30 október 2007

Skammdegi

Þegar ég hef verið koma í stuttar heimsóknir til Íslands frá birtu og il í Portúgal, þá hef ég oft verið fjasa um hvers konar orkubruðlaðar íslendingar væru. Þarna á ég við fólk lætur ljós loga í öllum herbergjum híbýla sinna hvort sem nokkur er þar inni eða ekki, hins vegar þegar ég fer dvelja hér til lengdar í skammdeginu ég það er full þörf á nota lýsingu svona mikið. Þegar ég vaknaði í morgunn klukkan ganga níu var enn rokkið og ekkert við það athuga, en þegar komið var hádegi og enn bara almennilega ratljóst inni og enn er talsvert langt í svartasta skammdegið varð mér ljóst það er ekki ástæðulausu fólk lætur ljósin loga allan daginn.

28 október 2007

Heitt og kalt.

Þessi mynd ætti að vera dæmigerð fyrir land elds og ísa, því þarna gefur að líta snævi þakin fjöll og gufur frá virkjuninni við Hellisheiði.

Posted by Picasa

Snjóföl.

Í morgunn þegar ég leit út var komið aðeins snjóföl og það er í fyrsta sinn í tvö ár sem ég lít slíkt fyrirbæri augum. Snjórinn er falllegur og góð tilbreyting að fá hann núna og fá hvíld frá roki og rigningu sem ráðið hafa ríkjum að undanförnu í veðrinu. Það er verst með fylgikvillana sem fylgja snjónum og þar á ég við að það er oft erfitt að komast leiðar sinnar og svo er alveg ófrávíkjanlegt að það verður að vera kalt í veðri svo það sé snjór og mér líkar kalt veður ekki vel.


Posted by Picasa

26 október 2007

Músagangur.

Fyrir nokkru fékk ég stafræn heyrnartæki, en þó þau gerðu það verkum ég heyrði mun betur en áður átti ég samt dálítið erfitt með greina almennilega þegar ég hlustaði á tal og samræður, Þórunn kvartaði yfir ég heyrði lítið betur en með gömlu tækjunum.
Í morgunn lét ég svo verða af því fara á Heyrnar og talmeinastöðina og athuga hvort hægt væri ráða bót á þessu vandamáli. Sérfræðingurinn tók tækin og tengdi við tölvu og hækkaði þá tíðni sem tal er á og finnst mér mun auðveldara fylgjast með tali. Mér finnst merkilegt það skuli vera mögulegt stilla tækin á ákveðna tíðni, svo þau nýtist betur. Ég var hvattur til koma aftur ef það væri eitthvað sem ég teldi betur mætti fara.
Á heimleiðinni komum við, við hjá Blindrafélaginu og fengum lánaðan spilara til hlusta á hljóðbækur sem við erum með láni og þar næst fórum við á Sjónstöðina og það fengum við lánaða tölvu handa Þórunni, svo erum við komin með sitt hvora tölvuna eins og heima í Austurkoti.
Fyrir mér er tölvumús og tölvumús ekki það sama, mér finnst alveg ómögulegt nota þessar venjulegu mýs sem verður skarka með aftur á bak og út á hlið á borðinu og oftar en ekki komast ekki nógu langt svo það verður lyfta þeim upp og byrja nýju, nei ég vil sko hafa kúlumús sem alltaf er kyrr á sama stað á borðinu og er ég komin með eina slíka sem ég fékk hjá dóttur minni og þvílíkur munur vinna við tölvuna núna.
Fórum í gönguferð í dag, en tvo undanfarna daga hefur ekki verið hundi útsigandi fyrir roki og rigningu, fengum vísu smávegis slyddu í gönguferðinni í dag, svona rétt til minna á við værum á Íslandi í gönguferð.

23 október 2007

Gamalt og nýtt.

Þá er búið að taka síður nærurnar í brúk og veitir ekki af til að halda á sér hita í gönguferðum. Í morgunn gengum við upp með Kópavogslæknum, þar til við komum á móts við smárann, þá fórum við til vinstri upp á hálsinn og þaðan tók ég myndina sem er hér á síðunni. Þessi mynd sýnir gamla og nýja tímann, litla húsið er byggt 1932 og hefur verið stórhýsi á þeim tíma, en sýnist agnarsmátt í samanburði við glerhöllina sem verið er að byggja í Smáranum og nýju kirkjuna við hliðina á litla húsinu.

22 október 2007

Smár en ræður samt.

Ég hef lítið gert því blogga eftir ég kom til Íslands og til þess liggja aðallega tvær ástæður, fyrri var mér þótti óþægilegt skrifa á lyklaborðið á fartölvunni, en er búið bæta úr þeim vankanti með kaupa annað lyklaborð við fartölvuna. Númer tvö var það var svo mikið annríki við heimsækja fólk það gafst lítill tími til skrifa.
eru allar forsendur breyttar, því ef upphaflega áætlunin sem við gerðum þegar við lögðum upp í Íslandsferðina hefði gengið eftir þá værum við pakka niður í dag og legðum á stað heim á morgunn, en er búið fresta heimkomunni til 28. nóvember, svo ég geti farið í meiri rannsóknir með blöðruhálskirtilinn. Svona er lífið, við erum reyna gera einhverjar áætlanir fram í tímann, sem standast misvel og í þessu tilviki er það blöðruhálskirtillinn sem vegur aðeins nokkur grömm mínum 77 kílóum sem verður til þess ég verð breyta fyrri áætlun, en eins gott taka fullt tillit til hans þó lítill ef ekki á fara illa.
Það væsir ekki um okkur í þessu góða húsi sem við höfum til umráða hér og gildir vera duglegur nota þær stundir til útiveru þegar veðrið er sæmilegt, ég bið ekki um meira en það, enda væri það varla raunhæf ósk hér á landi. Það var mjög gott veður í g´r sunnudag og þá fórum við tvisvar í gönguferð og eins fórum við út í morgunn á meðan veðrið var skaplegt, eins gott því er komin grenjandi rigning og rok.
Ég læt það alveg vera reyna skrifa lýsingu á veðrinu hér á hverjum degi eins og ég gerði í Portúgal, því veðrið hér er svo breytilegt.

Í kópavogi

Myndir frá höfninni í Kópavogi

























Horft yfir voginn til Garðabæjar.
Posted by Picasa

20 október 2007

Smitandi??

Ég fer halda ég hafi verið fljótur smitast af íslandsæðinu, en þar á ég við hér virðast allir vera flýta sér og telja sér trú um þeir hafi ekki tíma til neins, jafnvel þó ekkert sérstakt um vera. Allavega kemur samfélagið hér mér þannig fyrir sjónir. Ég hlýt vera orðin heltekinn af þessari vitleysu, því ég hef talið mér trú um ég hafi ekki haft tíma til blogga undanförnu, en það hefur vísu verið mikið gera við heimsækja fólk, því manni langar til geta heilsað upp á sem flesta.
Samkvæmt áætlun stóð til fara heim til Portúgals 23. þessa mánaðar, en er búið fresta brottför héðan til 28. nóv vegna rannsóknar sem ég þarf fara í vegna blöðruhálskirtilsins og mér finnst mun betra fara í þessa rannsókn hér en í Portúgal, bæði er ég treysti heilbrigðiskerfinu hér mun betur en því í Portúgal og svo er mikill munur geta tjáð sig á sínu tungumáli.

Við erum svo heppin hafa einbýlishúsið sem við erum búin vera í síðan við komum hingað áfram á meðan við erum hér, svo það væsir ekki um okkur þó ég sakni Portúgals. er bara stilla sig inn á daglegt líf hér, það byrjaði eiginlega í dag með því þrífa gólfin í íbúðinni og elda sér grjónagraut og borða með honum lifrarpylsu, sem bragðaðist mjög vel. Næst á dagskrá er herða sig upp í fara í gönguferðir, þó veðrið ekki alveg upp á það besta. Þegar maður ætlar vera í einn mánuð hér, er í lagi slá slöku við hreyfingu, en þegar útlit er fyrir mánuðirnir verði tveir, gengur slíkt kæruleysi ekki upp.

14 október 2007

Hvíslari

Það er ábyggilega löngu kominn tími til ég láti vita af mér á blogginu, svona minnsta kosti láta vita ég ekki alveg hættur senda línu þangað. Það hefur bara verið talsvert gera í heimsækja fólk og njóta samvistum við það, sem mér hefur fundist mikið mikilvægara en sitja við tölvuna. Ég lít þannig á ég geti setið við tölvuna þegar ég kem heim, en þá hef ég ekki tækifæri til hitta ættingja og vini.
Ég er búin heyrnartæki og það er mjög mikill munur hvað ég heyri betur með þeim en gamla tækinu, mér finnst það vera álíka munur og þegar ég fékk fyrst heyrnartæki. Maður gerir sér ekki almennilega grein fyrir því hvað heyrnin er orðin léleg fyrr en maður er búin nýtt heyrnartæki og fer þá allt í einu heyra umhverfishljóð sem maður hafði ekki hugmynd um. Ég heyri líka betur í sjálfum mér en áður, svo ég fór lækka róminn, sem verður til þess allir sem í kring um mig eru verða sér heyrnartæki ef þeir ætla heyra hvað ég er hvísla, því ég talað víst fremur lágt áður. Málið er bara mér finnst svo þægilegt tala lágt, á erfitt með beita röddinni.

09 október 2007

Gullfoss

Það eru ansi slitrótt hjá mér skrifin í dagbókina núna, en það er bara svo mikið að gera við að heimsækja vini og ættingja og þá situr dagbókin bara á hakanu´.
Á laugardag fórum við upp í Grímsnes til að skoða sumarbústaðinn sem Sigrún dóttir Þórunnar og hennar maður Ragnar eru að byggja. Það var sterkur og kaldur norðan vindur þennan dag en við létum það ekki aftra okkur frá því að fara og skoða Gullfoss, fyrst við vorum komin svona nálægt honum













Sumarbústaðurinn.














Gullfoss er alltaf jafnfalllegur, maður meira að segja nýtur fegurðarinn jafnvel þó það sé norðangarri og varla stætt.














Hér er virkilega þregnt að Hvítá. Myndin er tekin við brúarhlöð.
Posted by Picasa

05 október 2007

Austurkot













Þessi mynd er af íbúðarhúsinu í Austurkoti þar sem ég er fæddur og uppalinn, það var byggt við það nokkrum sinnum í áranna rás, en hefur ekki breytst í útliti síðan ég flutti úr sveitinni. Ég reyndi ap banka að dyrum, en það varenginn heima nema mjög vinalegur hundur, sem fór að leika listir sínar fyrir okkur.













Þessi mynd er tekin af hlaðinu í Austurkoti og horft til norðurs að Selfossi og Ingólfsfjalli. Krakkinn á hjólinu og hundurinn áttu leið þarna um þegar ég var að taka myndina. Ég mynnist þess að í æsku minni var talað um að fara yfir fjallið suður til Reykjavíkur eins og sagt var í Flóanum og þá var átt við að fara yfir Hellisheiði, en það vissi ég ekki þá, svo ég braut mikið heilann um það hvernig væri mögulegt að koma bíl yfir þetta fjall sem blasti við augum mínum. Nú veit ég betur.
Posted by Picasa