30 apríl 2007

Hurðarlaust

Veður: 8,2°18,4° úrkoma 10 mmþ Skúrir.

Þá er orðið hurðarlaust hér á milli tölvuherbergisins og stofunnar, því Þórunn ætlar að mála hurðirnar. Það eru tvær hurðir í hverju dyraopi, eins og tíðkaðist hér fyrir rúmri öld. Það er mun þægilegra að vinna við hurðirnar liggjandi á búkkum, því það er svo mikil vinna að slípa þær og síðan að mála.

Skrúfurnar sem héldu þeim á sínum stað voru ekki alveg á því að fara að róta sér neitt, kunnu bara vel við sig eftir rúm hundrað ár á sama stað, en þegar þeim var lofað að þær fengju að skríða í bólið sitt á ný eftir að hafa skoðað sig aðeins um, þá létu þær til leiðast að taka sér frí í nokkra daga.

29 apríl 2007

Hvað er nú til ráða?

Þessi mynd vísar til textans hér fyrir neðan, þar sem sagt er frá því að fólkið sem átti að heimsækja var ekki heima þegar við mættum á staðinn
Posted by Picasa

Fýluferð.

Veður: 6,2°/25,8° Ég veit ekki almennilega hvernig á að lýsa skýjafarinu í dag, gæti ef til vill verið léttskýjað af of til.

Þegar við heimsóttum Grösu í gær talaðist svo til að í dag yrðum vi samferða henni og hennar fjölskyldu að heimsækja vinafólk þeirra sem við erum búin að hitta nokkrum sinnum heima hjá Grösu og þau hjón eru búin að bjóða okkur að koma í heimsókn til sín. Nú var ákveðið að láta verða af þessari heimsókn, ekki síst vegna þess að þessi hjón sem við höfumætlað að heimsækja eignuðust sitt annað barn fyrir hálfum mánuði eftir þrettán ár frá því þau eignuðust fyrra barnið sitt.

Við fórumí gær og keyptum sængurgjöf á barnið að Íslenskum sið.

Við mæltum okkur mót við Grösu og fjölskyldu skammt frá heimili hjónanna sem átti að heimsækja klukkan þrjú í dag, því við vissum ekki nákvæmlega hvar þau bjuggu.

Þegar kom heim að húsinu var hringt dyrabjöllu eins og venja er en enginn svaraði því kalli. Þá var tekinn upp farsími og reynt að hafa samband við gestgjafana símleiðis, en líka án árangurs.

Þegar ekkert af þessu skilaði árangri var ákveðið að rölta á kaffihús í nágrenninu og sjá til hvort fólkið skilaði sér ekki heim á meðan kaffisopinn væri drukkinn. Það var allt við það sama þegar við snerum aftur til hússins, þar var enga hreifingu að sjá.

Svo við snerum heim við svo búið.

Það hefur greinilega orðið einhver misskilningur á milli Grösu og vinkonu hennar um hvenær Grasa ætlaði koma í heimsókn, en það fáum við sennilega vita um síðar.

Fyrsta rauða rósin 07

Þetta er fyrsta rauða rósin í garðinum okkar í ár.
Það er ekki amalegt að geta fært konunni sinni svona fallega rós úr eigin garði. Það er ekki bara að rósin sé falleg, líka er ilmurinn af henni alveg frábær.
Posted by Picasa

28 apríl 2007

Veður:9,5°/23,3° að mestu léttskýjað.

Þórunn heldur ótrauð áfram við að mála, nú innandyra, í gær og í dag er hún búin að hressa upp á tölvuherbergið. Meðan hún sinnti málaravinnunni fór ég og lauk við að hreinsa arfann úr laukbeðunum. Það er raunar tæplega hægt að segja að ég hafi lokið við að hreinsa arfann, því það er að verða tímabært að fara næstu umferð um leið og þessari líkur.

Gólfteppið úr tölvuherberginu var sett út á hliðgrind og þvegið með háþrýstiþvottavélinni. Það sást enginn munur á því eftir þvottinn en gott að vita afþví hreinu.

Síðdegis heimsóttum við Grösu og þáðum kaffisopa og spjall. Hún leyfir okkur að fylgjast með undirbúningnum fyrir fermingarveisluna hjá dóttur þeirra. Nú er búið að stilla upp borðum í kjallaranum og næst er að sækja til okkar stóla sem við ætlum að lána þeim. Artur maðurinn hennar er búin að festa sjónvarpstæki upp á vegg í kjallaranum þar sem veislan á að vera, svo gestirnir geti notið sjónvarpsútsendingar á meðan þeir eru í veislunni.

Við ræddum þessi sjónvarpsmál við Grösu, því okkur finnst ekki eðlilegt að það skuli vera opið sjónvarp á hverju heimili þegar fólk kemur í heimsókn og að ætla veislugestum að sitja og horfa á sjónvarp, er einum of langt gengið. Graca var okkur sammála með þetta en bóndi hennar er mikill sjónvarpsfíkill, svo honum finnst nauðsynlegt að geta boðið sínum gestum upp á að horfa á sjónvarp á meðan þeir borða, sjálfur borðar hann aldrei matarbita án þess að horfa á sjónvarp á meðan hann borðar og dóttirin átta ára er á sama róli og Pabbinn.

Það er alveg ótrúleg þessi sjónvarpsdella hér í landi, það fyrirfinnst ekki svo ómerkilegt kaffihús hér í landi að þar inni sé ekki eitt eða tvö sjónvarpstæki í gangi og svipaða sögu er að segja af matsölustöðum, það telst til undantekningar ef ekki er opið sjónvarp á matsölustöðum.

27 apríl 2007

Veður

Veður:6,5°/23,5° ýmist skýjað eða léttskýjað í dag.

26 apríl 2007

Málningarveður

Veður:4,9°/23,2° léttskýjað.
Fínt veður til að mála í dag og reita arfa.

25 apríl 2007

Þjóðhátíðardagur.

Það var ekki fyrr en ég fór horfa á sjónvarpsfréttir í kvöld dagurin í dag er þjóðhátíðardagur Portúgals. Í dag eru þrjátíu og þrjú ár frá því einræðistjórn sem hér var búin vera lengi við völd var steipt af stóli með friðsamri byltingu og komið var á lýðræði í landinu.

Við sáum þesi engin merki á okkar ferðalagi í dag það væri þjóðhátíðardagur, en einhver hátíðarhöld eru samt í stærri borgum landsins, en í smábæjum eins og okkar er ekkert sem ber merki þess það þjóðhátið.

Það þykir frekar ástæða til að veifa þjóðfánanum í sambandi við fótboltaleiki, en á þjóðhátíðardaginn. Það virðist svo sem það sé mjög lítil virðing borin fyrir þjóðfánanum hér í landi. Þar sem hann er hengdur upp er hann venjulega látinn hanga meðan nokkuð er eftir af honum, áður en skipt er um og settur upp nýr fáni. Það er hörmulegt að sjá rifnar og skítugar fánadruslur hvar sem maður fer um landið.

Veður: 12,6°/16,7° úrkoma 10 mm. fínn rigningarúði fram eftir degi.

Engin garð, eða málningarvinna í dag vegna votviðris, þó úrkoman væri mjög lítil. Það er nokkuð öruggt að það kemur þurr dagur fljótlega svo það er engin ástæða til að fara út þegar það rignir.

Dóttursonur minn átti afmæli í dag og því var að sjálfsögðu fagnað með því að fara á kaffihús og fá sér góða tertusneið.

24 apríl 2007

Veður: 10,7°/24,1° alskýjað og nokkrir regndropar síðdegis.

Tölvumaðurinn okkar lofaði í gærkvöldi mæta hér klukkan 9 í morgunn til setja viðbótar minniskort í tölvuna mína. Hann var mjög stundvís á hans mælikvarða, því hann var mættur hér fyrir klukkan 11 , að vísu var ég búin að hringja í hann klukkan 10,30 til að athuga hvort hann kæmi í dag eða ekki, því stundum mætir hann ekki þann dag sem hann lofar að koma.

Okkar tölvumaður er ekki hár í lodtinu frekar en margir landar hans, hinvegar er hann orðinn ansi mikill á þvervegin, svo það er engan veginn auðvelt fyrir hann að þurfa að skríða undir borð til að tengja eða aftengja tölvuna, þá er maður dálítið hræddur um að hann verði afvelta.

Það var mjög þröngt og erfitt að koma þessum spjöldum fyrir, svo minn maður svitnaði mikið og þrátt fyrir að ég setti viftuna sem er hér til kælingar í gang fór hann með slatta af elhúsrúllu í að þurrka af sér svitann. En honum tókst þetta að lokum, svo nú er tölvan mjög spræk.

Ég þorði ekki að mála í dag, því það var svo rigningarlegt og síðdegis rigni smávegis og von á meiri úrkomu í nótt. Síðdegis brugðum við okkur í blómabúð til að kaupa smávegis af blómum.

Fyrsta rósin 07

Þessa fallegu rós færði hún Þórunn mér í morgunn. Þessi rós er mjög falleg, en nærri hvít á lit, sem fer mjög vel við minn háralit. Ég á svo forgangsrétt að fyrstu rauðu rósinni sem kemur í garðinn okkar í ár, því þá rós á Þórunn að fá.

Posted by Picasa

23 apríl 2007

Notalegt veður

Veður:9,2°/33,4° léttskýjað fram eftir degi, en þikknaði upp með kvöldinu.

Eins og sjá má á hitatölunum var notalega hlýtt um miðjan daginn.

helsta verkefni mitt í dag var að halda áfram við að mála veggina í kring um lóðina, enn er talsvert ómálað, en þessu miðar samt áfram þó hægt gangi.

Það er líka í fleiri horn að líta, en bara að mála og síðdegis var grasflötin slegin, það er svo góð spretta á grasinu núna þessa dagana.

Það eru búnir að vera miklirð erfiðleikar með netsambandið hjá okkur að undanförnu og við erum búin að bíða eftir viðgerðarmanni frá símafélaginu til að koma hingað og lagfæra bilunina. Það kom loks viðgerðarmaður á laugardag og var ýmisst hér, eða á símstöðinni í þrjá klukkutíma og eitthvað er sambandið skárra á eftir, en vantar samt mikið upp á að það sé eins og það á að vera. Það verður sennilega að halda áfram að kvarta þar til þetta fæst í lag, hvenær sem það nú verður.

22 apríl 2007

Veður

Veður 10,9°/30,2° dálítið þokumistur í lofti í dag.

21 apríl 2007

Veður

Veður: 7,1°/28,1° úrkoma 17 mm. Þessi úrkoma er frá því gærkvödi og nótt, nægilegt til að væta moldina almennilega og þar með til gangs fyrir gróðurinn.
Í dag var að mestu léttskýjað.

20 apríl 2007

Lélegt netsamband

Veður 6,6°30,4° bjart fram eftir degi, en undir kvöld þrumuveður með nokkurri rigningu. Veðrið í gær var svipað og í dag.
Það er ólag á netsambandinu hjá okkur, en okkur er sagt að það sé verið að vinna í því að koma því í lag og ekki annað að gera en að vona að það taki ekki allt of langan tíma að gera við þetta.

19 apríl 2007

Gleðilegt sumar














Við fögnuðum sumardeginum fyrsta hér með því að elda og borða kjötsúpu og fyrstu nýju kartöflurnar úr garðinum okkar voru meðal annars sem notað var í súpuna. Myndin hér fyrir ofan er af kartöflunum, nýkomnum úr moldinni.
Posted by Picasa

18 apríl 2007

Veður

Veður: 11,4°/32,5° léttskýjað

17 apríl 2007

Veður

Veður: 9,2°32,9° léttskýjað

16 apríl 2007

Marsfeira

Veður: 7,1°33,4° léttskýjað. Eins og búist var við í gær var hlýtt og notalegt hér í dag og hitinn fór vel yfir þrjátú gráðurnar 33,4°. Þetta var eins og notalegur sumardagur.
Í morgunn hélt Þórunn áfram við málningarvinnuna, en ég útbjó beð fyrir tómatana.
Síðdegis fórum við á Marsfeiruna, sem svo er nefnd, en það er vörusýning sem hefst síðustu helgina í mars og stendur allan aprílmánuð. Þarna eru sýndir bílar, bátar, mótorhjól, húsgögn og innréttingar og ótal margt fleirra. Þetta er ekki mikið spennandi sýning, en maður fer samt á hverju ári til að sjá hvort ekki verði eitthvað spennandi að sjá í ár. Í tengslum við sýninguna er stórt tívolí, sem er vinsælt hjá yngri kinslóðinni.

15 apríl 2007

Myndir frá Mortágua

Það eru fleirri myndir frá Mortágua á myndasíðunni minni.












Posted by Picasa

Nýjar myndir í albúminu mínu.

Veður: 5,5°/29,5° Léttskýjað. Það munaði littlu að hitinn kæmist í 30° í dag, en ekki ósennilegt að á morgunn verði hlýrra en í dag og þá er líklegt að við sjáum hitatölu yfir þrjátíu í fyrsa sinn á þessu ári.

Við notuðum góða veðrið í dag til að fara í góðan sunnudagsbíltúr. Völdum að heimsækja bæ sem liggur í suðaustur frá okkur í rúmlega fimmtíu kílómetra fjarlægð. Þegar við lögðum af stað settum við stefnuna á annan bæ sem var heldur lengra í, en þegar við komum í Mortágua, sem var á þeirri leið sem við vorum búin að ákveða að fara. Þarna leist okkur svo vel á okkur að við ákváðum að fara ekki lengra og skoða bara Mortágua. Þetta er mjög snotur lítill bær, íbúafjöldi um tíu þúsund. Það eina sem ég veit um þennan bæ, er að þar er talsverður iðnaður og meðal annars á íslenska fyrirtækið Límtré verksmiðju þarna. Ég veit ekki hvort það eru einhverjir íslendingar þarna við vinnu núna, en það var allavega á meðan verið var að koma verksmiðjunni í gang. Eiinnig mun vera eitthvað af heilsuhótelum þarna. Það er víða nokkuð fallegt útsýni á þeirri leið sem við völdum enda liggur vegurinn hæst í fjögur hundruð metra hæð.

Ég tók nokkrar myndir þarna og á leiðinni sem ættu að gefa hugmynd um það sem fyrir augu bar í dag. Smellið á myndir til hægri á síðunni til að sjá myndirnar.

14 apríl 2007

Útsýni af svölunum hjá Grösu

Veður: 7,5°/24,3° Léttskýjað.

Siðdegir í dag heimsóttum við Grösu og þáðum kaffisopa úti á svölunum hjá henni.



Kaffitár

Myndir dagsins

Það er verið að mála í Austurkoti þessa dagana.
Hér er nýmálaður gluggahleri.













Hér er verið að mála vegginn í kring um garðinn.













Hér málarameistarinn að mála bílskúrshurðina.













Kisurnar tóku því rólega og bíða hér eftir að fá matinn sinn.


Posted by Picasa

13 apríl 2007

Veður

Veður. 11,5°/23,2° þokuloft í morgunn, en bjart síðdegis.
Það er sagt hér að það falli milljónir regndropa í apríl, en eitthvað hefur það brugðist í ár, því í dag þurfti ég að vökva grænmetið. Það er búið að vera skyjað af og til undanfarið og komið nokkrir regndropar einstaka sinnum, en ekki nægilega mikið fyrir grænmetið. Mín reynsla er sú að það rigni oft meira í maímánuði en aprílmánuði.

12 apríl 2007

Veður

Veður: 7,5°/24,4° þokuloft í dag, en sólin braust í gen um miðjan daginn.

11 apríl 2007

Veður

Veður: 9,7°/24,1° skýjað fram að kaffi, en léttskýjað síðdegis.Örlítil úrkoma í nótt sem leið, okkur er farið að vanta alvöru rigningu hér á þessu svæði.
Gott veður til að vinna í garðinum í dag.

10 apríl 2007

Veður: 4,2°/27,7° léttskýja fram yfir hádegi, en eftir það dálítið skýjað, allavega nógu skýjað til að grannkona mín gæti kvartað yfir hvað það væri vont að fá svona ský, því þa fengi hún meiri verki í kroppinn, en mér aftur á móti þótti bara gott að það dró fyrir sólu um stundasakir, svona eru viðhorfin misjöfn til veðurs og veðurfars. Ekki auðvelt að gera öllum til hæfis með veðrið frekar en margt annað.

Nýtt vinnuborð

Það var keypt nýtt vinnuborð fyrir Þórunni, sem við settum saman sjálf og á myndinni hér fyrir neðan er hún að skrúfa síðustu skrúfuna.
Á myndinni þar fyrir neðan er búið að taka borðið í notkun.
Þórunn á örugglega eftir að skapa marga góða og fallega hluti við þetta borð í framtíðinni.














Posted by Picasa

09 apríl 2007

Veður: 7°/23,9° nokkuð um skúraský á ferð um himinhvolfið í dag, en samt góðar sólarstundir þegar skýjin voru ekki að skyggja á sólina.

Á ferð okkar um Spán í fyrra keyptm við tvær littlar fánastangir til að festa á vegg, en framkvæmdasemin er nú ekki meiri en það að enn er ekki búið að koma því verk að festa þær á sinn stað. Það stóð meðal annars á því að finna hæfilegar skrúfur til að festa þær með, en einhvern veginn hefur alltaf gleymst að kaupa þessar skrúfur þó búið sé að fara ótal ferðir í byggingavöruverslanir frá því fánastengurnar voru keyptar. Í dag var ákveðið að gera bara ferð eftir þessum fjóru skrúfum sem vantaði, jú eftir nokkra leit í viðeigandi hillum í byggingavöruverslun fundust tíu skrúfur í poka ásamt plasttöppum, en svona í leiðinni fyrst við vorum komin í svona verslun var farið að svipast um eftir góðu vinnuborði fyrir Þórunni til að nota við umpottun og annað slíkt sem tengist garðinum. Það var til þarna mjög hentugt borð fyrir þetta, ósamansett í kassa, svo það var ákveðið að festa kaup á borðinu, einnig fundum við þarna gott útiljós sem okkur vanhagaðið líka um.

Semsagt við fórum til að kaupa fjórar skrúfur og fórum út með tíu skrúfur, eitt vinnuborð og eitt útiljós.

Þegar heim kom var farið að púsla grindinni að borðinu saman og það er að mestu búið, en eftir að setja saman skúffur og ganga frá borðplötunni og hillum, svo það verður fullt að gera á morgunn að ljúka við að koma borðinu saman, ætli það gleymist ekki að festa upp fánastangirnar?

Ég var orðinn svo pirraður á dagbókinni minni í gær, þvað var oft svo erfitt að fá hana til að taka við textanu frá mér.

Nú ætla ég að gera eina tilraun enn með því að fara aðra leið við að koma textanum á sinn stað, eftir leiðbeiningum sem vinur minn gaf mér, það verður spennandi að sjá hvernig tekst til að þessu sinni.

Ég ætlaði að segja frá því í gær, að á páskadag sendir kirkjan þrjá fullmegtuga á simum vegum til að blessa heimili og heimilisfólk hjá þeim sem þess óska og eru tilbúnir að greiða fyrir þá þjónustu. Þessa athöfn á klerkurinn að framkvæma, en hann verður að senda staðgengil, því hann kemst ekki yfir að fara á öll þau heimili sem óska eftir þessari þjónustu. Þessir sendifulltrúar hans klæðast sérstökum skikkjum. Sá sem fer fyrir hópnum ber kross, sem fólkið kyssir á og sá hinn sami fer með ritningarorð og blessar heimili og heimilisfólk. Annar aðstoðarmaðurinn klingir bjöllu þegar þeir ganga milli húsa, en sá þriðji heldur á reykelsi. Það er venja að strá blómum á gangstíginn frá götunni og heim að útidyrum á þeim húsum sem eru blessuð. Í gönguferð okkar hér um ´æinn síðdegis í gær gátum við séð a því hvar búið var að strá blómum hvar hafði verið blessað og hvar ekki.

08 apríl 2007

Farinn í frí

Ég veit ekki hvort dagbókin er orðin leið á mér, en allavega neitar hún að taka við nema tveim þrem línum af skrifum frá mér í hvert sinn, svo það getur verið að ég gefi henni bara frí um stundasakir.

Gleðilega páska

Veður: 4,5°/24,3° mestu léttskýjað, um miðjan daginn voru samt nokkur skúraský sýna sig og einu þeirra tókst senda örfáa dropa til jarðar.

07 apríl 2007

Veður

Veður: 4°/24,8° úrkoma 2 mm. léttskýjað til hádegis, en eftir hádegi að mestu skýjað. Úrkaman sem mældist féll seint í gærkvöldi og smávegis í kvöld.

06 apríl 2007

Veður

Veður: 0,3°/23,4° léttskýjað í morgun, dálítið skýjað síðdegis en aftur léttskýjað í kvöld.

05 apríl 2007

Vínviður















Þessi mynd, sem sýnir hvernig vínviðurinn er klipptur og bundinn, var tekin í heimsókninni til Jónínu í gær. Það er ekki verið að kaupa snæri til að binda vínviðinn með hér í landi, heldur er ræktuð sérstök tré, sem eru með grannar og sveigjanlegar greinar og með þessu er vínviðurinn bundinn. Það sést vel á myndinni hvernig þetta er gert. Það voru Portúgalar sem sáu um að vinna þetta verk fyrir þau hjón.
Posted by Picasa

Veður

Veður. 2,1°/20,9° í dag var ýmist skýjað, eða léttskýja.

04 apríl 2007

Heimsókn til Jónínu

Veður: 1,2°/20,5°bjartviðri og léttskýjað af og til.
Í dag fórum við að heimsækja hana Jónínu, sem nú er að irkja sína jörð, sem þau hjón keyptu í fyrra. Þessi eign þeirra er 110 kílómetra til suðurs frá okkur, sen sagt í átt að Lissabon. Jónína er búin að planta ótal matjurtum og setja niður talsvert af ávaxtatrjám á landi sínu. Myndin hér fyrir neðan er af matjurtagarðinum og eins og sjá má er hann falllegur.
Við tókum Grössu og dóttir hennar með í ferðalagið.
Frá vinstri talið á myndinni er Þórunn, Jónína, Graca og Joana.


03 apríl 2007

Veður

Veður: 6°/18,3° úrkoma 2 mm. Regndropar af og til fram að hádegi, þá fór að birta og síðdegis var orðið léttskýjað og notalegasta veður, en það var svalt í veðri í gær.
Við drifum okkur út í garð að vinna þegar sólin var búin að ná upp góðum il úti og þurrka vætuna frá í morgunn.

02 apríl 2007

Veður

Veður: - 0,5°/16,3° úrkoma 2 mm. skýjað

01 apríl 2007

Grjót hörð fjölskylda

Veður : - 0,3°/20,8° léttskýjað

Hér fyrir neðan eru myndir þar sem verið er að vinna við að leggja niður steina úr graníti við húsið hennar Grösu vinkonu okkar. Það var verktaki sem tók að sér verkið og þegar við komum þarna var öll fjölskylda verktakans að vinna við þetta. Konan sá um að aka grjóti og sandi í hjólbörum á meðan karlarnir unnu við að leggja grjótið niður. Fjögurra ára stubburinn þeirra fylgdist með og fer sjálfsagt fljótlega að hjálpa Mömmu við að tína grjót í hjóbörurnar.














Posted by Picasa