Veður: 7,9°/18,6° úrkoma 2mm. Þoka fyrst í morgunn, en frá hádegi að mestu léttskýjað.
Gott að vera komin á ról eftir kvefið, þó það sé ekki alveg búið að sleppa tökum á mér, en ég er á góðri leið með að hrista það af mér.
Við byrjuðum daginn á leikfimi eins og vera ber á föstudegi, það var vel unnið í þessum leikfimitíma og þar af leiðandi lítið spjallað. Oft er svo mikið sem þær þurfa að spjalla saman blessaðar að þær hafa varla tíma til að gera æfingarnar sínar, bara verst fyrir þær sjálfar.
Eftir hádegi tók ég dæluna upp úr brunninum, því slangan sem liggur frá dælunni var farin að leka, samt er hún nærri ný. Þetta er búið að vera bilað í nokkra daga, en vegna kvefsins treysti ég mér ekki til að eiga við þetta fyrr en í dag. Það gekk vel að gera við, svo nú erum við farin að nota vatn úr brunninum á ný, en við þurftum að nota vatn frá vatnsveitunni á meðan þetta var bilað.
Bíllinn fékk líka sitt þrifabað.
Þórunn notaði góða veðrið til að vinna í garðinum, við að snyrta og færa til plöntur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Kæri Palli,
Ég votta þér innilega samúð vegna sviplegs fráfalls frænda þíns
Kveðja,
Elisabet
Skrifa ummæli