Veður: 3,8°/20,9°Góðar sólarstundir í dag.
Þá er að birta niðurstöður veðurathugana fyrir marsmánuð. Úrkoma var ekki nema 74 mm. Lægst fór hitinn í -3,3° og hæst komst hann í 27,5° og meðaltal hámarkshita var 20,1°
Lítið eitt um tilveruna á bökkum Ölfusár og hvar annars staðar þar sem höfundur þessara pistla kann að stíga niður fæti í framtíðinni.
Veður: 3,8°/20,9°Góðar sólarstundir í dag.
Þá er að birta niðurstöður veðurathugana fyrir marsmánuð. Úrkoma var ekki nema 74 mm. Lægst fór hitinn í -3,3° og hæst komst hann í 27,5° og meðaltal hámarkshita var 20,1°
Veður: 5,2°/23,2° léttskýjað.
Það er stuttur sólarhringur á morgunn, því í nótt á að flýta klukkunni um eina klukkustund, sem þíðir að klukkan verður einni stund á undan klukkunni á Íslandi.
Í góða veðrinu eftir hádegi í dag fórum við í gróðrarstöð til að kaupa blóm og tómat og paprikuplöntur.
Veður: 3,2°/15,4° úrkoma 3 mm. Alskýjað.
Þá er það komið á hreint hvers vegna það hefur verið erfitt tíðarfar fyrir ræktun nú í vetur, komið næturfrost sem hefur farið illa með kartöflugrös og aðrar slíkar búsifjar. Skíringin er einföld, það er hlaupár og þess vegna er tíðin svona erfið, ekki nokkur vafi var mér tjáð í dag. Ég er samt ekki alveg sannfærður um að þetta sé rétt, finnst tíðarfarið bara svipað og hin þrjú árin sem ekki er hlaupár.
Veður: 0,0°/16,7° að mestu léttskýja til hádegis, en alskýjað síðdegis.
Enn spyrnir kuldaboli við fótum og neitar að fara til sinna sumarlanda, en ég hefði haldið að hann ætti samleið með farfulunum á norðlægar slóðir yfir sumarið og það alveg norður á Norðuheimskautið.
Veður: -1,9°/16,8° léttskýjað. Í kvöld er páskunum lokið hér og þá er von til að kuldaboli sleppi takinu á veðrinu hér og það fari að hlýna á ný.
Veður. 6,3°/15,7° úrkoma 7 mm. Skúrir fram yfir hádegi, en nokkuð bjart síðdegis.. Hitatölurnar sýna lægsta og hæsta hita hvers sólarhrings og venjulega les ég af mælinum á kvöldin.
Við fórum í búðarleiðangur í dag og það var margt um manninn í öllum búðum sem er ekki nema eðlilegt laugardaginn fyrir páska. Undarlegra fannst mér að sjá í gær föstudaginn langa voru flestar búðir opnar. Það kemur mér dálítið undarlega fyrir sjónir í þessu landi kaþólskunnar hvað lítið er gert úr helgihaldi föstudaginn langa, ég man þá tíð í mínu ungdæmi að það rétt leyfðist að draga andann þann dag og alls ekki að anda djúpt, það voru helgispjöll.
Veður: 1,9°/21,7° léttskýjað.
Við erum smám saman að skoða landsvæði, hér í nágrenninu sem er hæfilega langt í burtu til að skoða á einum degi og í dag fórum við inn í land í átt til Spánar. Við erum margsinnis búin að fara framhjá þessu svæði eftir hraðbrautinni, en það er öðruvísi að fara eftir mjórri vegum í gegnum sveitir og þorp. Þetta svæði sem við fórum um í dag er við rætur Esterelafjallsins að norðan verðu og er nokkuð slétt. Þarna skiptist víða á heiðarland og ræktað land. Á þessum árstíma ber mikið á sópum, sem eru annaðhvort hvítir eða gulir og svo eru trén sem fella laufið að laufgast núna og þá er litur laufsins svo fallega ljósgrænn.
Gulur og hvítur sópur.
Ekki veit ég hvaða trjátegund þetta er, en nýútsprungið laufið er falllegt á litinn
Veður: 5,7°/21,1° léttskýjað.
Það hvessti hér í gær undir kvöld og var hvasst á okkar mælikvarða hér í alla nótt og fram á morgunn. Rafmagnslínur hér eru greinilega ekki hannaðar fyrir svona vind, því rafmagnir fór margsinnis af í gærkvöldi og eitthvað hefur verið rafmagnslaust í nótt. Í Austurkoti fuku nokkrar þakplötur af skýli sem upphaflega var gert til að hýsa brenni en er nú notað til að geima í hjólbörur, tætara og annað sem viðkemur garðinum. Sem betur fór fuku plöturnar ekki langt og eru nú aftur komnar á sinn stað og til öryggis búið að fergja þær með grjóti. Það eru til hérna granítstólpar sem notaðir voru til að styðja við vínviðinn, en hafa ekki haft neinu hlutverki að gegna síðan ég settist að hér, því ekki er ég að rækta vín, svo það er gott að finna þeim nýtt hlutverk, en ég verð að játa að það var nokkuð strembið fyrir mig að koma þeirri þyngstu þeirra á sinn stað.
Veður: 0,9°/21,1° að mestu léttskýjað og nokkuð hvasst í kvöld, en það er ekki oft sem blæs eitthvað að gagni hér.
Veður: 9,3°/18,6° úrkoma 4mm. Mest af þessari úrkomu féll í einni góðri skúr í morgunn, en eins og sjá má hefur hitinn snarlækkað frá því sem var í gær, enda komin vestan gola frá hafinu m með skúraskýjum og góðum sólarstundum inn á milli.
Veður: 4,4°/27,5° léttskýjað.
Eins og sjá má á hitatölunum hér fyrir ofan var vorveður hér í dag, enda ekki nema ein vika í vorkomuna hér í landi, það er samt nokkuð í land með að hitinn hér verði jafn og stöðugur, en það eru óneitanlega farnir að koma notalegir dagar inn á milli. Að sjálfsögðu var svona gott veður notað til að vinna í garðinum, enda ekki amalegt að vinna innan um litfögur og angandi blóm.
Hekkið á veröndinni fékk snyrtingu í dag, enda komið í sumarskrúðann, þó það felli ekki alveg laufið yfir veturinn verður það dálítið dapurlegt í skammdeginu, en tekur svo gleði sína á ný með hækkandi sól. Bóndarósin kann líka vel að meta sól og goott veður.
Veður: 3,5°/25,9° léttskýjað.
Ég vona að máltækið“allt er þá þrennt er“ sé enn í fullu gildi, því vatnsdælan í brunninum og hlutir sem henni tengjast eru búnir að vera með óþarfa dynti upp á síðkastið.
Þetta byrjaði með því að einn daginn þegar ég opnaði krana og ætlaði að fá mér vatn að drekka kom ekkert vatn en í þess stað heyrðist bara soghljóð frá krananum eins og hann væri að drekka loft, í stað þess að gefa mér vatn í glasið. Ég út að brunni til að aðgæta hvað væri á seiði og sá að ljós sem sýnir þegar dælan er í gangi logaði, sem benti til að hún væri að vinna sitt verk, en samt kom ekkert vatn inn á kerfið. Þá lá næst fyrir að taka lokið af brunninum og sjá hvað væri að gerast þar niðri og þá kom í ljós að slanga sem tengir dæluna við húskerfið hafði smokkast af dælunni. Við Þórunn hjálpuðumst að við að ná dælunni upp, en það er nokkuð erfitt, því brunnurinn er 11 metra djúpur svo slangan og dælan eru nokkuð þung, en það hafðist að gera við bilunina og koma dælunni aftur á sinn stað. Nokkrum dögum síðar bilaði svo þrýstirofi sem stjórnar dælunni og það varð til þess að hún var stöðugt í gangi. Mér tókst að endurstilla þrýstirofann og vonaði að þar með væri öllum kenjum þessa kerfis lokið, en svo reyndist ekki vera, því nokkrum dögum síðar sá Þórunn að slangan frá dælunni var farinn að leka, en sem betur fer var lekinn þar sem gott var að komast að honum að þessu sinni og í dag var gert við þessa bilun og vonandi er enn í fullu gildi. Allt er þá þrennt er:
Veður: 10,9°/22,1° úrkoma 1 mm. skýjað fyrst í morgunn, en hálfskýjað þegar kom fram undir hádegi.