12 maí 2006

Eins og í fuglabjargi.

Veður: 13°/23° léttskýjað.

Þegar við mættum í leikfimi í morgun fór það ekki milli mála í hvaða landi við erum stödd, því kliðurinn áður en leikfimin byrjaði var eins og ég gæti ímyndað mér í fuglabjargi með nokkur hundruð þúsund fuglum sem allir eru gargandi. Þarna voru líka samankomnar 25 konur og allar voru tala, en nokkuð örugglega engin hlusta á hvað hinar voru segja. Það er alveg öruggt tungan í þeim fékk ríflegan skammt af þjálfun í dag.
Það er ein kona þarna í hópnum sem er örugglega með einhvern heilasjúkdóm, því hún á mjög erfitt með samræma hreyfingar sínar og sjaldnast nær hún gera æfingarnar rétt. Það hlýtur vera mjög erfitt svona sjúkdóm vitandi það er enga lækningu hafa við þessu. Vonandi gera þær æfingar sem hún nær gera henni eitthvað gott. Mér finnst mjög ömurlegt vita til þess það hefur komið fyrir það hlegið konunni þegar hún er gera einhverja vitleysu og þá bara brosir hún angurblítt. Ég bara vona þeim sem verður það á hlæja svona löguðu eigi ekki eftir upplifa lenda í þessari aðstöðu síðar á lífsleiðinni.

Eftir leikfimina litum við inn hjá Geira og Rósu, þó klukkan væri þá ekki nema rétt rúmlega tíu voru þau búin fara niður í Aveiro til versla og komin heim með varninginn. Það er sko ekki verið sofa úr sér augun á þeim bæ.
Við fengum svo auka morgunkaffi með þeim úti á svölum í góða veðrinu.

Síðdegis var svo aðeins litið á garðinn, það er alltaf nóg gera þar.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Very best site. Keep working. Will return in the near future.
»