Veður: 13,5°/21,7° skýjað og smáskúr í morgunn.
Við buðum Portúgölskum vinum okkar í mat í dag, þetta eru ung hjón ásamt ára syni þeirra.
Þórunn eldaði fiskrétt sem þau kunnu vel að meta. Konan heimtaði að fá að leggja til ábætisrétt, sem bragðaðist líka mjög vel.
Eftir matinn buðum við þeim svo í stuttan bíltúr, svo þau gætu reynt hvernig er að sitja í nýja bílnum.
Þegar við komum heim aftur sýndi Þórunn þeim myndir frá Spánarferðinni í síðasta mánuði, á meðan bakaði ég nokkrar vöfflur, en slíkt kaffibrauð höfðu þau aldrei bragðað áður, en kunnu samt vel að meta.
Saga af símabilun lokaþáttur.
Ég hef látið dagbókina mína fylgjast með þegar síminn hjá okkur varð óvirkur síðastliðið mánudagskvöld og viðskiptunum við símafélagið varðandi viðgerðina, fyrir þá sem ekki hafa fylgst með þessu ætla ég að rifja söguna upp
Bilunin var tilkynnt símafélaginu á þriðjudagsmorgunn, eftir að útséð þótti að þetta myndi lagast af sjálfu sér. Miðvikudagsmorgunn var enn sambandslaust og þá var aftur ítrekað við símafélagið hvort það væri löng bið í að samband kæmist á, en engin ákveðin svör eða tímasetningu að hafa frekar en áður. Síðdegis á miðvikudag komst svo síminn í lag og þar með tókum við gleði okkar á ný.
Við fréttum svo frá nágrönnum okkar að bilunin hefði orsakast vegna þess að símalínunum hingað í þorpið og raunar fleiri þorp hefði verið stolið og það tók þennan tíma að setja nýjar línur. Þar með héldum við að þessu máli væri lokið varðandi símafélagið, en annað átti eftir að koma í ljós.
Á föstudagsmorgunn er hringt frá símafélaginu til að segja okkur að nú loks eigi að senda viðgerðarmann til að líta á símann hjá okkur, Þórunn sagði þeim að þeir væru að hringja í símann sem hefði verið bilaður, svo þeir gætu séð að það væri óþarfi að senda viðgerðarmann í húsið til að skoða símann, þeir höfðu þá ekki hugmynd um að síminn okkar væri kominn í lag fyrir nær tveim dögum. Það er greinilegt að boðkerfi innan fyrirtækisins er ekki í lagi.
Nú vorum við alveg viss um að þessu máli væri endanlega lokið, en nei ekki aldeilis. Í morgunn á laugardegi er dyrabjöllunni hringt og þar er þá mættur viðgerðarmaður til að gera við símann. Þórunn sagði honum söguna af bilun og viðgerð, en maðurinn gaf sig ekki með að fá að kanna símann sjálfur hvort hann væri í fullkomnu lagi.
Það var ekki annað að gera en hleypa honum inn með sitt mælitæki, svo hann gæti sannfærst um að við værum ekki að skrökva því að síminn væri í lagi. Eftir að hafa gert sínar athuganir komst hann að þeirri niðurstöðu að við hefðum verið að segja satt og þar með þakkaði hann fyrir sig og kvaddi.
Þetta er bara lítil en sorgleg saga um hvernig kerfið í Portúgal vinnur, eða það væri réttara að segja að það virkaði bara alls ekki.
Þórunn sagði svo nágrönnunum frá þessum manni sem kom til að líta á símann. Þau bara krossuðu sig og sögðu að hún skyldi nú fara varlega í að hleypa svona mönnum inn fyrir dyr, því þetta gætið alveg eins hafa verið einhver þjófur til að kann aðstæður í húsinu og kæmi svo síðar til að hirða allt verðmætt sem hann sá í morgunn.
Það skortir ekkert á hugmyndaflugið hjá fólki hér varðandi þjófhræðslu. Mér hefur ekki tekist að finna neina skinsamlega skíringu á þessari gífurlegu þjófhræðslu hjá fólki hérna , því ég hef ekki orðið var við eða heyrt sögur af svo mörgum innbrotum, eða þjófnuðum hér í nágrenninu að það réttlæti alla þessa þjófhræðslu.
Það er sífellt verið að ámynna okkur um að fara varlega og gæta vel eigna okkar, helst held ég að nágrannarni vildu að við værum á vakt til skiptis allan sólarhringinn.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Nice fill someone in on and this fill someone in on helped me alot in my college assignement. Say thank you you seeking your information.
Skrifa ummæli