11 janúar 2007

Blómstrandi tré.

Veður: 0,5°/19,7° léttskýjað.

Í gær var ég minnast á vorið og það væri ýmislegt sem benti til það væri nálgast.
Þessu til sönnunar er myndin hér á síðunni af blómstrandi tré, en þessa mynd tók ég í morgunn.
Það virðist sem mímósan ætli bíða aðeins lengur með sýna sinn fallega gula lit, við fórum í rannsóknarferð í morgunn til reyna finna blómstrandi mímósu, en án árangurs.

er búið háþrýsti þvo alla stéttina meðfram húsinu með vélinni sem keypt var í gær, svo er hún tilbúin taka á móti hækkandi sólþ
Það fór eins og ég átti von á Manúel granni okkar þáði gömlu þvottavélina með þökkum, þó hún væri farin slappast dálítið. Gott ef hann getur garmast við hana.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er svo yndislegt þegar trén fara að blómstra. Eru ávaxtatrén yfirleitt í blóma á þessum tíma hjá ykkur?
Kær kveðja frá okkur á Selfossi þar sem ekki sést út um glugga í augnablikinu vegna mikillar snjókomu.Við ættum kannski bara að panta okkur far til Portúgal á Þorranum :)