30 september 2006

Haustverk.

Veður:16,5°/25,9 mestu léttskýjað.
er veðrið skapi innfæddra, það rigndi síðastliðna nótt en var svo þurrt í dag og talsvert sólskin í kvöld er svo komin rigning á ný.
Portúgalar vilja gjarnan úrkomu, því hún er nauðsynleg, en þeim er meinilla við ef það er rigning á daginn, en allt í lagi þó það rigni um nætur meðan þeir sofa.
Í morgunn voru sófarólan og sólbekkurinn sem verið hafa hér á veröndinni sett upp á háaloft til vetrardvalar, því virðist útséð með við fáum fleiri gesti á þessu ári og við sjálf gerum ekki svo mikið því sitja úti í sólinni, en ef okkur dettur það í hug eigum við ágæta sólstóla til slíks brúks.
Í dag hélt Þórunn áfram með sultugerðina, búin sjóða einn pott af ávöxtum og seinni kominn á eldavélina og verður lokið við sjóða hann á morgunn, þar með er allri sultutausgerð lokið á þessu ári.
Þegar búið var brytja ávextina í seinni pottinn brugðum við okkur niður í Aveiro til kaupa meiri sykur og í leiðinni athuga með spenni fyrir fartölvuna, svo hægt tengja hana við strauminn í bílnum. Við áttum slíkt tæki, en það virðist hafa brunnið yfir í síðasta ferðalagi, allavega virkaði það ekki og það var brunalykt af því, en slík lykt er sjaldan góðs viti. fengum við spenni sem breytir tólf volta straumi bílsins í nítján volta straum, en það er spenna sem tölvan gengur á, svo ætti tölvan vera tilbúin í næsta ferðalag.

29 september 2006

Breytt dagskrá.

Veður: lægsti hiti 14,9° hæsti hiti dagsins 25,7°. Þokusúld í morgunn, en orðið léttskýjað um hádegi, en þykknaði upp á í kvöld.

Leikfimisdagur í dag, ég held það hafi allir mætt í dag, svo það var talsvert þröngt um okkur í salnum, en þetta bjargast alveg því fólk er svo spart á gera æfingarnar það þarf ekki mikið pláss fyrir hvern og einn. Helst er ég á margir mæti þarna til félagsskap frekar en vera mikið spá í þjálfa sig líkamlega.
Eftir leikfimina var búið setja á dagskrá slá grasflötina, en rigningarúðinn kom í veg fyrir það væri hægt halda þeirri áætlun, þess í stað var bara sest við tölvuna lesa Moggann og gera annað álíka þarflegt.
Grassa lét vita í morgunn hún væri búin útvega okkur marmelos til sultugerðar hjá nágrannakonu sinni. Grössu var boðið borða með okkur, sem hún þáði með þökkum ásamt Jóhönnu dóttur sinni.
Síðdegið hjá Þórunni fór í sultugerð og ég hjálpaði henni smávegis við skræla ávextina og eftir það var orðið það þurrt á ég gat slegið grasflötina.
Kvöldið fór svo í koma myndunum frá ferðalaginu inn á heimasíðuna, en ég á eftir skrifa texta við þær, en ef það verður rigning á morgunn eins og spáð er ætti takast ljúka vinnu við myndirnar.

28 september 2006

Kominn heim

Veður: hæsti hiti dagsins 23° rigning í morgunn, en þurrt síðdegis og góðar sólarstundir.
Við komum heim í dag úr þriggja daga ánægjulegu ferðalagi, ég reyni að hnoða saman einhverri ferðasögu og setja á heimasíðuna.

25 september 2006

Að stjórna veðrinu?

Veður: 15,5°/28,3° lítilsháttar súld fyrst í morgunn, en léttskýjað síðdegis.

Það fer ekki milli mála hvers vegna urðu svo snögg verðabrigði í dag, það var allt Þórunni þakka, hún ákvað hafa þvottadag í dag og þvoði þrjár vélar og þá var þeim ekki stætt á öðru sem stýra veðrinu en hleypa sólinni í gegn til þurrka allan þennan þvott.
Það er líklega búið vera á dagskrá af og til síðustu tvo mánuði afísa frystiskápinn, en eins og gengur með slík verkefni hefur það alltaf gleymst, enda svo sem ekki bráð aðkallandi.
var drifið í þessu í morgunn, enda er þetta ekki mikið verk, bara taka skúffurnar út og blása svo heitu lofti frá rafmagnsofni inn í skápinn, þá er allur ís horfinn úr skápnum á hálftíma og þá er ekki annað eftir en þrífa skápinn og raða inn í hann á ný. Semsagt engin ástæða til trassa svona lengi framkvæma þetta lítilræði.
Við höfum verið með það bak við eyrað í nokkurn tíma endurnýja kæliskápinn og frystirinn, því það eru komnir betri skápar og sparneytnari á markaðinn en þessir sem við eigum og þá þarf aldrei afþýða, ekki lítill kostur það.
Við létum verða af því fara í rannsóknarferð og sjá hvað væri í boði af skápum sem hentuðu okkur. Það er um nokkrar gerðir ræða og meira segja sáum við skápa með innbyggðu sjónvarpi, eitthvað sem ekki hentar okkur, en það eru allir með sjónvörp í eldhúsinu hjá sér hér í landi, svo það getur verið þetta henti þar. Það eru líka flestir frystiskáparnir með klakavél, það er líka hlutur sem við viljum vera án.
Við sáum skáp frá Samsung sem við vorum nokkuð sátt við og það er hægt hann hvítan, eða mattaðan úr ryðfríu stáli. Málið er semsagt í athugun og þetta er ekkert aðkallandi, svo við flýtum okkur bara hægt.
Ef það verður gott veður á morgunn og næstu daga, sem er allt útlit fyrir verði erum við nokkuð ákveðin í fara eitthvað á flakk um fjallendið hér austur af okkur.

24 september 2006

Rigningardagur

Veður: 14,3°19,3 rigning til klukkan fimm í dag, en eftir það þurrt en alskýjað.

Þessi dagur hófst eiginlega með tveim fótaferðum, því fyrst fórum við á fætur klukkan fimm í nótt til kveðja þau Guðmund og Jónínu og drekka með þeim morgunkaffi áður en þau lögðu á stað héðan út á flugvöll.
Þegar við vorum búin kveðja þau góðu hjón skriðum við undir sæng á og sváfum þar til á venjulegum fótaferðatíma, eða um níu leitið.
Það var þurrt þegar við vorum á fótum í nótt, en var komin rigning þegar við komum á fætur í síðara sinnið og rignda samfellt til klukkan um fimm síðdegis.
Það fór talsverður tími í dag í hafa samband við vini og ættingja í gegnum tölvurnar, það er ótrúlegt hvað þetta er þægilegur samskiptamáti.
Þegar rigningunni slotaði fórum við í stutta gönguferð hér í nágrenninu.

23 september 2006

Næturgestir

Veður:15,1°/25,1° rigndi talsvert mikið í nótt, en að mestur þurrt í dag og góðar sólarstundir.
Jónína og Guðmundur komu síðdegis og gista hér í nótt, því þau eru far í flug frá Porto í fyrramálið og það er ekki nema klukkustundar akstur héðan út á flugvöll.
Frá jörðinni sem þau keyptu er um tveggja og hálfs tíma akstur út á flugvöll, svo þau þáðu boð okkar um gista hér síðustu nóttina fyrir flugið.
Það er búið vera ánægjullegt spjalla við þau og heyra um hvað þau eru búin vera aðhafast á nýju eigninni sinni. Þeim fynnst þetta allt mjög spennandi og margt læra í sambandi við gróðurinn, en þetta lærist smá saman.

22 september 2006

Grjónagrautur

Veður: 10,7°/25,3° smá skúr fyrst í morgubb, en þurrt það sem eftir var dagsins og sólastundir öðru hvoru.

Við fórum í leikfimi í morgunn eins og vera ber á föstudegi, ekki veitir af liðka sig aðeins.
Í morgunn hringdi ég í Pétur vin okkar sem býr í Aveiro og bauðst til sækja hann, svo hann gæti reynt hvernig er sitja í nýja bílnum okkar og um leið borða með okkur hádegismat. Það var ekki flókin matreiðsla sem var viðhöfð,því Pétri var boðið upp á grjónagraut, en slíkan mat fær hann hvergi hér í landi nema hjá okkur. Það er borðað talsvert af soðnum grjónum með mat hér í landi, en grjónagrautur eins og við þekkjum frá Íslandi er ekki á borðum í Portúgal.
Pétri líkaði vel við nýja bílinn.
Síðdegis var ég hreinsa rósabeðið, því taka rósirnar vel við sér eftir það fór rigna og hamast við opna blóm.

21 september 2006

Haust

Veður: 13°/22,1° skúrir eða rigning til klukkan tvö, eftir það góðar sólarstundir.
Eins og lesa út úr veðurlýsingunni hér fyrir ofan er haustið taka við af sumrinu. Hitastigið er farið lækka verulega og þetta er fyrsta eiginlega haustrigningin sem er sýna sig núna.
Grasið sem fölnaði í sumarhitunum tekur grænka á og verður grænt og safaríkt sjá fram á næsta sumar. Haustið, veturinn og vorið er grænasti tíminn hér í landi en ekki sumarið eins og ætla mætti.
Núna er rétti tíminn til gróðursetja tré og ýmsan annan gróður, svo plönturnar nái koma rótarkerfinu í gott horf fyrir hitann og þurrkana í sumar.

20 september 2006

Kveðjustund

Veður: 10,9°31,5° þoka fyrst heiðskýrt eftir hádegi.

Þá er fremur tómlegt í Kotinu í dag, því í morgunn fóru Jóna og Guðni suður til Algarve þar sem þau ætla eyða síðustu dögunum af fríinu sínu. Í gærkvöldi buðu þau okkur út borða á flottum veitingastað. Þar fengum við úrvals nautasteik og góðan heimalagaðan ís í ábæti.
Ég er búin þekkja Guðna og Jónu síðan Eyjagosið varð, eða síðan 1973.
Þau áttu þá hús í Vestmannaeyjum, en húsið þeirra lenti undir ösku eins og svo mörg önnur hús í Eyjum. segja þau verið grafa húsið upp, þau segja það fylgi því blendnar tilfinningar sjá myndir af rústunum og hefðu fremur kosið það hefði ekki verið hreyft við húsinu.
Guðni er járnsmiður og vann í smiðjunni hjá mér í nokkur ár eftir gosið og síðan hefur haldist góður vinskapur á milli okkar og fjölskyldu hans.

Við fórum á markaðinn í morgunn til kaupa kál og salatplöntur, sem er búið planta niður í garðinum. Við drifum í þessu, því það er spáð rigningu á morgunn.Vonandi það ekki allt í plati , eins og krakkarnir segja stundum.
Notuðum góða veðrið til vinna í garðinum.

19 september 2006

Veðurfréttir

VVeður: hitastig 12,4°30,5°, þokuloft fyrst en síðan heiðskírt.

18 september 2006

Aveiro skoðuð

Veður: 13,5°/29,4° dagurinn byrjaði með þokulofti, en komið bjarviðri um hádeg hér í dalnum.

Sýndum gestum okkar Aveiro og nágrenni í dag, fórum meðal annars niður á strönd.

17 september 2006

Skoðunarferð.

Veður:8,8°/28,1° léttskýjað.
Fórum í dag með gestina okkar í ferðalag til Caramulo, þar sem þau skoðuðu listasafn og fornbílasafn. Eftir það var gengið á næst hæsta tind Portúgals, en hann er 1076,5 metra hár. Það þarf ekki ganga nema síðustu fimmtíu metrana, svo það er ekkert þrekivirki fara þarna upp. Það var gott skyggni í dag. Eftir gönguna á toppinn röltum við um götur í því sem við köllum steinaþorp, því húsin þarna eru sum hver hlaðin úr grjóti og eru enn í notkun. Þetta er eiginlega eins og hverfa aftur í aldir koma þarna.
Næsti viðkomustaður var bærinn Santa Comba Dao, en bær er þekktastur fyrir þar var Salazar einræðisherra Portúgals til margra ára, fæddur. Þetta er fallegur bær og gaman skoða þar gömul hús og þröngar götur. Síðasti viðkomustaður í dag var svo Busaco með sína veiðihöll konungs og fallegur garður fyrir framan höllina. Þar er líka Burknadalurinn með stóra burkan og fallega tjörn með svörtum og hvítum svan.
Eftir stutt stopp heima fórum við út borða og var það saltfiskur hætti portúgala sem varð fyrir valinu af matseðlinum og við vorm öll mjög ánægð með hverng þeir matreiða hann. Þeir kunna svo sannarlega lagið á matreiða saltfisk, enda er hann í miklu uppáhaldi hér í landi.
Eftir matinn litum við aðeins við á kirkjuhátíð í Albergaria, svona til gefa gestum okkar hugmynd um hvernig slík hátíð færi fram.

16 september 2006

Afmæli

Veður: 4,7°/27,2° léttskýjað.

Ég sagði frá því í gær það væru komnir góðir gestir hingað frá Þorlákshöfn. Gestirnir heita Jóna og Guðni og frúin kom til Portúgals til halda upp á sextugsafmælið sitt og við urðum þeirrar ánægju aðnjótandi hafa hana hér á þessum merku tímamótum í lífi hennar.
Í dag fórum við með þau í ferðalag á hæsta fjall Portúgals í mjög fallegu veðri og um kvöldið buðu þau okkur með sér í mat á góðu veitingahúsi. Semsagt mjög góður og ánægjulegur dagur í alla staði.
Læt fylgja mynd af afmælisbarninu við morgunverð á afmælisdaginn.

15 september 2006

Góðir gestir

Veður: 12,8°/25,4° léttskýjað
Fengum góða gesti í heimsókn í dag, þau eru komin alla leið frá Þorlákshöfn með við komu á Algarve.
Segi deili á þeim síðar.

 Posted by Picasa

14 september 2006

Hlutverkaskipti

Veður: 12,8°/25,4° alskýjað fyrst í morgunn en góðar sólarstundir frá hádegi.

Ég átti tíma hjá heimilislækninum um hádegið til afhenda honum niðurstöður úr síðustu blóðrannsókn vegna blöðruhálskirtilsins.
Eitthvert gildi sem kemur fram í þessum rannsóknum er helmingi hærra en vera ber og þar með nálægt einhverjum hættumörkum, svo hann leggur til mælingin verði endurtekin liðnum sex mánuðum til fylgjast vel með hvort einhverjar breytingar verða.
Ég hef greinilega fengið gallað eintak af blöðruhálskirtli, því nær helminginn af ævi minni hefur hann verið með einhverjar kenjar og stundum bara leiðindi, en vonandi damlar hann svona áfram eins og hingað til.
Ég minnist þess þegar ég var ungur og eldra fólk á nýjum bíl, þá fannst mér það eiginlega vera hálfgerð synd, því það kynni örugglega ekki meta það sem skyldi vera á svona flottum bíl. Fannst það væri bara ungt fólk sem fengi einhverja ánægju af því aka umá svona glæsikerrum.
hefur verið skipt um hlutverk, ég er komin í hlutverk gamalmennisins í nýja bílnum og einhverjir aðrir teknir við mínu gamla hlutverki telja ég fái ekkert út úr því vera í svona flottum bíl, hálfruglað gamalmenni.
Svo er það, er ég búinn reyna sitja beggja megin við borðið og þá kemst ég því ég virkilega nýt þess vera í svona góðum bíl eins og við eigum núna eftir við fengum Priusinn. Hann svífur eiginlega áfram með mann nær hljóðlaust svo maður situr bara afslappaður og nýtur þess vera ferðast. Ekki spillir það eru mjög vönduð hljómflutningstæki í bílnum svo er hægt njóta hvers tóns sem úr þeim kemur.
Síðdegis fórum við niður strönd og þar fórum við í góða gönguferð í hressandi sjávarlofti. Það er orðið fátt fólk á ferðinni við ströndina núna miðað við það sem var í sumar, en nokkrir síðbúnir sumargestir sleikja sólina og ganga sér til heilsubótar eins og við gerðum.

13 september 2006

Mánudagur 13.

Veður: 9,7°/20,2° það byrjaði rigna um hádegi og er búin vera nær samfelld rigning síðan, sem ekki var vanþörf á eftir allan þurrkinn.

Á mánudegi þann 13. september fyrir fimmtíu og tveim árum gekk 18 ára sveitapiltur úr Flóanum inn um dyr járnsmiðju Kaupfélags Árnesinga á Selfossi til hefja nám í eldsmíði.
Það hefði einhvern tíman ekki þótt gott byrja ævistarf sitt á mánudegi og þaðan af síður þrettánda dag mánaðar, en pilturinn var ekki hjátrúarfullur svo hann lét svona bábiljur ekki hræða sig frá mæta þennan dag. Í sveitinni var ávalt reynt byrja slátt á laugardegi, þó ekki væri nema taka eitt ljáfar svo hægt væri segja sláttur væri hafinn. Pilturinn hafði áhuga fyrir komast á samning í plötusmíði, eða vélvirkjun, en það var enginn möguleiki á því vegna þess það var enginn með meistararéttindi í þeim greinum hjá Kaupfélagssmiðjunum.Svo það var ekki annað gera en sætta sig við næstbesta kostinn og læra eldsmíði, þó það væri iðngrein sem væri líða undir lok á þessum árum.
Það var gaman og góð ögun fást við móta glóandi heitt járnið, því þar var ekki hægt leifa sér neitt hik eða mistök. Þar var í fullu gildi “hamra skaltu járnið heitt, hika er sama og tapa”
Iðnnám á þessum árum byggðist á því neminn var látinn aðstoða og vinna með sveini eða meistara í sinni iðn og síðar þegar búið var einhverri færni í faginu var farið fela nemanum vinna sjálfstætt en undir eftirliti meistarans.
Eins og gengur voru menn mjög misjafnlega verklægir og útsjónasamir þarna, en einn fannst mér bera af og ég var svo heppin vinna mikið með honum fyrst eftir ég byrjaði. Hann tók sér góðan tíma í hugsa út hvernig best væri vinna verkið, en því búnu var ekkert hik eða óþarfa handtök, hver hreyfing virtist hnitmiðuð. Honum vannst líka mun betur en þeim sem virtust vinna hraðar, en voru þá oft gera einhver mistök.
Eins og ég sagði í upphafi var eldsmíðin líða undir lok þegar ég hóf nám í þeirri grein, en ég skilaði samt mínu sveinsstykki á tilsettum tíma og ég veit ekki betur en ég síðasti neminn sem útskrifaðist í þeirri grein á Íslandi.
Ég hef geymt sveinsstykkið öll þessi ár og læt mynd af því fylgja með þessum pistli.
Enn í dag hef ég samband við nokkra af þeim ágætismönnum sem ég vann með á þessum árum.

12 september 2006

Nýr bíll.

Veður 14,4°/30,2° skýjað til klukkan ellefu eftir það léttskýjað.

Hjóluðum 25 Km. í morgunn. Ég var að sýna Þórunni nýja hjólaveginn sem búið er að gera hér inn með Vouga ánni. Hún var mjög hrifin af þessari leið ekki síður en ég, það er svo gott að vera alveg laus við alla bílaumferð á þessum vegi sem er bara ætlaður fyrir reiðhjól.
Rétt eftir klukkan tvö hringdi svo sölumaðurinn frá Toyota og lét vita að það væri búið að skrá bílinn og að við mættum koma og sækja hann.
Við þurftum að koma við hjá tryggingafélaginu og ganga frá tryggingunni, það tók nú hvorki meyra né minna en einn og hálfan tíma, þó það væri búið að undirbúa þetta eins og hægt var áður en við fengum númerið á bílinn. Maðurinn sem afgreiddi okkur talaði bara portúgölsku, en dóttir hans sem vinnur líka á skrifstofunni átti að túlka ef með þyrfti, en það kom eiginlega ekki að neinum notum, því hún var svo slök í enskunni.
Sagðist bara hafa lært að tala ensku af því að tala við kærastann, sem er Bandarískur og ég á von á að þau ræði eitthvað annað en tryggingamál þegar þau eru að talast við.
Þetta hafðist að lokum og við vorum komin til Toyota klukkan fimm.Þar gekk mjög vel að ganga frá öllum pappírum og þegar því var lokið var farið í að kenna á hvernig allir takkar og tól í bílnum vinna.
Þetta er talsvert öðruvísi en í þeim bílum sem við höfum áður kynnst og margt ólært enn.
Það er ekki mikil reynsla komin á bílinn enn sem komið er, bara búið að aka honum hingað heim, en okkur líkaði mjög vel við hann á þeirri leið.
Í tilefni dagsins fórum við út að borða í kvöld.
Hér fyrir neðan er mynd af Þórunni við nýja bílinn hér heima.

11 september 2006

AMANHA/á morgunn

Veður: 13,2°/27,7° mestu skýja, en sólarstundir síðdegis.

Í morgunn rann upp langþráði dagur sem við eigum nýja bílinn afhentan, það voru vísu tíu klukkustundir í áætlaðan afhendingartíma þegar við opnuðum augun. Það er undarlegt hvað klukkustund getur orðið löng þegar maður er bíða hvað þá tíu klukkustundir í einni halarófu.
Þórunn stytti sér biðina í morgunn með því stífpressa svo buxurnar mínar, ég er ekki alveg viss um hvort ég get sest inn í nýja bílinn í þeim, þegar því verkefni lauk hjá henni dreif hún sig í klippingu.
Ég fann ekki annað betra ráð til tímann til líða en fara rótast í garðinum. Útbjó beð fyrir kálplöntur, setti í það safnhaugamold og tætti það með tætaranum. Moldin er svo þurr það er ekki hægt planta neinu í hana fyrr en það er búið rigna hvenær svo það verður er óvíst.
Það var hringt frá Toyota rétt fyrir matinn og okkur sagt því miður yrði bíllinn ekki afgreiddur fyrr en á morgunn, enn einu sinni þetta vinsæla AMANHA. Bíllin var tilbúinn til afhendingar en það var ekki hægt hann skráðan í dag. Eftir hafa verið á þessari skráningar skrifstofu í sambandi við skráninguna á hjólhýsinu kemur þetta ekki á óvart, því aðra eins þjónustu hef ég sem betur fer ekki séð í langan tíma. Ég þakka bara fyrir ef bíllinn fæst skráður á morgunn.
Okkur var boðið koma og skoða bílinn, þar sem hann stóð og beið eftir a sín skráningarnúmer.
Það þáðum við og fengum heim með okkur leiðavísirinn með bílnum það eru hvorki meira minna en tvær bækur, önnur upp á 450 síður en hin 170 síður. Þórunn verður ekki verkefnalaus á meðan hún er læra á þetta tryllitæki, spurning hvort það gefst nokkur tími til aka í honum.
Það verður fróðlegt sjá hvað gerist á morgunn, hvort þá kemur bara annað AMANHA.

10 september 2006

Bílar

Veður. 14,3°/30,8° Skýjað fyrst, en síðan léttskýjað.

Morguninn var notaður í að þrífa bílinn, því á morgunn á að afhenda hann í skiptum fyrir annan nýjan.
Við fengum þennan bíl í skiptum fyrir Skoda fyrir tæpum tveim árum og þá var þessi bíll ársgamall.
Þá var maður að reyna að vera hagsýnn og kaupa sér notaðan bíl, því það eru svo mikil afföll af nýjum bílum fyrsta árið. Að þessu sinni á að láta slíka skinsemi lönd og leið og kaupa sér nýjan bíl.
Þessi Opel hefur reynst okkur vel og gerir allt sem búast má við af honum, en mér finnst hann ekkert spennandi, svo ég kveð hann eiginlega ekki með neinni eftirsjá. Það er með bíla eins og aðra hluti þeir höfða misjafnlega til manns, Þórunn hefur verið sáttari við þennan bíl en ég.
Mér telst til að þetta sé seytjándi bíllinn sem ég hef átt um dagana og ekki hafa þeir allir berið í háum gæðaflokki. Sumt voru ryðgaðar druslur sem fengust ódýrt og maður ryðbætti og málaði, það þurfti eiginlega að smíða þá upp að nýju að töluverðu leiti, en þetta var eina leiðin til að geta eignast bíl, þegar líka var verið að byrja búskap og byggja hús.
Hér fyrir neðan er mynd af Þórunni þar sem hún brosir breytt þegar við fengum Opelinn, nú er eftir að sjá hve breytt brosið verður þegar hún fær alveg nýjan bíl.

09 september 2006

Farið í heimsókn

Veður: 16,9°/32,4° Eins og undanfarna daga var þoka í morgunn og svo orðið léttskýja um hádegi.

Eftir matinn fórum við heimsækja Jónínu og Guðmund, en í gær voru þau ganga endanlega frá kaupunum á landinu.
Þau eru búin búa þarna í viku og eru mjög ánægð þarna. Þau eru dytta ýmsu og hreinsa til á landinu. Þau verða þarna í tvær vikur til viðbótar þessu sinni.
Þau dúkuðu borð fyrir okkur í skógarrjóðri rétt við húsið, þetta leit ljómandi huggulega út, en verst það voru nokkrar boðflennur sem leist líka mjög vel á þetta og fannst ilmurinn af kræsingunum verulega freistandi, en við vorum ekki eins hrifin af félagsskapnum. Þetta voru nokkrar vespur sem gerðu sig mjög heimakomnar. Sem betur fer létu þær sér duga narta í matinn en ekki okkur, en það er ekki hægt segja við höfum setið í rólegheitum og notið veitinganna, þetta varð eiginlega einskonar kappát úr þessu við vespurnar.
Á heimleiðinni skoðuðum við gamalt þorp, þar eru þröngar götur og nokkur gömul og falleg hús. Einnig státar þorpið af fallegu virki sem gaman var skoða, það var líka gaman rölta um gömlu göturnar og síðan setjast inn á kaffihús og sér góðan kaffisopa. Það er alveg öruggt kaffið á kaffihúsunum bregst aldrei hér, það er alveg óhætt treysta því gott kaffi.
Myndin hér fyrir neðan er af hluta virkisins.
Á móts við Coimbra tókum viðalveg óvart smá víxlspor sem varð til þess við sáum mjög fallega brú sem er nýbúið byggja yfir Montego ána.
Það er ekki alltaf slæmt taka víxlspor allavega ekki þessu sinnin, því ef við hefðum ekki gert það hefðum við misst af sjá þetta fallega mannvirki.












08 september 2006

Sultugerð

Veður: 16,4°/35,2° skýjað og þoka í morgunn, en léttskýjað síðdegis.

Við byrjuðum í leikfimi í morgunn eftir sumarfrí.
Matthild grannkona okkar er vön að vera okkur samferða í leikfimina, en nú er hún og bóndi hennar í sjúkraþjálfun svo hún kemst ekki í leikfimi á meðan á sjúkraþjálfuninni stendur.
Þau hafa fengið sjúkraþjálfun á hverju ári nokkur undanfarin ár.
Það var vinalegt að sjá leikfimihópinn á ný og allar voru þær mjög vel málhressar að vanda.
Hún Teresa leikfimikennari fékk svo slæman verk í bakið í morgunn að hún var alveg að sálast en lét sig samt hafa það að kenna okkur og gera æfingarnar með okkur.
Það var annar í sultugerð hjá Þórunni í dag. Það er svo mikið af fíkjum hjá okkur í ár að við komumst ekki yfir að borða þær allar ferskar, svo Þórunn er að nýta þær í sultu. Í gær blandaði hún saman fíkjum og marmelos, en í dag voru það fíkjur og epli sem hún blandaði saman.
Báðar þessar sultutegundir bragðast mjög vel.

07 september 2006

Veður

Veður: 16,1°/32° skýjað í morgunn, en léttskýjað eftir hádegi.

06 september 2006

Þjónusta.

Veður: 15,2°/32,7° léttskýjað.

Í morgunn vorum við að passa Johana dóttir Grössu, en stelpan er sjö ára og þarf svo sem ekkert að passa hana, því hún er mjög þæg og dugleg að finna sér eitthvað til dundurs.
Ég þurfti samt að fara einu sinni til að sækja fjarstýrða flugvél sem frænka hennar hafði gefið henni nýlega og sú stutta kann ekkert að stjórna henni enn sem komið er, svo það er algjör tilviljun hvert vélin flýgur þegar hún sendir hana af stað og eitt sinn lenti hún hér á þakinu á húsinu.
Grassa mamma hennar er kennari og nú eru mikil fundarhöld hjá þeim áður en skólastarfið hefst, en kennsla hefst ekki fyrr en einhvern tíman í næstu viku.
Þórunn var búin að elda góðan baunarétt þegar Grassa kom af fundinum. Þær mæðgur borðuðu með okkur og kunnu vel að meta þennan mat.

Sölumaðurinn hjá Toyota sem afgreiddi okkur með nýja bílinn var búin að lof að hringja í okkur í dag þegar hann kæmi úr fríi, en eftir því sem hann sagði okkur ætlaði hann að taka frí frá föstudegi í síðustu viku þar til í dag.
Þegar ekkert hafði heyrst frá honum klukkan fjögur fórum við í umboðið og þar var okkur sagt að það væri ekki von á manninum fyrr en á mánudag í næstu viku. Við báðum um að fá að tala við annan sölumann, sem við spurðum hvort þetta væri sú þjónusta sem við mættum eiga von á hjá Toyota og við sögðumst alls ekki sætta okkur við. Hann var sammála því að þetta væri ekki nógu gott og bað okkur um að hinkra aðeins á meðan hann athugaði málið. Við settumst í huggulega biðstofu sem þarna er á meðan sölumaðurinn hvarf inn í skrifstofuna. Eftir svo sem fimmtán mínútur kom hann með þær fréttir að bíllinn kæmi til þeirra annað hvort á föstudag eða mánudag og væri þá tilbúinn til afhendingar einum degi síðar. Þessi lofaði líka statt og stöðugt að hann hringdi í okkur næsta föstudag til að láta okkur vita hvort bíllinn kæmi til þeirra þann dag, eða eftir helgina. Ég vona að hann standi við það.
Þetta er ef til vill að verða full mikið af hryllingsfréttum af þjónustunni hér, en því miður vantar bara mikið upp á að þjónusta hér sé í lagi.
Það ber líka að nefna þegar þjónusta er góð og það er ekki hægt að segja annað en þjónustan hjá Skoda sé alveg til fyrirmyndar í alla staði og ég hefði gjarnan vilja skipta við þá áfram, en þeir áttu bara ekki bíl handa okkur eins og við vildum fá. Við vildum fá sjálfskiptan bíl með bensínvél, en Skoda á bara sjálfskipta bíla með díselvélum.
Myndin er af Jóhönnu.