Veður: hiti 13,4°/17° úrkoma 60mm. Eins og sjá má á úrkomumælingunni er búið að rigna hressilega þennan sólarhringinn. Þessi mæling er frá klukkan fimm í gær þar til á sama tíma í dag og síðan mælt var í dag og þar til þessi pistill er skrifaður er búið að rigna mjög mikið, eins og hellt sé úr fötu eða rúmlega það. Það er trúlegt að einhvers staðar hljótist tjón af völdum flóða, en sem betur fer erum við með allt á þurru hér.
Við fórum í gróðrarstöð í morgunn til að kaupa ávaxtatré, sem á að nota sem gjöf, en meira um það síðar.
Einnig fórum við niður til Aveiro og fengum hressilega rigningu á leiðinni þangað, en sæmilegt veður á meðan við vorum þar.
Ég reikna með að við förum til Aveiro aftur á morgunn, svo við ættum að vera farin að rata sæmilega þangað. Það er Þórunn sem er að fara í embættisferðir til Aveiro, en það má víst ekki ljóstra því upp fyrr en á morgunn hvert erindið er.
Ég var búinn að kvarta mikið yfir lélegri þjónustu hjá TV.Cabo, en það verður líka að segja frá þegar vel er gert við mann og nú hefur þetta alveg snúist við og er til fyrirmyndar, að minnsta kosti þessa stundina. Maðurinn hjá TV.Cabo sem tók að sér að greiða úr flækjunni hjá okkur hringdi hingað síðdegis til að vita hvort það væri ekki öruggt að allt væri komið í lag varðandi þeirra þjónustu. Það er skemmtileg tilbreyting að upplifa svona góða þjónustu.
Við fórum yfir til Manúels nágranna okkar síðdegis til að óska honum til hamingju með daginn, en hann varð 69ára í dag.
Við vorum drifin inn til að borða köku og drekka Portvín með, en það er mjög algengt hér að bjóða Portvín með kökum. Ég fæ oft snuprur fyrir að gera víninu lítil skil, en ég geri mitt besta og bragða aðeins á því.
Þau hjón kvarta talsvert yfir því að vera einsömul hér, en eina barnið þeirra býr í um 70 km. fjarlægð með sína fjölskyldu og hann er mjög duglegur að heimsækja þau, en samt eru þau að kvarta yfir að vera ein.
Ég skil þetta ekki alveg, hvað mættum við þá segja sem eigum börnin okkar í öðrum löndum. Þetta er sennilega einhver söknuður eftir stórfjölskyldunni, en það er bara liðin tíð að hafa börn og barnabörn í nágrenni við sig alla tíð.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
;-)
Skrifa ummæli