi??
Ég fer að halda að ég hafi verið fljótur að smitast af íslandsæðinu, en þar á ég við að hér virðast allir vera að flýta sér og telja sér trú um að þeir hafi ekki tíma til neins, jafnvel þó ekkert sérstakt sé um að vera. Allavega kemur samfélagið hér mér þannig fyrir sjónir. Ég hlýt að vera orðin heltekinn af þessari vitleysu, því ég hef talið mér trú um að ég hafi ekki haft tíma til að blogga að undanförnu, en það hefur að vísu verið mikið að gera við að heimsækja fólk, því manni langar til að geta heilsað upp á sem flesta.
Samkvæmt áætlun stóð til að fara heim til Portúgals 23. þessa mánaðar, en nú er búið að fresta brottför héðan til 28. nóv vegna rannsóknar sem ég þarf að fara í vegna blöðruhálskirtilsins og mér finnst mun betra að fara í þessa rannsókn hér en í Portúgal, bæði er að ég treysti heilbrigðiskerfinu hér mun betur en því í Portúgal og svo er mikill munur að geta tjáð sig á sínu tungumáli.
Við erum svo heppin að hafa einbýlishúsið sem við erum búin að vera í síðan við komum hingað áfram á meðan við erum hér, svo það væsir ekki um okkur þó ég sakni Portúgals. Nú er bara að stilla sig inn á daglegt líf hér, það byrjaði eiginlega í dag með því að þrífa gólfin í íbúðinni og elda sér grjónagraut og borða með honum lifrarpylsu, sem bragðaðist mjög vel. Næst á dagskrá er að herða sig upp í að fara í gönguferðir, þó veðrið sé ekki alveg upp á það besta. Þegar maður ætlar að vera í einn mánuð hér, er í lagi að slá slöku við hreyfingu, en þegar útlit er fyrir að mánuðirnir verði tveir, gengur slíkt kæruleysi ekki upp.

14 október 2007
Hvíslari
Það er ábyggilega löngu kominn tími til að ég láti vita af mér á blogginu, svona að minnsta kosti láta vita að ég sé ekki alveg hættur að senda línu þangað. Það hefur bara verið talsvert að gera í að heimsækja fólk og njóta samvistum við það, sem mér hefur fundist mikið mikilvægara en að sitja við tölvuna. Ég lít þannig á að ég geti setið við tölvuna þegar ég kem heim, en þá hef ég ekki tækifæri til að hitta ættingja og vini.
Ég er búin að fá ný heyrnartæki og það er mjög mikill munur hvað ég heyri betur með þeim en gamla tækinu, mér finnst það vera álíka munur og þegar ég fékk fyrst heyrnartæki. Maður gerir sér ekki almennilega grein fyrir því hvað heyrnin er orðin léleg fyrr en maður er búin að fá nýtt heyrnartæki og fer þá allt í einu að heyra umhverfishljóð sem maður hafði ekki hugmynd um. Ég heyri líka betur í sjálfum mér en áður, svo ég fór að lækka róminn, sem verður til þess að allir sem í kring um mig eru verða að fá sér heyrnartæki ef þeir ætla að heyra hvað ég er að hvísla, því ég talað víst fremur lágt áður. Málið er bara að mér finnst svo þægilegt að tala lágt, á erfitt með að beita röddinni.

09 október 2007
Gullfoss
Það eru ansi slitrótt hjá mér skrifin í dagbókina núna, en það er bara svo mikið að gera við að heimsækja vini og ættingja og þá situr dagbókin bara á hakanu´.
Á laugardag fórum við upp í Grímsnes til að skoða sumarbústaðinn sem Sigrún dóttir Þórunnar og hennar maður Ragnar eru að byggja. Það var sterkur og kaldur norðan vindur þennan dag en við létum það ekki aftra okkur frá því að fara og skoða Gullfoss, fyrst við vorum komin svona nálægt honum
Sumarbústaðurinn.

Gullfoss er alltaf jafnfalllegur, maður meira að segja nýtur fegurðarinn jafnvel þó það sé norðangarri og varla stætt.

Hér er virkilega þregnt að Hvítá. Myndin er tekin við brúarhlöð.

05 október 2007
Austurkot
Þessi mynd er af íbúðarhúsinu í Austurkoti þar sem ég er fæddur og uppalinn, það var byggt við það nokkrum sinnum í áranna rás, en hefur ekki breytst í útliti síðan ég flutti úr sveitinni. Ég reyndi ap banka að dyrum, en það varenginn heima nema mjög vinalegur hundur, sem fór að leika listir sínar fyrir okkur.
Þessi mynd er tekin af hlaðinu í Austurkoti og horft til norðurs að Selfossi og Ingólfsfjalli. Krakkinn á hjólinu og hundurinn áttu leið þarna um þegar ég var að taka myndina. Ég mynnist þess að í æsku minni var talað um að fara yfir fjallið suður til Reykjavíkur eins og sagt var í Flóanum og þá var átt við að fara yfir Hellisheiði, en það vissi ég ekki þá, svo ég braut mikið heilann um það hvernig væri mögulegt að koma bíl yfir þetta fjall sem blasti við augum mínum. Nú veit ég betur.
27 september 2007
Glæsilegt hús
Hér koma myndir af húsinu sem við höfum til afnota meðan við erum á Íslandi. Það verður seint fullþakkaður sá höfðingsskapur að lána okkur þetta góða hús og einkabílinn meðan við erum á Íslandi. Þetta hús er í rolegu hverfi í Kópavogi. Nú bilur regn og rok á húsinu, svo það má með sanni segja aðð það sé ekki hundi útsigandi. Við erum búin að fá sýnishorn af flestum veðurbrigðum síðan við komum. Byrjuðum að fá norðanrok, næsta sýnishorn af verði var bjartviðri og stilla en kalt, það veður var bara í einn dag, hefði gjarnan mátt vera lengur og eins og ég sagði áður er núna rigning og rok, svo það vantar eiginlega ekkert upp á öll veðrabrigði nema hressilegan suðvestan éljagang, en ekkert af þessu kemur á óvart, ég var ekki búinn að gleyma hvernig veðrið á Fróni lætur.
24 september 2007
Komin til Íslands
Það var langur dagur hjá okkur í gær, því við vöknuðum klukkan 5 til að leggja upp í ferðalagið til Íslands. Graca og Arthur mættu stundvíslega klukkan sex til að keyra okkur út á völl. Til London vorum við komin fyrir hádegi og þurftum svo að bíða þar eftir flugi til Íslands til klukkan að verða níu um kvöldið,Hér lentum við svo um klukkan ellefu. Hjörleifur sonur minn sótti okkur út á völl og fór með okkur til Sigrúnar dóttur Þórunnar. Það var gott að komast í rúmið eftir svona langan dag. Það fór ekki á milli mála að við vorum komin til Íslands þegar við komum út úr flugstöðinni í Keflavík, því þar tók á móti okkur sterkur og kaldur norðan vindur og það er búið að vera talsvert hvasst hér í Reykjavík í allan dag.
Í dag fór ég á heyrnar og talmeinastöðina til að láta mæla heyrnina hjá mér, niðurstaðan úr þeirri mælingu er að ég á að fá ný heyrnartæki. Þau fæ ég afhent 10. október.
Nú erum við komin í þetta fína einbýlishús í Kópavogi sem vinir okkar buðu okkur til afnota á meðan við erum hér á landi og ekki nóg með það heldur til að kóróna rausnarskapinn þá fylgdi líka bíll með í pakkanum.
Við erum komin með síma á meðan við erum hér og númerið er : 8574182.

22 september 2007
Síðasti dagur í Portúgal
Veður: 8,9°/28,8° léttskýjað. Næsta veðurathugun frá Portúgal verður væntanlega ekki fyrr en seint í október, því veðurathuganamaðurinn er að fara í frí og enginn til að leysa hann af.
Notuðum síðasta daginn hér til að fara út að borða í hádeginu og svo aðeins að dingla okkur í búðum, það er allt fremur rólegt og afslappað hér í stórmörkuðunum. Það er dálítið einkennilegt að hugsa um hvað mannskepnan er mismunandi í útliti, þegar verið er á rölti í svona stórmarkaði og maður mætir hundruðum manna ,en samt eru engir tveir nákvæmlega eins í útliti.
Þetta verður þá síðasta bloggið héðan frá Portúgal að sinni og svei mér þá ef ég er ekki farinn að sakna Portúgals áður en ég er farinn þaðan.

21 september 2007
Tilbúin til brottfarar
Veður: 113,5°/30,2° léttskýjað í dag, en
I nótt var þrumuveður og gerði regnskúr með því en þetta stóð stutt.
Fórum í leikfimi í morgunn, en verðum af því góða gamni næstu fjórar vikurnar meðan við erum á Íslandi. Þegar heim kom hreinsaði ég svolítið í burt arfa af baklóðinni og á morgunn er meiningin að slá grasflötina, svo verður bara að ráðast hvernig þessu reiðir af næsta mánuðinn.
Manúel nágranni okkar ætlar að líta til með húsinu á meðan við erum í burtu og að venju kom hann hér í dag til að fullvissa sig um að hann væri með á hreinu hvernig á að taka af og setja inn aftur öryggiskerfið ef til þess kæmi að hann þyrfti að fara inn í húsið. Sem sagt fastir liðir eins og venjulega áður en farið er til Íslands.

20 september 2007
Að hlaða sólarbatteríið.
Veður: 10,2°/34,3° léttskýjað.
Fórum niður að strönd í dag, alltaf hressandi að fá sér gönguferð við sjóinn, svo veitir ekki af að hlaða sólarbatteríið áður en farið er norður í dumbshaf.

19 september 2007
Kynjamisrétti?
Veður: 15,8°/33,2° heiðskírt, gola í nótt.
Í dag var undirbúningi Íslandsferðarinnar haldið áfram, farið í búðir til að kaupa lítilræði sem við töldum að okkur vanhagaði um.
Þar sem það er orðið svo lítið sem má taka með sér í farangur þegar flogið er á milli landa, hef ég að undanförnu verið að svipast um eftir léttum náttslopp handa mér til að taka með í ferðalagið, en án árangurs, svo í dag var gerð úrslitatilraun. Það er ekki að sjá í verslunum hér að annað komi til greina en karlar noti náttföt til að sofa í um nætur, en ég er aftur á móti þeirrar skoðunar að maður hátti áður en farið er í rúmið, en skipti ekki um föt. Það var sem sé farið í karladeildina í stórmarkaði í dag til að leita að slopp og á meðan leitin að sloppnum stóð yfir fundust á mig flauelsbuxur, skyrta, peysa og skór á Þórunni og þar með var búið að gefa upp alla von um að finna sloppin, sem var nú eiginlega tilefni ferðarinnar. Leiðin að kassanum var í gegnum náttfatadeild kvenna og jú auðvitað er sjálfsagt að þær sveipi híalíni um sinn kropp á meðan ætlast er til að við karlarnir séum í hnausþykku vaðmáli, sjálfsagt við hæfi að það væri ofið úr hrosshári. Semsagt mitt vandamál leystist með því að kaupa kvenslopp alveg fisléttan.

18 september 2007
Greiðslumat.
Veður: 8,6°/30,9° léttskýjað.
Áfram var haldið í dag við að tína ofan í ferðatöskuna, eitthvað rámar mig í að það sé stundum aðeins svalt á Íslandi, svo nú var fundin til húfa og vettlingar og síðu nærbuxurnar eru líka komnar ofan í töskuna, ekki samt „föðurland“ því í slíka flík hef ég ekki farið síðan ég fór að hafa eitthvað um það að segja í hvers konar fatnaði ég klæðist. Það þótti sjálfsagt í sveitinni að klæðast ullarnærfötum, en eftir að ég komst í kynni við bómullarfatnað hef ég ekki mátt til þess hugsa að láta ull snerta minn viðkvæma kropp, því mér finnst ullin stinga mig svo mikið að ég er alveg ómögulegur. Þetta gengur svo langt að mér finnst óþægilegt að fara í lopapeysu utan yfir skyrtu.
Greiðslumat, er ekki algengt í dag að fólk fari í greiðslumat? Mér skilst að slíkt ferli sé bráðnauðsynlegt í dag og hún Þórunn mín fór í dag í einhverskonar greiðslumat. Hún fór á stofu sem sérhæfir sig í slíkum verkum, þar var henni boðið sæti og hafist var handa við að meta hvernig ætti að greiða henni og svo var líka klippt, ekki veit ég hvort verið var að klippa af skuldahalanum, en heim kom hún ánægð með árangurinn af ferðinni.
Ég er líka búinn að eiga í talsverðum greiðsluerfiðleikum í nokkur ár og ef eitthvað er fer sá vandi vaxandi, því mér gengur æ verr að sjá hvernig lýjurnar á kollinum á mér liggja, en enn sem komið er hef ég ekki farið út í greiðslustöðvun.

17 september 2007
Pakkað
Veður: 13,2°/26,8° skýjað.
Nú er fyrir alvöru farið að telja niður fyrir Íslandsferðina næsta sunnudag, búið að sækja ferðatöskurnar upp á geymsluloft og byrjað aðeins að pakka niður, það er minni hætta á að eitthvað gleymist ef pakkað er niður í rólegheitum.
Í morgunn lukum við, við að mála gluggana í húsinu, það er að segja Þórunn málar en ég get unnið undir málninguna, slípað og svoleiðis.
Ég klippti líka hekkið, svo það ætti að vera í lagi með það næstu fimm vikurnar.

16 september 2007
Víngerð
Veður: 13,5°/33,2° Skýjað af og til í dag, en engin kom rigningin, sem þó var búið að spá.
Hjónin í Frossos voru í mat hjá okkur í dag, en í vikunni fara þau á sínar æskustöðvar á bak við fjöllin til að týna vínber og síðan að troða á þeim í þar til gerðu keri, til að ná safanum úr berjunum. Þegar vökvinn byrjar að gerjast er honum dælt á stálkúta og eftir um tvo mánuði er vínið tilbúið til drykkju.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)