31 janúar 2007

Brennuvargar

Veður: - 2,3°/17,7° léttskýjað.

Í dag týndum við saman greinarnar sem garðyrkjumaðurinn klippti af ávaxtatrjánum í gær og brenndum þeim.
Þessar greinar eru svo grannar að það svara ekki kostnaði að búta þær niður og nota í viðarofninn hér inni, það er heldur ekki gott að setja þær í safnhauginn, því þær eru of lengi að rotna þar.

30 janúar 2007

Ávaxtatrén klippt.

Veður: 1,8°/16,8° mestu skýjað.

Í morgunn þurfti ég mæta til láta taka blóðsýni til fylgjast með á hvaða róli kólesterólið er hjá mér.
Staðurinn sem blóðsýnið er tekið opnar klukkan átta á morgnana, það er opnað svona snemma,því venjulega þarf fólk mæta fastandi. Fyrst þegar við vorum mæta þarna mættum við klukkan átta og lentum þá í bíða lengi, því það virtust nær allir mæta á sama tíma.
Núna erum við farin læra á þetta og mætum ekki fyrr en klukkan verða tíu og þá er engin bið eftir komast að.
Eftir sýnatökuna fórum við á kaffihús og fengum nýbakað brauð og kaffi.
Því næst renndum við niður til Aveiro, því mig langaði til sjá nýja Vista stýrikerfið í verslunum og hvaða verð væri á því.
Það var ótrúlega mikill verðmunur á milli verslana. Við fórum bara í tvær verslanir sem eru nærri hvor annarri og á öðrum staðnum var verðið 270€ , en í hinni 400€. Þetta er ótrúlega mikill verðmunur á nákvæmlega sama hlut.
Það segja margir maður eigi bíða eitthvað með skipta yfir í Vista. Vera rólegur og sjá til hvernig þetta reynist, ekkert liggi á, þetta hljómar mjög skinsamlega, en það er bara stundum leiðinlegt vera skinsamur.
Ég er svo nýjungagjarn ég vildi helst reyna þetta strax, en ég ætla reyna nota smávegis af skinseminni og bíða eitthvað, þó það frekar leiðinlegt bíða.

Hann Antonio, en það er maðurinn sem klippir ávaxtatrén í garðinum okkar á hverju ári var hér í dag í sinni árlegu heimsókn.
Hann er búinn klippa trén fyrir okkur í mörg ár.
Hann var áður garðyrkjumaður í hér skammt frá, en er kominn á eftirlaun, en heldur áfram vinna fyrir nokkra viðskiptavini.
Hann er orðinn 74ára, en hann er svo vel á sig kominn svo ég vona hann sjái um klippa trén okkar í mörg ár til viðbótar.
Maður sem klippti trén fyrir mig áður en ég fékk Antonio til þess var orðinn 84ára og vílaði ekki fyrir sér fara upp í stiga til klippa trén.
Læt fylgja með myndir af Antonio störfum.




29 janúar 2007

Veður

Veður: 5,3°/15,4° úrkoma 2 mm. í nótt. Skýjað í dag.

28 janúar 2007

Óráðsía? Nei.

Veður: 2,6°/14,6° léttskýjað framan af degi, en síðdegis alskýjað og meira segja örfáir regndropar.

Síðastliðinn fimmtudag orðuðum við það við nágranna okkar, þau Matthild og Manúel við biðum þeim út borða um helgina.
Það þurfti beita nokkrum fortölum til þau til þiggja boðið,þau báru því við það væri allt of dýrt kaupa mat á veitingahúsi, þegar hægt væri búa til mat heima og svo væri ekki gefi bensínið á bílinn. Við sögðumst bara eiga of mikið af peningum og þau yrðu hjálpa okkur við koma þeim í lóg með því þiggja fara með okkur út borða.
Það talaðist svo til við færum þetta á laugardeginum, en á föstudag bað Manúel um þetta yrði frekar á sunnudeginum því hann ætlaði nota laugardaginn til klippa vínviðinn sinn. Ég veit ekki alveg hvers vegna allt í einu svo mikið á því klippa vínviðinn, því enn er langt í hann fari laufgast.
er messað klukkan tólf á sunnudögum, svo við komumst ekki af stað fyrr en klukkan eitt, en það var í góðu lagi við vorum komin á veitingahúsið klukkan hálf tvö. Fólk var koma í mat til klukkan verða þrjú.
Það varð ofaná eftir miklar vangaveltur hjá þeim hjónum panta sér eina stóra nautakótelettu, saltfiskurinn freistaði þeirra líka, en nautasteikin var meira nýnæmi og hún bragðaðist líka mjög vel. Við fengum okkur saltfisk hætti hússins og fannst hann mjög góður.
er ég kominn fram úr sjálfum mér ég gleymdi segja frá forréttunum.Það var sitt lítið af hverju,brauð, rækjur, melóna,presunto og pulsur.
Í eftirrétt var svo valið pönnuköku fyllta með ís og skreytta með rjóma og súkkulaðisósu.
Hjónin skoluðu matnum niður með rauðvíni, en við fengum góðan árgang af vatni, sem við urðum ekki fyrir vonbrigðum með, það stóð fyllilega undir væntingum eins og ævinlega.
Eftir matinn röltum við einn hring á stórum útimarkaði sem er 28. hvers mánaðar í Aveiro. Það var mjög margt fólk á markaðinum eins og ævinlega. Markaðir eru mjög vinsælir hér, enda löng hefð fyrir þessum verslunarmáta hér í landi.
Myndin er af þeim hjónum ásamt steikinni góðu.


27 janúar 2007

Veður

Veður: 3,8°/13,2° léttskýjað og nokkur gola.

26 janúar 2007

Vetrarharka.

Veður: - 4,3°/13° léttskýjað.
Ég geri mér góðar vonir um að nú fari “vetrarhörkunum” hér að linna og það fari hægt hlýnandi næstu daga.
Næturfrostið má ekki verða öllu meira en þetta svo appelsínurnar hljóti ekki skaða af.
Við notuðum tækifærið þessa “köldu” daga til að brenna í viðarofninum hér inni það sem hefur fallið til í garðinum og er nýtanlegt í ofninn. Það entist ekki nema í tæpa tvo daga.
Það er fallegt að horfa í logana í ofninum, en mikið er nú þægilegra og þrifalegra að kveikja bara á lofthituninni/kælingunni.









Ég átti pantaðan tíma hjá heimilislækninum, því ég var að verða búin með lyfin við kólesterólinu. Ég átti tíma klukkan fjögur, en var ekki búinn fyrr en að ganga sjö, ekki var það vegna þess að ég væri svo lengi inni, heldur er þetta bara venja hér að gefa manni tíma svona löngu áður en von er um að maður komist að.
Nú á ég að fara og láta rannsaka í mér blóðið svo sjá megi hversu hátt kólesteról magnið í blóðinu er, auð vitað vona ég að það sé sem lægst, en mælingin sker úr með það.


Meðan ég beið stytti Þórunn sér stundir við að fara í búðir og það sannaðist hjá henni eins og oft áður “ að oft er leitað langt yfir skammt”.
Hún var búin að fara í nokkrar búðir í Aveiro til að leita sér að flík sem hana vanhagaði um, en fann ekkert sem hentaði og ekki töldum við líklegt til árangurs að leita í litlu búðunum í Albergaria, en það fór nú samt svo að þar var til flíkin sem hún hafði verið að leita að.


25 janúar 2007

Þjónustan komin í lag.

Veður: 0,9°/14° úrkoma 2 mm. Í nótt, í dag var léttskýjað.

Í dag fengum við í hendur bókina yfir GPS tækið í bílnum.
Við hefðum sennilega átt kvarta fyrr formlega yfir þeirri þjónustu sem við vorum þarna, því eftir við kvörtuðum hefur þjónustan verið til fyrirmyndar, eða kannski bara eins og hún átti vera alla tí.
liggur við það rúllað út fyrir okkur rauðum dregli þegar við komum á svæðið.

24 janúar 2007

Veður

Veður: -3,3°/12,7° léttskýjað.

23 janúar 2007

Skemmtileg hönnun

Veður: - 1,5°/14° mestu léttskýjað.
Eins og sjá á hitatölunum hér fyrir ofan er talsvert svalara í verði núna en verið hefur undanförnu, en svona sveiflast hitinn upp og niður á þessum árstíma.

Síðasta sunnudag þegar við fórum í stóru gróðrarstöðina skammt utan við Ovar sáum við nýja verslunarmiðstöð, en það virtist vera svo margt fólk þar á þeim tíma við ákváðum fara í þessari viku í skoðunarferð þangað og í dag létum við verða af því fara á staðinn.
Við lögðum af stað skömmu fyrir mat með það í huga láta verða af því reyna hvernig er sér borða á einhverjum af þeim mörgu matsölustöðum við þjóðveginn þar sem vörubílstjórar og aðrir þeir sem eru á ferð og flugi venja komur sínar.
Við höfum oft minnst á það væri fróðlegt sér borða á slíkum stað en af einhverjum ástæðum ekki komið því verk fyrr en í dag.
Það var svo kalt inni á staðnum sem við litum fyrst inn á við treystum okkur ekki til sitja þar inni. Næsti veitingastaður var heldur minni og þar var upphitun, þó hún væri vísu í lágmarki. Þarna fengum við ágætis steiktan fisk borða og staðurinn og þjónustan var í góðu lagi og ekki var hægt væla yfir verðinu 10€ fyrir okkur bæði.
Jæja þá erum við búin aðeins nasasjón af hvernig þessi veitingastaðir við þjóveginn líta út, en þurfum við tækifæri gera betri samanburð á þeim.
Við komum semsagt vel mett í áfangastað, því var ver því þar er nýtískulegur veitingastaður með miklu úrvali af mat og við gætum vel hugsað okkur skreppa þangað seinna til bragða á einhverju sem þar er á boðstólum.
Við fengum okkur reyndar kaffi og köku þegar við vorum búin ganga okkur upp hnjám við skoða í verslanir.
Það var gaman sjá hvernig veggirnir inni í húsinu voru skreyttir, það voru framhliðar húsa, svo hver gangur hafði eiginlega síma sérstöku götumynd frá því sem var þarna við ströndina fyrir rúmum hundrað árum. Það voru líka gamlar stórar ljósmyndir frá brimlendingu við sendna ströndina og svo fólk vinna við aflann.
Þarna á einum ganginum er líka falllegur bátur sem notaður hefur verið á stóru síki sem er þarna skammt frá og í bakgrunn er mynd af umhverfinu, svo þetta verður mjög raunverulegt sjá.
Mér fannst reglulega gaman koma í þetta hús og get vel hugsað mér skoða það fljótlega aftur.
Ég er búinn setja nokkrar myndir inn á myndasíðuna og þær ættu lýsa vel því sem fyrir augu bar í dag.

22 janúar 2007

Að pota kartöflunum niður.

Veður: 3,6°/13° úrkoma 5 mm. Skúrir, en bjart á milli skúra.

Þá er lokið við að koma kartöflunum ofan í moldina þetta árið. Niðursetningin er svo sem ekkert þrekvirki, því við setjum bar lítið niður af kartöflum, vegna þess að við getum ekki geymt þær lengi.
Hér er til siðs að skera útsæðið í búta þannig að það sé ein spíra á hverjum bút.
Ég tók mynd af útsæðinu þegar búið var að skera það í búta, einnig tók ég mynd af kartöflunum þar sem þær eru komnar í moldina. Hér eru gerðar svona raufar sem kartöflurnar eru settar í og svo þegar næsta rauf er gerð rótast yfir þá fyrri. Skóflan sem notuð er við þetta sést á myndinni.

Það var slátrað svíni hjá Matthild grannkonu okkar í síðustu viku og nú segist hún vera hætt svínaræktinni og þegar geiturnar sem hún er með núna eru orðnar fullvaxnar verður þeim slátrað og ekki fengnar aðrar í þeirra stað.
Matthild er orðin svo slæm í fótunum að hú treystir sér ekki lengur til að afla fóðurs fyrir þessa gripi og hugsa um þá.
Þetta er mikil breyting á hennar högum, því allan þeirra búskap hefur hún séð um að framleiða kjöt og grænmeti fyrir sitt heimili, en nú verður að fara út í búð og kaupa þessar afurðir.
Hún segist muni sakna þess að hafa ekki heimaræktað kjöt, því það sé öðruvísi bragð af kjötinu sem hún kaupi í búðinni, en það verði bara að hafa það, því nú ráði hún ekki lengur við þetta.


21 janúar 2007

Sunnudagsferð

Veður: 1,5°/16° skýjað.

Þórunn átti uppástungu sunnudagsferðinni í dag, fara í gróðraarstöð sem er í rúmlega þrjátíu kílómetra fjarlægð héðan.
Það eru orðin nokkur ár síðan við komum í þessa stöð síðast, því það er komin og góð gróðrarstöð mun nær okkur en þessi er.
Þessi stöð sem við fórum í, í dag er mjög stór og úrval af blómum og trjám er þar mjög mikið.
Þar er líka mikið úrvala af garðhúsgögnum, skrautmunum. Blómsturpottum, verkfærum og bókstaflega öllu sem tengist garðinum.
Það var mjög margt um manninn þarna í dag og flestir fóru með eitt eða fleiri blóm með sér út.
Við bara skoðuðum, eða réttara er segja Þórunn hafi skoðað og ég hafi rölt með henni mér til ánægju, því það er hún sem þekkir blómin og sér almennileg hvað er á boðstólum.
N´st litum við svo inn í raftækja og húsgagnaverslun sem er skammt frá gróðrarstöðinni. Það er búið stækka verslunina svo mikið síðan við vorum þar síðast og auka vöruúrvalið mjög mikið.
Fyrir nokkrum árum fórum við með Matthild og Manúel nágranna okkar í þessa verslun til kaupa sér ísskáp, því ísskapurinn þeirra hafði geispað golunni.
Við vorum reyna ráðleggja þeim í sambandi við val á skáp, en þar kom fljótlega Matthild skáp sem hana langaði til kaupa, þó hann væri mun dýrari og mörgu leiti óhentugur fyrir hana, en Manúel þekkti sína konu og sagði okkur fyrst hún væri búin bíta í sig þennan skáp þá yrði henni ekki haggað með það og það reyndist rétt hjá honum.
Skápurinn var keyptur, en verst var hann entist illa, mótorinn í honum bilaði eftir örfá ár.

20 janúar 2007

Nýtt ljós

Veður: 5,7°/18,2° þoka fyrst í morgunn, en síðar að mestu léttskýjað.

Nú er komið nýtt og fallegra ljós yfir eldhúsborðið hjá okkur, það leysir af hólmi plastljós sem hefur þjónað sínu hlutverki með prýði undanfarin ár. Það hefur skilað þeirri birtu sem til var ætlast af því, en var ekki augnayndi í leiðinni. Þórunn er víst nokkrum sinnum búin að minnast á að það væri gaman að fá fallegra ljós í eldhúsið, jú ég hef svo sem verið sama sinnis með það, en samt ekki eins áhugasamur og hún.
Eitthvað hefur henni verið farið að leiðast þófið, því fyrir jólin spurði hún hvort hún gæti bara ekki fengið eldhúsljósið í jólagjöf.
Slíkt fannst mér ekki koma til greina að fara að gefa henni í jólagjöf hlut sem nota ætti í íbúðarhúsinu, en þetta varð til þess að við fórum í alvöru að svipast um eftir nýju eldhúsljósi í búðarferðum okkar, en einhvern veginn var það svo að við sáum ekkert sem okkur fannst spennandi.
Það til í þessari viku að við litum inn í verslun sem nýlega er búið að opna í Aveiro, þar var ljós sem okkur leist báðum vel á og ákveðið var að kaupa.
Þegar átti að fara að pakka ljósinu inn kom Þórunn auga á að það var brotið og ekki til annað ljós alveg eins. Afgreiðslustúlkan bjóst við að fá annað ljós eftir einn eða tvo daga, svo við fórum á stúfana í dag til að athuga hvernig gengi. Það kom okkur ekki verulega á óvart að ljósið var ekki komið og nú voru engin ákveðin svör um hvort eða hvenær það kæmi.
Svo það varð úr að velja ljós með öðru munstri og nú er það komið á sinn stað yfir eldhúsborðinu og á vonandi eftir að varpa birtu á mismunandi kræsingar á borðinu um ókomin ár.

19 janúar 2007

Þorri

Veður: 9,3°/20,7° þoka fyrst í morgunn, en léttskýjað eftir að þokunni létti.

Það er ekki hægt að kvarta undan veðrinu hér á fyrsta degi í Þorra, sól og blíðviðri.
Fyrsta sinn á þessu ári sem hitinn á hitamælinn hér komst yfir 20 gráðurnar.
Ég notaði góða veðrið til að slá grasfötina, en það var í fyrsta sinn á þessu ári sem hún er slegin, eftir sláttinn bar ég svo áburrð á blettinn til að fá fallegt og kröftugt gras og meiri vinnu við að slá.
Það er ekki vandamál ef maður verður svangur meðan á slætti stendur, þá þarf ekki annað en ná sér í appelsínu á trénu og afhýða hana og borða.
Appelsínurnar eru mjög góðar núnar og albest er að borða þær strax og þær hafa verið teknar af trénu.
Við erum búin að bjóða Portúgölskum vinum okkar í mat í kvöld, það verður ekki um neinn svokallaðann þorramat að ræða, enda á ég ekki von á að þau kynnu að meta slíkan mat.

18 janúar 2007

Endurfundir

Veður: 1°/16,5° alskýjað.

Í morgunn klippti ég horteinsíurnar, ef einhver sér fyrir sér að ég hafi verið að dúlla við að klippa niður lítið stofublóm í potti, þá er það ekki rétt. Ég var með stórar rafmagnshekkklippur og veitti ekki af því hortensíurnar vaxa hér úti í garði og verða einn og hálfur metri á hæð, þó þær séu klipptar niður á hverju ári. Þetta eru ótrúlega duglegar og fallegar plöntur og það þarf nánast ekkert að hafa fyrir þeim.

Eftir matinn fórum við svo í góðan göngutúr í gegnum skóginn sem er hér við þorpið. Þau fáu tré sem fella laufið standa nakin núna og burkninn í skógarbotninum er allur dauður, en hann kemur fljótlega aftur um leið og hlýnar í verði. Á svona gönguferðum um skóginn er gaman að fylgjast með hvar verið er að fella tré og eins þar sem sér út á akra að fylgjast með hverju er verið að sá á mismunandi tíma.

Síðdegis fórum við svo að versla í bæ hérna innar í landinu og á bílastæðinu má eiginlega segja að ég hafi hitt gamlan og kæran kunningja, ef hægt er að segja svo um hluti úr málmi og gleri. Þarna á bílastæðinu var Citroen super árgerð 1973, en ég átti einmitt samskonar bíl og ég man enn hversu gott var að aka þessum bílum.
Hann hefur átt góða daga og fengið góða umönnun þessi bíll sem ég sá í dag, því hann leit út eins og hann væri nýr, því til sönnunar læt ég fylgja mynd sem ég tók af bílnum.

17 janúar 2007

Annar í afmæli.

Veður: 11,5°/15,6° úrkoma 2 mm. Þurrt í dag en skýjað.

Það fór svo ég hafði annan í afmæli í dag, því þó afmælismaturinn bragðaðist ágætlega í gær þá hæfði hvorki umhverfið sem við borðuðum á hvernig maturinn var borinn fram þeim kröfum sem ég geri til afmælisveislu.
Til bæta úr þessu fórum við í dag á gott veitingahús í Aveiro og þar varð ég ekki fyrir vonbrigðum. Maturinn var frábær, þjónustan og umhverfið gott.
Við fengum grillað kalkúnakjöt með ananas og þessu var svo smekklega raðað á diskana og bragðið var eins og best verður á kosið. Í eftir rétt var svo ananas fromas, líka mjög gott.
Svona til sanna mál mitt þá læt ég fylgja með myndir af matnum og hvernig hann var borinn fram. Ég þarf varla taka það fram maturinn í leirfatinu er maturinn sem við fengum í gær, en falllegi diskurinn er frá því í dag.

Ég sagði frá því í síðustu viku við hefðum kvartað formlega hjá Toyota yfir þjónustunni sem við hefðum fengið þar. Þetta virðist hafa borið árangur, því eru allir á hjólum í kring um okkur.
DVD diskurinn með kortinu í GPS tækið kom fyrr en lofað var og það var hringt í okkur um leið og hann var tilbúinn til afgreiðslu, sem var í gærmorgun.
Þegar við vorum taka á móti diskinum kom yfirmaður varahlutadeildarinnar og lét okkur vita bókin yfir Gps tækið kæmi 25. janúar, við vonum það standist.
Þjónustufulltrúinn hringdi svo í dag til kanna hvort málin væru ekki í réttum farvegi.
Þessi nýja uppfærsla á vegakortinu í GPS tækið er mun fullkomnari en sem við höfðum. Í eldri útgáfunni var bara sýndur þjóðvegurinn í gegn um þorp eins og því sem við búum í, en er búið færa inn hvern krákustíg og það sama gildir um aðra þá staði sem við höfum farið um eftir við fengum nýja kortið.


16 janúar 2007

Afmæli á ný, getur það bara verið rétt?

Veður: 5,3°/16,9° skýjað og úrkoma síðdegis, en svo lítið það var vart mælanlegt.

Þó ég muni það ekki hef ég sjálfsagt einhvern tímann sagt ég er sextán og bráðum sautján, því það var mjög stór áfangi sautján ára aldri, því þá var heimilt taka bílpróf. Það var heldur ekki verið bíða neitt með taka bílprófið, það var tekið á sjálfan afmælisdaginn þegar ég varð seytján ára.
er maður löngu hættur segja maður verði bráðum þetta og þetta gamall, en afmælisdagarnir skila sér samt og svei mér ef það er ekki verið eitthvað svindla og farið hafa árin styttri en áður var. Allavega finnst mér mjög stutt síðan ég átti afmæli síðast og á ég afmæli á í dag.
En gott og blessað eldast á meðan heilsan er í lagi.
Afmælisdagurinn byrjaði ekki amalega, því hann byrjaði á því Þórunn dekraði við mig með hátíðarmorgunverð með kertaljósum og öllu tilheyrandi.
Við vorum búin ráðgera fara og skoða borg sem heitir Pombal á afmælisdaginn minn ef verðið yrði gott og í morgunn var ágætisveður svo við lögðum bara í hann.
Þessi bær er í um það bil eitthundrað og tíu kílómetra héðan til suðurs og við höfum oft ekið þjóveginn í gegnum bæinn en ekki gefið okkur tíma til skoða bæinn gagni.
Við vorum komin þarna um hádegi, svo fyrsta verkið var finna stað til borða á. Ekki er hægt segja þetta hafi verið neinn glæsistaður, en það sem skiptir mestu máli, er við fengum bragðgóðan mat þarna. Eitthvað sem nefna mætti uppá íslensku vorkálf. En þetta eru nautakjötsbitar steiktir í ofni ásamt kartöflum og grænmeti. Það er mjög víða boðið upp á svona mat hér, en oftar en ekki er búið hafa kjötið svo lengi í ofninum það er komið kæfubragð af því, en í dag var þetta alveg mátulega steikt.
Eftir matinn fórum við í góða gönguferð um bæinn, þetta er snyrtilegur bær með nokkrum gömlum og fallegum húsum og uppi á hæð yfir bænum tróna kastalarústir. svo eru auðvitað hverfi með blokkum og einbýlishúsum eins og gengur.
Hampiðjan reisti verksmiðju í þessum í samvinnu við Portúgali, ég veit ekki hvort verksmiðjan er enn starfandi.
Þegar við komum heim í Albergaria fengum við okkur afmæliskaffi, svo það er ekki hægt segja annað en maginn hafi fengið sitt á þessum afmælisdegi, eins og raunar á flestum slíkum dögum.
Myndirnar eru frá Pombal.



























15 janúar 2007

Veður

Veður: 3,5°/14° skýjað

14 janúar 2007

Veður

Veður: 0,7°/14,5° skýjað og fremur hráslagalegt.

13 janúar 2007

Dagur "bóndakonunnar"

Veður: -0,3°/17,2° léttskýjað.


Í morgunn fór "bóndakonan" á markaðinn til kaupa kálplöntur, púrrulauk og salatplöntur.

Hér er verið koma plöntunum á sinn stað í garðinum.

12 janúar 2007

Fyrsta rispan

Veður: 0,8°/19,9° heiðskýrt.

Það hefur víst ekki farið framhjá lesendum þessara pistla við pöntuðum okkur nýjan bíl í lok águst og fengum bílinn afhentan þann 12. september.
Þessum góða bíl áttu fylgja leiðarvísar á portúgölsku, tvær bækur önnur upp á fjögur hundruð síður en hin aðeins tvöhundruð síður.
Um leið og við gengum frá pöntuninni á bílnum báðum við um leiðarvísana með bílnum á ensku. Okkur var sagt það væri ekkert vandamál, tæki bara smátíma, bækurnar yrðu sendar með pósti um leið og þær væru komnar til þeirra.
Við fórum og spurðum eftir bókunum þegar okkur var farið lengja verulega eftir þær, okkur var sagt þetta væri alveg koma, bara bíða róleg.
Eftir tæpa tvo mánuði kom fyrri bókin, en enn er seinni ókomin eftir tæpa fimm mánuði.
Fyrir tæpum þrem vikum pöntuðu við svo nýtt kort í GPS tækið í bílnum. Því var lofað eftir fimm daga og eins og fyrr átti hringja og láta okkur vita þegar við mættum sækja kortið. Þegar ekkert hafði heyrst eftir fjórtán daga fórum við á staðinn, en þá var svo léleg nettengingin hjá fyrirtækinu okkur var sagt það var ekki hægt sjá hvað pöntuninni liði. Við hringjum í ykkur í fyrramálið og látum vita hvernig gengur. Auðvitað hringdi engin.
fannst okkur ver nóg komið af lélegri þjónustu, svo við ákváðum fara í dag og reyna aeinhvern botn í þetta.
sem um panta kortið bar því við svona lagað hefði aldrei verið pantað áður og þess vegna hefði eitthvað farið
úrskeiðis, en diskurinn yrði kominn eftir sex daga.
Næst fórum við svo í athuga með bókina eina ferðina enn, en sem fyrr var enga bóka hafa.
var okkur nóg boðið og báðum um tala við manneskju sem sæi um þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins, eftir smánudd tókst það, þegar það þótti útséð um það væri ekki hægt tala okkur til og bara bíða og bíða.
Í öllum stærri fyrirtækjum og þjónustustofnunum hér í Portúgal liggur frammi kvörtunarbók, sem viðskiptavinirnir geta skrifað í sínar kvartanir ef þeir eru ekki sáttir við þjónustuna.
Svona bók var finna í Toyotaumboðinu og þjónustufulltrúinn sýndi okkur stoltur enn sem komið er hefði enginn skrifað kvörtun í þessa bók, það hefði alltaf tekist gera viðskiptavininum til hæfis. Hún reyndi hvað hún gat til hafa okkur ofan af því skrifa kvörtun í bókina.
Við vitum öll hversu erfitt er fyrstu rispuna, eða beygluna á nýja bílinn og það virtist vera álíka erfitt fyrir þjónustufulltrúann horfa upp á skrifað væri í fyrsta sinn í kvörtunarbókina, en er hann búinn upplifa það.
Ég vona þetta verði til þess við og aðrir viðskiptavinir getum átt von á betri þjónustu þarna í framtíðinni.